PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Kom Soros upp um sjálfan sig?

Viðtal við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknar­flokksins, á Útvarpi Sögu á miðvikudag hefur vakið verð­skuldaða athygli. Þar ræddi hann það sem þáttar­stjórnendur kölluðu „árásina“ á forsætis­ráðherrann fyrr­verandi fyrir fjórum mánuðum, þegar skjöl sem lekið hafði verið frá panamsku lögfræði­stofunni Mossack Fonseca sýndu tengsl Sigmundar Davíðs við félagið Wintris. Það er skráð til heimilis í skatta­skjólinu Bresku Jómfrúar­eyjunum, á yfir milljarð...
Kjaftæði

Margrét Erla Maack

Viðbrögð við viðbrögðum við viðbrögðum við...

Í síðustu viku varð mér á í messunni. Ég missti út úr mér ógeðs­legan brandara sem betur hefði átt heima í pistli sem þessum, í viðtali eða á uppistands­kvöldi en alls ekki í beinni útsendingu rétt fyrir frétta­lestur á Rás 2. Brand­arinn var útúr­snúningur á orðum Páleyjar Borgþórs­dóttur, lögreglu­stjóra í Vestmanna­eyjum. Fyrst hugsaði ég með mér „skilduð þið ekki djókið...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Leiða upplýsinga­fulltrúar til minna fylgis?

Þótt áherslur síðustu tveggja ríkis­stjórna landsins hafi verið afar ólíkar þá er þróun á ánægju kjósenda með þær það ekki. Ríkis­stjórn Jóhönnu Sigurðar­dóttur hóf sinn starfs­tíma með tæplega 57 prósent stuðning en hann féll ansi fljótt og fór mest niður í 22 prósent í heitustu Icesave-deilunum. Í síðustu könnun MMR fyrir kosningarnar 2013 studdu einungis 31,5 prósent fráfar­andi ríkis­stjórn. Ríkis­stjórn...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Konurnar útiloka samstarf við Sjálfstæðis­flokk, karlarnir ekki

Fréttir Kjarnans í gær um afstöðu annarra stjórn­málaflokka en þeirra sem sitja við völd gagnvart samstarfi við Sjálfstæðis­flokkinn eftir næstu kosningar vöktu töluverða athygli. Þar sögðu Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata, Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður VG, og Oddný Harð­ar­dótt­ir, for­maður Sam­fylk­ing­ar, allar að þeir útiloki sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn eftir næstu kosn­ing­ar. Ástæðan er sú að Sjálfstæðis­flokkurinn hafi lýst því yfir opinber­lega að...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Við hvern er Sigmundur Davíð að berjast?

Það verður erfiðara og erfiðara að ráða í ástandið á stjórnar­heimilinu. Eftir fordæma­laust uppþot í apríl, sem leiddi til afsagnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugs­sonar sem forsætis­ráðherra, náðu Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson að rétta fleyið af, meðal annars með því að lofa haust­kosningum, þótt stuðningur við ríkis­stjórnina mælist enn einungis 33,9 prósent. Þeir hafa síðan báðir ítrekað það margoft opinber­lega...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Af hverju eru svissnesk greiðslu­kort straujuð svona mikið á Íslandi?

Rannsóknar­setur versl­un­ar­innar greindi frá því í síðustu viku að erlend greiðslu­korta­velta hérlendis hefði aldrei verið hærri en í nýliðnum júní­mánuði. Þá voru erlend greiðslu­kort straujuð fyrir 26 milljarða króna. Í frétt setursins var einnig greint frá því að mestum peningum var að jafnaði eytt á greiðslu­kortum sem útgefin eru í Sviss. Alls var meðal­eyðsla á slíkt kort 245 þúsund krónur....
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Matur er menning

Ísland verður æ vinsælla meðal erlendra ferða­manna eins og mikið hefur verið rætt um. Með þessum aukna fjölda ferða­fólks hefur landslag verslunar og þjónustu breyst mikið undan­farin ár í miðbæ Reykja­víkur; stærsta ferðamanna­stað landsins. Slíkt á auðvitað einnig við um fleiri ferðamanna­staði. Með hverju hótelinu sem sprettur við Laugaveg verða til aukin tækifæri fyrir veitinga­staði, verslanir og þjónustu í næsta...
PistillPæling dagsins

Ritstjórn Kjarnans

Kosninga­skjálftinn

Átök milli ríkis­stjórnar­flokkanna hafa skotið laumulega upp kollinum annað veifið í gegn um kjör­tímabilið; sala Lands­bankans, Leið­réttingin, náttúru­passinn og kvóta­frumvarpið voru öll mál sem Sjálfstæðis­flokkur og Framsóknar­flokkur áttu erfitt með að koma sér saman um. En flokkarnir reyndu samt sem áður að halda átökunum á bak við tjöldin og náðu, á nokkuð aðdáunar­verðan hátt, að bera þau ekki á torg....

Mest lesið undanfarið ár