Fékk Michelin-stjörnu og varð atvinnulaus ári síðar

Ragnar Eiríks­son er einn fræg­asti kokkur lands­ins og hefur skapað sér nafn fyrir ein­staka notkun sína á óvenju­legum íslenskum hrá­efnum. Fyrstur Íslend­inga fékk hann Michelin-stjörnu en rúmu ári síðar var hann orð­inn atvinnu­laus í fall­völtum bransa, þar sem eng­inn vildi ráða hann. Í sumar lét hann lang­þráðan draum ræt­ast með Vín­stúkunni Tíu sopum á Lauga­vegi, ásamt sam­starfs­mönnum sínum.

Fékk Michelin-stjörnu og varð atvinnulaus ári síðar
Sáttur í dag Und­an­farin ár hafa verið rús­sí­ban­areið í lífi Ragnars, sem vann svo mikið á tíma­bili að lítið var eftir af per­sónu­elika hans. Honum líður mun betur í dag, á bak­við afgreiðslu­borðið á Vín­stúkunni Tíu sopum, en sér ekki eftir neinu, enda sé þetta allt saman dýr­mæt reynsla. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ragnar Eiríks­son, eða Raggi Eiríks eins og hann er gjarnan kall­aður, situr á hót­eli við Hlemm þegar ég hitti hann í kaffi og spjall. Hann lítur út eins og danskur hip­ster, með úfið skegg og hár, gler­augu, húfu og í vesti, hæværskur en hlát­ur­inn aldrei langt undan. „Ég man nákvæm­lega dag­setn­ing­una þegar ég byrj­aði í veit­inga­brans­anum. Það var 15. maí 1997,“ segir Ragnar sposkur á svip. „Ég var búinn að reyna að vera í mennta­skóla en það gekk ekki alveg nógu vel af því ég kann ekki að læra. Ég var átján ára, það voru pró­flok og ég fór þann sama dag að vinna á Pizzahúsinu að gera pitsur og ég hef verið í veit­inga­brans­anum síðan,“ útskýrir hann og segir ástæðu þess kannski ekki endi­lega hafa verið brenn­andi áhuga á matnum sjálfum heldur hafi hann fallið fyrir hrað­anum, spenn­unni, adrena­lín­inu og atgang­inum í eld­hús­inu. „Það er kannski ein­hver birt­ing­ar­mynd af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár