Fréttir

Samherji verður með­eig­andi fær­eyska rík­is­ins í Nordik banka

Fjár­fest­ing­ar­fé­lag Samherja, Kald­bakur ehf, eign­að­ist í morgun 5% hlut fær­eyska útgerð­ar­fé­lags­ins Fram­herja í Nordik banka. Samherji átti þar til nýlega fjórð­ung í Fram­herja sem var eitt umsvifa­mesta útgerð­ar­fé­lag eyj­anna. Danskur kvóta­kóngur kom líka inn í hlut­hafa­hóp bank­ans í morgun, þar sem fær­eyska ríkið er fyr­ir­ferð­ar­mest.
FréttirBlóðmerahald

Lögregla segi ósatt um blóð­mera­rann­sókn

Dýra­vernd­un­ar­sam­tök neit­uðu aldrei að afhenda lög­reglu á Íslandi mynd­bönd af meintu dýra­níði í blóð­mer­ar­haldi á Íslandi. Stað­hæf­ingar lög­reglu um að þess vegna hafi rann­sókn á blóð­mera­haldi verið hætt, eru rangar. Þetta segir tals­maður þýskra dýra­vernd­ar­sam­taka og gögn um sam­skipti sam­tak­anna við íslensk yfir­völd styðja sög­una. Samtökun íhuga að kvarta undan sleif­ar­lagi lög­reglu í mál­inu.
Fréttir

18% 10 til 17 ára drengja fengu ADHD lyf: Barninu breytt en ekki aðstæð­unum

Þétt­setnar skóla­stofur, mikil skjá­notkun og úrræða­leysi eru á meðal þess sem talið er liggja að baki veru­legri ADHD-lyfja­notkun drengja á Íslandi. Lyf eru oftar en ekki svarið við grein­ingu hér­lendis en Norð­ur­löndin bjóða börn­unum sínum frekar önnur úrræði. Börn geta þurft að bíða allt að ár eftir ADHD grein­ingu og á þeim tíma getur ástandið versnað.
Menning

Skjald­borg­ar­tím­inn: Mitt á milli Moskvu og Pat­reks­fjarðar

Á Skjald­borg ferð­ast maður til Pat­reks­fjarðar og þaðan til Moskvu og Mjanmar, á sjó­inn, til Tálkna­fjarðar og í greni Haga­ljóns­ins sjálfs. En kannski mest inn­á­við. Á þess­ari hátíð íslenskra heim­ilda­mynda eru menn í sjálf­skoðun þessa dag­ana, en finna sig auð­vitað á Skjald­borg, undir vök­ulu eft­ir­liti hafs­ins og krumma. Og svo voru verð­launin – Heima­leik­ur­inn fékk Einarinn, áhorf­enda­verð­laun hátíð­ar­innar, Skuld, sem fékk hvatn­ing­ar­verð­laun dóm­nefndar, og Soviet Barbara, sem fékk Ljós­kast­ar­ann, aðal­verð­laun dóm­nefndar.

17 mín. lestur

GreiningSalan á Íslandsbanka

Birna Ein­ars­dóttir: Banka­stjór­inn sem lýsti sér sem auð­mjúkri en kvaddi með eitr­aðri pillu

Aðeins á fimmta sól­ar­hring leið milli þess sem Birna Ein­ars­dóttir lýsti því að hún nyti trausts stjórnar Íslands­banka og hefði ekki hugsað sér að láta af störfum sem banka­stjóri þar til til­kynn­ing um starfs­lok hennar barst, um miðja nótt. Á sínum tíma lýsti Birna bónus­kerfum bank­anna sem „glóru­lausum“ en fékk þó sjálf á fimm ára tíma­bili um 35 millj­ónir í bónusa frá bank­anum. Þá sem kallað höfðu eftir að höfuð hennar yrði látið fjúka kvaddi hún með því að óska þeim „vel­farn­aðar í þeirra störfum“.

12 mín. lestur

VettvangurÁ vettvangi í Úkraínu

Tveir bæir – einn frjáls og hinn í hel­víti

Ef það væri ekki fyrir eyði­legg­ing­una og ein­staka hvelli úr fall­byssum stór­skota­liðs í nágrenn­inu, gæti þorpið Orikhiv verið leik­mynd fyrir krútt­legan, enskan sveitabæ. Rósir, val­múar og önnur vor­blóm blómstra um allan bæ og grænar hlíðar eru skreyttar litlum og fal­legum stein­húsum. Hvert hús með græn­met­is­garð og vín­við vax­andi í netum sem skríða upp hús­vegg­ina. Bærinn sem var áður mið­stöð land­bún­aðar á Zaporizhzhia svæð­inu, hýsti um 14.000 íbúa í sveita­sælu og vel­megun fyrir stríð.

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár