Vakningaralda en ekki minni losun skaðlegra lofttegunda

Íslend­ingar hafa aukið veru­lega útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á meðan aðrar þjóðir minnka. Samhliða auk­inni umræðu um lofts­lags­breyt­ingar hefur ekki verið mikil áhersla hér­lendis á raun­veru­legri tak­mörkun skað­ans.

Vakningaralda en ekki minni losun skaðlegra lofttegunda

Fólk er að vakna til vit­undar um ábyrgð sína á þeirri alvar­legu stöðu sem er í lofts­lags­málum. Sífellt fleiri huga að því að minnka vist­spor sitt með því að breyta lífs­stíl sínum. Í könnun sem Gallup gerði í des­em­ber síð­ast­liðnum sögð­ust tæp­lega 50% aðspurðra nokkuð hafa breytt neyslu­venjum í dag­legum inn­kaupum til að minnka umhverf­is­á­hrif sín. Tæplega 6% sögð­ust hafa breytt þeim mikið og um þriðj­ungur þeirra sem tók þátt sögð­ust lítið hafa breytt neyslu­venjum sínum. Flestir telja að umhverf­is­vernd­ar­sam­tök myndu helst ná árangri í að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Þar á eftir voru háskólar nefndir og svo almenn­ingur.

Mikil umræða er einnig um lofts­lags­neyð­ina á sam­fé­lags­miðlum. Síðum á Facebook þar sem lofts­lags­málin eru í brennid­epli hefur fjölgað mikið síð­ustu miss­eri. Á þessum síðum er oft líf­leg umræða um nýj­ustu rann­sóknir sem tengj­ast hlýnun jarðar, þar birtir fólk fréttir meðal ann­ars af mæl­ingum á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, bráðnum jökla, útrým­ingu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár