Efstu tíu prósentin juku auð sinn um 739 milljarða króna í fyrra

Eigið fé íslenskra heim­ila heldur áfram að hækka og er nú orðið 7.748 millj­arðar króna. Tíu pró­sent fjöl­skyldna í land­inu tekur nú að jafn­aði til sín um helm­ing alls nýs auðs sem verður til í land­inu á ári. Sá hópur átti eigið fé upp á 3.983 millj­arð króna í lok síð­asta árs.

Eigið fé íslenskra heimila hefur tvöfaldast í krónum talið síðan að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum. Af þeim nýja auð sem orðið hefur til, 3.646 milljörðum króna, hafa 1.727 milljarðar króna, eða rúmlega 47 prósent, lent hjá efstu tekjutíundinni.
Eigið fé íslenskra heim­ila hefur tvö­fald­ast í krónum talið síðan að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur tók við völdum. Af þeim nýja auð sem orðið hefur til, 3.646 millj­örðum króna, hafa 1.727 millj­arðar króna, eða rúm­lega 47 pró­sent, lent hjá efstu tekju­tí­und­inni. Mynd: Eyþór Árnason

Eigið fé er sá auður sem stendur eftir þegar búið er að draga skuldir frá eignum. Íslensk heim­ili hafa séð þennan auð rísa hratt á síð­ustu árum, sam­hliða því að eigna­bólur, sér­stak­lega á fast­eigna- og hluta­bréfa­mark­aði, hafa verið blásnar upp. Frá árinu 2017 og til loka síð­asta árs nán­ast tvö­fald­að­ist eigið fé ein­stak­linga á Íslandi. Upphæðin fór úr 4.102 millj­örðum króna í 7.748 millj­arða króna. Þegar búið er að leið­rétta fyrir verð­bólgu er raunaukn­ingin á eigin fénu á þessu fimm ára tíma­bili 2.569 millj­arðar króna.

Á síð­asta ári jókst eigið féð í krónum talið meira en nokkru sinni áður. Alls bættu íslensk heim­ili 1.624 nýjum millj­örðum króna við auð sinn á árinu 2022. Þar af fóru 739 millj­arðar króna til þeirra tíu pró­sent lands­manna sem höfðu mestar tekjur, eða 46 pró­sent alls þess auðs sem varð til, og rataði til ein­stak­linga, í fyrra. Sá hópur átti alls 3.982 millj­arða …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár