PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Ólafur Ragnar vildi ríkan vilja að baki tveggja eða þriggja fram­bjóðenda

Rúmur mánuður er nú liðinn frá því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti í nýárs­ávarpi sínu að hann hygðist ekki bjóða sig fram til forseta á ný. „Nú er góður tími fyrir þjóðina að ganga með nýjum hætti til ákvörðunar um forseta; sess Íslands og innviðir þjóð­lífsins eru traustari en um langan tíma,“ sagði hann meðal annars í ávarpinu...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Yfir­gengi­legt kæruleysi - Gott að það sé fordæmt

Umfjöllun Kastljóss og RÚV um farsíma­notkun atvinnu­bílstjóra, að undan­förnu, hefur verið sláandi. Kæru­leysið sem bílstjórar sýndu á þeim mynd­böndum, sem voru til umfjöllunar, var algjört, og eitthvað sem líkja má við tikkandi tíma­sprengju á vegum landsins. Það var einnig sláandi að sjá bílstjóra Strætó vera í símanum meðan hann var við stýrið með farþega í bílnum. Algjör­lega óboðlegt og ekki...
PistillBakherbergið

Ritstjórn Kjarnans

Kast­ljósið beinist að fjár­mögnun eigin bréfa - Innanmein sem óx og óx

Sigurjón Þ. Árnason, fyrrum banka­stjóri Lands­bankans, Ívar Guðjónsson, fyrrum forstöðu­maður eigin fjár­festinga Lands­bankans, Júlíus S. Heiðarsson, sem var sérfræðingur í sömu deild, og Sindri Sveinsson, sem starfaði við eigin fjár­festingar hjá Lands­bankanum, voru allir dæmdir sekir um markaðs­misnotkun í Hæstarétti 4. febrúar síðastliðinn. Án þess að farið sé út í málsatvik í smáatriðum að þessu sinni, þá beindust spjótin að...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Jákvætt skref hjá Reykja­nesbæ - Spurning um jafnræði?

Reykja­nesbær hefur náð samkomu­lagi við kröfuhafa Eignarhalds­félagsins Fasteignar ehf. samkvæmt tilkynningu frá bænum. Bæjar­yfirvöld í bænum hafa lengi barist fyrir því að fá hluta af skuldum bæjarins felldar niður, en í lok árs 2014 námu heildar­skuldirnar rúmlega 41 milljarði króna, og var skulda­hlutfallið um 250 prósent. Fróðlegt verður að sjá hvernig samkomulag bæjarins við Fasteign lítur út , því önnur...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Mikilvægt að styðja við hjálpar­starfið í nágranna­ríkjum Sýrlands

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætis­ráðherra, sat fund þjóðar­leiðtoga um sjötíu ríkja, sem ræddu málefni Sýrlands, í London. Ákveðið var að leggja til allt að tíu milljarða Bandaríkja­dala, rétt um 1.300 milljarða króna, til þess að vinna að eflingu hjálpar­starfs. Fram kom í máli Sigmundar Davíðs, í viðtali við RÚV , og flestir hefðu verið sammála um mikilvægi þess að efla hjálpar­starf...
Pistill

Ingi Freyr Vilhjálmsson

Hval­veiðar Íslendinga eru vonlaus iðnaður

Hval­veiðar Íslendinga munu hugsanlega heyra sögunni til eftir að Gunnar Bragi Sveinsson kynnir skýrslu sína um pólitískar afleiðingar hvalveiða fyrir Ísland. Vísinda­legu rökin, stofn­verndar­rökin, gegn hval­veiðum eru hins vegar gagnrýni­verð. Þessi rök eru grund­völlur pólitískra raka Bandaríkja­manna gegn veiðunum. En þó rökin gegn veiðum Íslendinga séu ekki góð þá eru þær vonlausar í heimi þar sem litið er niður á hval­veiðar og hvalaát og bara einn markaður er fyrir kjötið. Ingi F. Vihjálmsson ræðir hval­veiðar Íslendinga.
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Hvað ef Merkel hefði ekki beitt sér fyrir opnun Þýska­lands?

Nú berast af því fréttir frá Þýska­landi, að Angela Merkel, kanslari Þýska­lands, sé að berjast fyrir pólitískri framtíð sinni, vegna harðrar umræðu um flótta­menn. Um þetta má meðal annars lesa í alþjóðlegri útgáfu Spiegel. Merkel er sögð einangruð og eigi sér fáa stuðnings­menn meðal stjórn­málamanna í Þýska­landi. Mikil breyting hefur orðið á skömmum tíma. Frá því að Merkel beitti sér...

Mest lesið undanfarið ár