Mynd: Heiða Helgadóttir

Þú getur selt sömu manneskjuna mörgum sinnum

Lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, bendir á að hlut­fall bæði þolenda og ger­enda í heim­il­is­of­beld­is­málum sé hærra meðal fólks af erlendum upp­runa en hjá öðrum. Sú stað­reynd gefi fullt til­efni til þess að gefa hópnum betri gaum.

„Á Íslandi er um það bil 13 pró­sent íbúa með erlent rík­is­fang, en það sama á við um og yfir 20% þolenda og ger­enda í heim­il­is­of­beld­is­málum sem koma inn á borð Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Það geta verið margar ástæður fyrir því. Það getur til dæmis verið skortur á bak­landi og svo getur verið mikið álag að flytja á milli landa. Við þekkjum ekki nákvæm­lega ástæð­urnar en þetta segir okkur að þetta sé hópur sem við þurfum sér­stak­lega að passa upp á,“ segir Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir, lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hún bætir því við að á vett­vangi lög­regl­unnar eigi sér nú nokkur umræða stað, um stöðu kvenna af erlendum upp­runa. „Í óform­legum sam­tölum höfum við verið að ræða hvort hægt sé að beina fók­u­snum betur að konum af erlendum upp­runa, til að styrkja stöðu þeirra. Þegar við skoðum hversu hátt hlut­fall bæði þolenda og ger­enda af erlendum upp­runa er, sjáum við að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár