Greining

Heimilin hafa aldrei tekið jafn mikið af verð­tryggðum íbúða­lánum í einum mán­uði

Sífellt fleiri heim­ili eru að skipta úr óverð­tryggðum lánum yfir í verð­tryggð lán til að lækka mán­að­ar­lega greiðslu­byrði sína. Algjör spreng­ing varð í þess­ari þróun í júlí þegar umfang verð­tryggðra lána sem voru tekin var rúm­lega tvö­falt meira en mán­uð­inn áður. Á sama tíma er kaup­samn­ingum að fækka um næstum þriðj­ung milli ára.
Fréttir

Hitamál á flokks­ráðs­fundi VG um helg­ina – Útlend­inga­lög, hval­veiðar og auð­lindir í þjóð­ar­eign

Hitamál innan rík­is­stjórn­ar­innar á borð við fram­kvæmd nýrra útlend­inga­laga og hval­veiði­bannið eru meðal þess sem tekið er fyrir í drögum að álykt­unum sem liggja fyrir flokks­ráðs­þingi Vinstri grænna sem fram fer um helg­ina. For­sæt­is­ráð­herra kemur að álykt­un­ar­drögum þar sem þess er kraf­ist að auð­lindir verði þjóð­ar­eign, þar með tal­inn fisk­ur­inn í sjónum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með sinn flokks­ráðs­fund í dag og liggur stjórn­mála­á­lyktun hans fyrir síð­degis.
Skýring

KSÍ heyrði fyrst af máli Alberts í júlí – „Á þessum tíma var þetta orðrómur“

Starfs­fólki KSÍ barst í sumar orðrómur um meint brot Alberts Guð­munds­sonar lands­liðs­manns og var stjórn félags­ins til­kynnt um það án þess að hann væri nafn­greindur. Ljóst er að verk­ferlar innan KSÍ þegar kemur að meintum ofbeld­is­brotum leik­manna hafa verið teknir til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar síðan Guðni Bergsson þurfti að segja af sér sem for­maður KSÍ eftir að hafa logið vegna slíkra mála. Vanda Sig­ur­geirs­dóttir vill ekki ræða hvort end­ur­teknar kærur vegna kyn­ferð­is­brota gegn lands­liðs­mönnum hafi nei­kvæð áhrif á ímynd þess.

8 mín. lestur

Fréttir

Starfs­menn Kerecis mögu­lega þeir einu sem borga skatt vegna söl­unnar

Skatta­sér­fræð­ingur segir fátt hægt að full­yrða um skatt­heimtu rík­is­ins vegna sölu­hagn­aðar hlut­hafa Kerecis. Hluta­fé­lög geti frestað skatt­greiðslum vegna sölu­hagn­aðar af hluta­bréfum og ef hlut­hafar séu erlendis sé afar ólík­legt að skattur af sölu­hagn­aði rati í fjár­hirslur íslenska rík­is­ins. For­stjóri Kerecis hélt því fram að færa mætti rök fyrir því að skatt­tekjur af söl­unni gætu dugað til vega­bóta til Ísa­fjarðar. Það er hæpið.
Greining

Einungis þriðj­ungur ætlar að kjósa rík­is­stjórn­ar­flokk­ana sem hafa hríð­fallið í vin­sældum

Tveir stjórn­ar­flokka hafa tapað um helm­ingi fylgis síns það sem af er kjör­tíma­bili og sá þriðji hátt í þriðj­ungi. Sam­an­lagt fylgi allra þriggja er ein­ungis 7,1 pró­sentu­stigi yfir fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem mælist með 26,1 pró­sent. Engin tveggja flokka stjórn er mögu­leg en stærstu miðju­flokk­arnir ættu að óbreyttu marga mögu­leika á stjórn­ar­myndun.

Mest lesið undanfarið ár