Föst í hjóna­bandi Þegar Lindah missti mann­inn sinn sá hún enga leið út úr fátækt­inni. Hún ákvað hún að yfir­gefa heima­land sitt og ráð­gerði að borga íslenskum manni fyrir að gift­ast sér. Eftir gift­ing­una sner­ist þeim manni hins vegar hugur og krafði Linduh um að vera í hjóna­bandi með honum. Ef hún gerði það ekki myndi hann til­kynna hana til Útlend­inga­stofn­unar og láta senda hana úr landi. Sviðsett mynd. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég var nútímaþræll“

Þetta var eins og að verða nauðgað, aftur, aftur og aftur, segir kona af afrískum upp­runa sem var haldið fang­inni í hjóna­bandi með stöð­ugum hót­unum um brott­vísun. Hún lét þving­un­ina og ofbeldið yfir sig ganga í nokkur ár, þangað til hún var orðin viss um að fá rík­is­borg­araétt á Íslandi.

Fyrir nokkrum árum varð þrí­tug móðir frá litlu þorpi í Afríku fyrir því óláni að missa eig­in­mann sinn af slys­förum. Saman áttu þau ungan son, konan var atvinnu­laus og mögu­leikar hennar til að tryggja sjálfri sér og syni sínum öruggt líf voru mjög tak­mark­aðir. Konan, sem hér er kölluð Lindah, hafði tengsl við Ísland í gegnum fjöl­skyldu­með­lim og ákvað með sjálfri sér að leggja allt í söl­urnar til að flytja þangað. „Ég átti ekk­ert líf í Afríku. Það var engin fram­tíð fyrir okkur þar.“

Lindah fór króka­leiðir til að fá lán­aða pen­inga fyrir flug­mið­anum til Íslands, hún seldi allar eigur sínar, kom syni sínum fyrir hjá fjöl­skyldu sinni og hugs­aði með sér að hún myndi fá hann til sín eftir nokkra mán­uði, kannski í eitt ár í mesta lagi. Hún hafði fengið vega­bréfs­á­ritun sem gilti í tvo mán­uði en hafði hins vegar ekki í hyggju að snúa aftur. Á …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár