0,1 prósentið: 300 manns fengu 46 milljarða í fyrra

Íslend­ing­ur­inn sem græddi mest árið 2018 fékk jafn mikið og mann­eskja á með­al­launum myndi vinna sér inn á 254 árum.

0,1 prósentið: 300 manns fengu 46 milljarða í fyrra
0,1 pró­sentið Hópurinn sam­anstendur að miklu leyti af eig­endum og stjórn­endum fyr­ir­tækja, útgerð­ar­mönnum, banka­mönnum, fjár­festum og fólki sem seldi hluta­bréf í fyr­ir­tækjum fyrir umtals­verða fjár­muni í fyrra.

Tekju­hæstu 300 Íslend­ing­arnir fengu sam­tals 46 millj­arða í heild­ar­tekjur árið 2018 og greiddu 26 pró­sent af þeim í skatt sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Stundin tók saman upp úr álagn­ing­ar­skrá rík­is­skatt­stjóra.

Fram­telj­endur á skatt­grunn­skrá eru um 300 þús­und tals­ins. Af þeim 46 millj­örðum sem runnu til 300 tekju­hæstu skatt­greið­end­anna voru 76 pró­sent í formi fjár­magnstekna sem báru 22 pró­senta skatt. Tekju­skatt­byrði fólks sem til­heyrir 0,1 pró­sent­inu var að með­al­tali 27,7 pró­sent árið 2018.

Hópurinn sam­anstendur að miklu leyti af eig­endum og stjórn­endum fyr­ir­tækja, útgerð­ar­mönnum, banka­mönnum, fjár­festum og fólki sem seldi hluta­bréf í fyr­ir­tækjum fyrir umtals­verða fjár­muni í fyrra. Þá eru læknar og lög­menn áber­andi á list­anum og fólk sem erft hefur miklar eignir. Um er að ræða 238 karla og 62 konur, en alls var bein tekju­skatt­byrði hóps­ins 26 pró­sent.

Að meðaltali 153 milljóna árstekjur

Álagn­ing­ar­skrár sem gerðar eru aðgengi­legar hjá rík­is­skatt­stjóra einu sinni á ári geyma ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Tekjulistinn 2019

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár