Sextán ára stúdent að klára áfanga í háskóla

Ásþór Björns­son er 16 ára gam­all strákur úr Breið­holt­inu. Hann sker sig þó úr hópi jafn­aldra sinna að því leyti að hann hefur þegar hafið háskóla­göngu sína.

Sextán ára stúdent að klára áfanga í háskóla

Ásþór Björns­son er eng­inn venju­legur sextán ára ung­lingur. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann lokið stúd­ents­prófi, tekið áfanga í háskóla, stofnað fyr­ir­tæki og sinnt rétt­inda­bar­áttu, sam­hliða því sem hann hefur lagt stund á hljóð­færa­nám og spil­aði um tíma með úrvals­hópi Körfuknatt­leiks­sam­bands Íslands. Þá er hann bæði í lands­lið­inu í keppn­is­for­ritun og vél­menna­for­ritun. 

Lauk framhaldsskóla á tveimur árum

Í Tækni­skól­anum er boðið upp á náms­braut­ina K2, þar sem áhersla er lögð á tækni og vís­indi. Þangað skráð­ist Ásþór haustið 2017 og útskrif­að­ist á dög­unum með stúd­ents­próf. Almennt er miðað við að það taki þrjú ár að ljúka nám­inu, en vegna þess að Ásþór tók síð­ustu tvö árin saman, auk þess sem hann lauk 9. og 10. bekk grunn­skóla á einu ári, útskrif­að­ist Ásþór ekki nema sextán ára gam­all, fæddur 25. júlí árið 2002. 

Hann lét þó ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár