Fréttir

Fjár­magnstekjur á mann í Grinda­vík fóru úr 409 þús­und í 7,2 millj­ónir

Sex systk­ini í Grinda­vík seldu fjöl­skyldu­út­gerð­ina sína á meira en 30 millj­arða króna í fyrra. Við það urðu til há­ar fjár­magn­s­tekj­ur sem leiddu af sér sex millj­arða króna skatt­greiðsl­ur. Fyr­ir vik­ið voru fjár­magn­s­tekj­ur á hvern íbúa í Grinda­vík á ár­inu 2022 næst­um níu sinn­um hærri en lands­með­al­tal­ið.
Greining

Hæsti vinn­ingur hækkar úr 300 þús­undum í 5 millj­ónir

Ekkert bólar á inn­leið­ingu spila­korta til að koma í veg fyrir nafn­leysi og „falska vinn­inga“. Þrátt fyrir það hefur verk­efnið verið á aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka síðan Ísland fór á gráa list­ann. Dóms­mála­ráðu­neytið leggur nú hins vegar til breyt­ingar á reglu­gerð um spila­kassa Íslands­spila þar sem hámarks­vinn­ingur er hækk­aður úr 300 þús­und krónur í 5 millj­ónir. Virkur spilafík­ill vill hert aðgengi að spila­kössum frekar en að banna þá.
FréttirSalan á Íslandsbanka

Rík­is­end­ur­skoðun telur Banka­sýsl­una ekki hafa dregið neinn lær­dóm af skýrslu sinni

Rík­is­end­ur­skoðun hefur boðað að unnið sé að eft­ir­fylgni vegna stjórn­sýslu­út­tektar sem stofn­unin fram­kvæmdi á sölu á 22,5 pró­sent hlut rík­is­ins í Íslands­banka. Guð­mundur Björgvin Helgason rík­is­end­ur­skoð­andi segir við Heim­ild­ina að ekki sé hægt að sjá að for­svars­menn Banka­sýsl­unnar hafi dregið nokkurn lær­dóm af skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar.
Skýring

Skatt­tekjur metnar 69 millj­örðum lægri í fyrra vegna breyt­inga í tíð núver­andi stjórnar

Í svari sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur sett fram á vef Alþingis er rakið hvaða skatt­kerf­is­breyt­ingar rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur ráð­ist í og hvernig þær hafa haft áhrif á tekju­öflun rík­is­sjóðs. Tekju­skatts­lækk­unin sem sam­þykkt var 2019 er helsti lið­ur­inn í þeim breyt­ingum sem núver­andi rík­is­stjórn hefur inn­leitt, en heild­ar­á­hrifin voru metin á 69,4 millj­arða til lækk­unar á tekjum rík­is­sjóðs á síð­asta ári.
FréttirSalan á Íslandsbanka

Jón Guðni Ómarsson: Starfs­lok stjórn­enda Íslands­banka ekki að þeirra frum­kvæði

Nýr banka­stjóri Íslands­banka tók ákvörðun um að tveir stjórn­endur innan bank­ans yrðu að víkja vegna ábyrgðar þeirra á útboði á hlut rík­is­ins í bank­anum. Jón Guðni Ómarsson segir að með því og öðrum aðgerðum haldi hann að takast megi að vinna aftur traust í garð bank­ans en það muni taka tíma „og mikla vinnu“.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár