Mælir með hjóla­klúbbum Björk mælir ein­dregið með því að þeir sem hafi áhuga á hjól­reiðum finni sér hjóla­klúbb, en fjöl­margir hjóla­klúbbar eru starf­ræktir um allt land. Vill hún meina að þeir séu góðar upp­eld­is­stöðvar fyrir þá sem eru að byrja og vilja læra í góðum félags­skap. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hjólreiðar eru hið nýja golf

„Það er hægt að gera svo miklu meira í hjól­reiðum en bara að fara út að hjóla. Hjól­reiðar geta orðið þín æfing, lífs­stíll, og opnað á ótrú­leg ævin­týri. Ný leið til þess að kanna heim­inn,“ segir Björk Krist­jáns­dóttir hjól­reiða­kona. Það sér vart fyrir end­ann á vin­sældum hjól­reiða á Íslandi og er hjól­reiða­menn­ingin á Íslandi í stöðugri og jákvæðri þróun þar sem sam­spil hjól­reiða­manna og ann­arra í umferð­inni fer sífellt batn­andi. Þetta er jákvæð þróun þar sem hjól­reiðar eru vist­vænn ferða­máti, einnig þar sem þær stuðla að heil­brigðum lífs­stíl og úti­vist.

„Að hjóla er umhverf­is­vænt, maður fær góða hreyf­ingu og úti­vist, allt í einu. Ég myndi mæla með því að nota hjólið eins mikið og mögu­legt er,“ segir Björk Krist­jáns­dóttir. 

Fjöl­margir hjóla­við­burðir fara fram ár hvert og bera þess vitni hversu vin­sælar hjól­reiðar eru orðnar á Íslandi. Margir sem taka þátt í þessum hjól­reiða­við­burðum og keppnum eru ekki endi­lega að taka þátt til þess að vinna heldur setja þeir sér þetta sem per­sónu­lega áskorun. Einn slíkur við­burður er WOW Cyclothon sem haldin verður í átt­unda sinn á þessu ári og fer af stað þann 25. júní. Hjólaðir eru 1358 km hring­inn í kringum landið á innan við 72 klukku­tímum. Það eru nokkrir flokkar í boði. Ein­stak­lings­flokkur þar sem þú hjólar sjálfur allan hring­inn, fjög­urra manna lið og svo lið með tíu þátt­tak­endur. Þannig eru margir ginntir í að byrja að hjóla af vinum eða sam­starfs­fé­lögum og smit­ast af hjóla­bakt­er­í­unni í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár