PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Góð kaup í Símanum...miðað við verðið á Vodafone

Kaup hóps fjárfesta á fimm prósent hlut í Símanum, fyrir 1.330 milljónir króna, hafa vakið athygli. Kjarninn greindi frá viðskiptunum með ítarlegum hætti í dag. Hópinn leiðir hollenski fjár­festirinn Bertrand Kan, sem er fyrrum yfirmaður hjá Morgan Stanley. Kan þekkir vel til Símans, en hann stýrði meðal annars söluferli hans árið 2005, þegar Síminn var einka­væddur, fyrir hönd Morgan Stanley....
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Vel gert Akureyri - betur má ef duga skal

Angela Merkel, kanslari Þýska­lands, lét hafa eftir sér 26. júní síðastliðinn að flótta­manna- og innflytjenda­vandinn sem nú væri á borði stjórn­málamanna, ekki síst tíðar ferðir fólks yfir Miðjarðar­hafið sem leitar betra lífs í Evrópu, væri langsamlega stærsta mál sem hún hefði staðið frammi fyrir í sinni tíð sem leiðtogi Þýska­lands og þátt­takandi í stjórnmála­samvinnu Evrópu. Ekki efnahags­vandi Grikkja, sem á...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Árið 2007 er enn ferskt í minni - Hvernig mun gengi krónunnar þróast?

Það segir sitt um átökin sem einkenna umræðu um peninga­stefnuna í landinu og ákvörðun vaxta á hverjum tíma, að nú er umræðan um að árið 2007 sé að koma aftur orðin sprell­lifandi. Þetta var eitt af því sem var til umræðu á kynningar­fundi Peninga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands í gær, vegna þeirrar ákvörðunar að hækka stýri­vexti um 0,5 prósentu­stig, upp í 5,5...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Gleðiefni að skuldirnar séu að minnka - Eyðslan á að vera þrætuepli

Það er gleðilegt að skuldir ríkisins séu að minnka. Það hefur verið eitt helsta verkefni stjórn­málamanna frá hruni fjármála­kerfisins að ná tökum á ríkis­fjármálunum. Frá því árið 2012 hafa skuldir ríkisins minnkað um 309 milljarða króna og eftir uppkaup ríkissjóð á eigin bréfum, útgefnum í Bandaríkja­dölum, munu þær verða 1.403 milljarðar, eða sem nemur 63,8 prósent af árlegri lands­framleiðslu. Þetta...
PistillÚtflutningur til Rússlands

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Þegar Ísland lét hugsjónir ekki stöðva viðskipti við Ítalíu Mússólínis

Umræðan um innflutnings­bann Rússlands gegn Íslandi síðustu daga hefur verið frekar sorgleg. Andstæðingar stuðnings Íslands við viðskipta­þvinganirnar tína til söguleg dæmi sem eiga að styðja þá sýn að Ísland eigi bara að hugsa um eigin hagsmuni. Sagan ætti hins vegar þvert á móti að sýna okkur hið gagnstæða.
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Uppfyllir Ísland Maastricht skilyrðin?

Þegar umræða um inngöngu í Evrópu­sambandið og upptöku evru stóð sem hæst í kjölfar efnahags­hrunsins 2008 bentu margir á að Ísland gæti seint, ef nokkurn tímann, uppfyllt Maastricht-skilyrðin svokölluðu um verðlags- og gengis­stöðugleika auk ákjós­an­legrar skulda­stöðu hins opinbera. Skilyrðin þurfa ríki Evrópu að uppfylla ætli þau sér að taka upp evru. Þótt afar ólíklegt sé að Íslandi taki upp evru...
Pistill

Ritstjórn Kjarnans

Er atkvæði til Ásmundar Friðriks­sonar atkvæði til Pútíns?

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, hefur afdráttar­laust lýst því yfir að Ísland eigi að hætta stuðningi sínum við refsi­að­gerðir Banda­ríkjanna, ESB og fleiri ríkja gegn vald­stjórninni í Rússlandi. Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem Ásmundur fer fram á slíkt, hann hefur kallað eftir því opinber­lega áður að Íslendingar reyni að koma Rússum til hjálpar með einhverjum hætti í efna­hag­skröggum...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hlut­hafarnir sýni samfélags­lega ábyrgð

Innflutnings­bann Rússa er bylmings­högg fyrir íslenskan sjávar­útveg og virðist koma íslenskum stjórn­völdum gjör­samlega í opna skjöldu, í það var engin áætlun til um hvernig ætti að bregðast við ef markaðir í Rússlandi myndu lokast. Þá fullyrti Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrir­tækja í sjávar­útvegi, að stjórn­völd hafi verið með rangar tölur og að hags­munirnir hafi verið vanmetnir um næstum tíu...
Pistill

Guðmundur Snæbjörnsson

Velkomin til Ólafs­víkur

Lögreglan blikkaði okkur. Við litum hissa fyrir aftan okkur, og sáum þar rauð og blá ljósin. Bíllinn nam staðar fljótt. Við vorum þrír í honum. Ég var í aftur­sætinu, tveir vinnu­félagar mínir í fram­sætunum. Ökumaðurinn í stein­grárri hettu­peysu og metal­hljóm­sveit­arbol, hann var með hrafnsvart hár sem náði niður að baki og fölleitur. Lögreglu­maðurinn kom að bílnum bílstjóra­megin og bauð góðan...
Pistill

Ágúst Már Ágústsson

Þjóðar­hagsmunir Íslands í Úkraínu­deilunni

Í þeim umræðu­stormi sem blásist hefur upp í kjölfar ákvörðunar rússneskra stjórn­valda í síðustu viku að setja innflutnings­bann á sjávar- og landbúnaðar­afurðir frá Íslandi hefur utan­ríkis­ráðuneytið legið undir þungri gagnrýni. Utan­ríkis­þjónustan er ýmist sögð óvandvirk, ófag­mannleg eða tagl­hnýt­ingur Evrópu­sambandsins og Banda­ríkjanna. Gagn­rýnendur vilja helst að stefnu stjórn­valda verði snúið við til að tryggja útflutnings­markaðinn í Rússlandi. Með þessu vinna þeir...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Af hverju er fyrirtæki í eigu ríkisins að úthluta samfélags­styrkjum?

Í liðinni viku var greint frá því að Isavia hafi úthlutað styrkjum úr samfélags­sjóði sínum fyrir fyrri hluta ársins 2015. Fjölmargar umsóknir bárust en einungis var hægt að verða við beiðnum um styrki til 21 aðila. Alls úthlutaði Isavia 4.755.000 krónum til þeirra. Á meðal styrkhafa voru ýmis góðgerðar­félög, íþrótta­félög á Suðurnesjum og einstak­lingar. Í tilkynningu um málið er haft...
Pistill

Guðmundur Guðmundsson

Bragð er að þá bankinn finnur

Leigu­markaðurinn er fátækra­gildra nútímans. Nóg er um nefndir, en lítið sem ekkert um efndir af hálfu stjórn­valda. Þetta var efnisleg niður­staða í nýlegu útvarps­viðtali við Hagfræðing Lands­bankans. Umfjöllunar­efnið var Íslenskur leigu­markaður. Útvarpið tók nýlega annað viðtal við ung hjón. Hún lögfræðingur í fastri vinnu, hann blaða­maður. Þau eru hnotskurnar­dæmi um stöðu ungs fólks á íslenskum húsnæðis­markaði. Þau eiga tvö börn...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hlut­hafarnir geta vel stutt við félögin - Hvað ákveða þeir að gera?

Viðskipta­bann Rússa, sem nú teygir anga sína til Íslands, er orðið að miklu hitamáli á hinu pólitíska sviði. Það kemur ekki mikið á óvart, þar sem miklir viðskipta­hagsmunir eru í húfi, eða sem nema um 30 milljörðum á ári, og eru nær öllu leyti tengdir stærstu sjávar­útvegs­fyrirtækjum landsins. Eins og fram kom í gær, á þessum vettvangi, þá yrði það...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Sigurður G., markaðs­misnotkunin og arðsemin af því að haga segli eftir vindum

Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson er mikið ólíkindatól. Hann talar tæpitungu­laust, er óhræddur að hjóla fast í manninn á opinberum vettvangi, er ekki alltaf að láta stað­reyndir þvælast fyrir sér og hefur tekið að sér að gæta hagsmuna ótrúlega fjöl­breytilegs hóps manna. Á milli þess sem hann tínir upp rusl af miklum móð samfélaginu öllu til heilla. Aðlögunar­hæfni Sigurðar G. að...

Mest lesið undanfarið ár