Glerþakið er lægra fyrir erlendar konur

Nýr for­maður Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands, Tatjana Latinovic, er með fleiri járn í eld­inum en vel­flestir aðrir. Auk þess að stýra hinu rót­gróna félagi sem Bríet Bjarn­héð­ins­dóttir og fleiri kjarna­konur stofn­uðu fyrir 112 árum er Tatiana yfir­maður hug­verka­sviðs Össurar, situr í Inn­flytj­enda­ráði og hvílir hug­ann með því að þýða íslenskar bók­mennir yfir á serbnesku og króat­ísku.

Glerþakið er lægra fyrir erlendar konur
Fetar í fót­spor Bríetar Tatjana Latinovic er fyrsta konan af erlendum upp­runa til að gegna for­mennsku í Kven­rétt­inda­fé­lagi Íslands. Mynd: Davíð Þór

Tatjana Latinovic er fyrsti for­mað­ur­inn af erlendum upp­runa í 112 ára sögu Kven­rétt­inda­fé­lags Íslands. Þó að hún sé nýtekin við for­mennsku er hún langt frá því að vera að stíga sín fyrstu skref í bar­átt­unni fyrir bættum mann­rétt­indum, sem hún hefur sinnt drjúgan hluta lífs síns en mark­visst frá því árið 2003, þegar hún var á meðal stofn­enda Samtaka kvenna af erlendum upp­runa á Íslandi. Frá árinu 2016 hefur hún verið vara­for­maður í stjórn Kven­rétt­inda­fé­lags­ins. Tatjönu þykir það rök­rétt fram­hald að hún, með sína reynslu, skuli vera sest í for­manns­stól Kven­rétt­inda­fé­lags­ins. Þá þykir henni vænt um að vera fyrsta konan af erlendum upp­runa til að verma hann. „Þegar við ákváðum að stofna Samtök kvenna af erlendum upp­runa þótti okkur rétt að hafa sér­sam­tök fyrir okkur, til að gefa erlendum konum enn meiri rödd, þrátt fyrir að kvenna­hreyf­ingin hafi tekið okkur opnum örmum. Eftir að hafa starfað á þeim vett­vangi fannst …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár