Börn berjast fyrir jörðinni: „Miklu mikilvægara en að fá skróp“

Skipu­leggj­endur mót­mæla ungs fólks og barna gegn mann­gerðri ham­fara­hlýnun jarðar vilja að stjórn­völd lýsi yfir neyð­ar­á­standi og hrindi af stað rót­tækum breyt­ingum.

Börn berjast fyrir jörðinni: „Miklu mikilvægara en að fá skróp“

Boðað er til alheims­verk­falls fyrir lofts­lagið í annað sinn í dag. Í fyrsta alheims­verk­fall­inu 24. mars mót­mæltu 1,6 millj­ónir manna aðgerð­ar­leysi í lofts­lags­málum í yfir 2.000 borgum og bæjum í 125 löndum.

Greta Thunberg mætir í sitt fer­tug­asta lofts­lags­verk­fall í dag, 24. maí, en yfir­stand­andi hrina lofts­lags­verk­falla kom til vegna hennar hvatn­ingar. Greta fór í sitt fyrsta lofts­lags­verk­fall fyrir utan þing­hús Svía 20. ágúst í fyrra. For­eldrar hennar reyndu að tala hana af því, bekkj­ar­fé­lagar hennar neit­uðu að fara með henni. Fólk sem gekk fram hjá henni leit hana vor­kunn­ar­augum, 15 ára stelpuna sem sat ein og mót­mælti með skilti sem á stóð „skol­strejk för klima­tet“, eða skóla­verk­fall fyrir lofts­lagið.

Það hefði ekki getað gert sér í hug­ar­lund að stúlkan sem það gekk fram hjá myndi átta mán­uðum síðar vera and­lit vonar, stað­festu og breyt­inga um heim allan. Greta Thunberg er and­lit alþjóð­legrar hreyf­ingar barna sem krefj­ast aðgerða og fram­tíðar. Hreyf­ingin Skóla­verk­fall fyrir lofts­lag­inu er ein stærstu umhverf­is­mót­mæli sem heim­ur­inn hefur séð.

Samsæriskenningar um Gretu

Eftir að Greta hlaut athygli umheims­ins fyrir aðgerðir sínar spruttu upp sam­sær­is­kenn­ingar á vafasömum frétta­síðum, þar sem hún var meðal ann­ars sögð hand­bendi auð­manns­ins George Soros. Fjallað hefur verið um Gretu með þessum hætti á ýmsum áróð­urs­síðum og jað­ar­frétta­síðum. Einnig hefur verið fjallað um hana hér­lendis, en á frétta­síðu Útvarps sögu var sagt að sam­tök fjár­mögnuð af Soros stæðu á bak­við „lofts­lags-Grétu“, að ESB hylli „grát­andi Grétu“ og í nafn­lausri grein í Við­skipta­blað­inu var hún sökuð um „ósk­hyggju“ og „áróður“ og sagt að „umhverf­isöfga­hópar“ hefðu fengið hana til liðs við sig vegna þess að hún væri „ein­hverft barn“.

Greta ThunbergÁkvað að fara í skóla­verk­fall í þágu þess að bjarga lofts­lagi jarðar.

Greta svar­aði sam­sær­is­kenn­ingum í færslu á Instagram á dög­unum þar sem hún lýsti því hvernig það var hennar eigin ákvörðun, en ekki ann­arra, að hefja mót­mæli gegn mann­gerðum lofts­lags­breyt­ingum og aðgerð­ar­leysis vegna þeirra.

Íslensk börn mótmæla

Á Aust­ur­velli safn­ast íslensk börn saman hvern ein­asta föstu­dag klukkan 12, til að standa með Gretu, sjálfum sér og jörð­inni.

Það var Lands­sam­band íslenskra stúd­enta í sam­vinnu við Stúd­enta­ráð Háskóla Íslands, Unga umhverf­is­sinna og Félag íslenskra fram­halds­skóla­nema sem stóðu að fyrsta verk­fall­inu hér á landi. „Við tókum okkur saman, LÍS og Stúd­enta­ráð, settum okkur í sam­band við Félag íslenskra fram­halds­skóla­nema og Unga umhverf­is­sinna. Við gerðum Facebook-við­burð, skelltum í skilta­gerð og létum vaða. Svo mættu krakk­arnir,“ segir Elsa María Guðlaugs Drífu­dóttir, for­seti LÍS. Elsa María, ásamt Jónu Þóreyju Pét­urs­dóttur, for­seta Stúd­enta­ráðs, Sigurði Lofti Thorlacius, rit­ara Ungra umhverf­is­sinna, Eyrúnu Didziokas, 15 ára nema í Álf­hóls­skóla, og Eiði Breka Bjark­ar­syni, 12 ára nem­anda í Mela­skóla, sett­ust niður með blaða­manni Stund­ar­innar til að ræða lofts­lags­verk­föll, fram­tíð­ar­sýn, ótta og vonir.

Framtíðin í húfi

Mest hafa 2.000 manns mætt í skóla­verk­fall á Aust­ur­velli en 100 mættu á það fyrsta. Sigurður segir verk­föllin vera til þess að krefja stjórn­völd í hverju landi fyrir sig um að ráð­ast í frek­ari aðgerðir í lofts­lags­málum. Með verk­föll­unum segir hann að krakkar sýni í verki að þeim sé ekki sama um lofts­lags­vána sem nú ríkir og að mál­efnið sé þeim mik­il­vægt. Eyrún tekur undir það með honum og bætir við: „Þetta er mik­il­væg leið fyrir okkur sem erum börn, sem hafa ekki kosn­inga­rétt og þess vegna engin póli­tísk völd til að hafa áhrif, áhrif á fram­tíð­ina okkar. Þetta er okkar fram­tíð.“

„Þetta er okkar fram­tíð.“

Elsa telur börn falla í bak­grunn í sam­fé­lags­legri umræðu. „Á lofts­lags­mót­mæl­unum hafa börnin tæki­færi til að nota sína lýð­ræð­is­legu rödd. Á mót­mæl­unum fá þau tæki­færi til að láta taka sig alvar­lega, þau fá tæki­færi til að varpa ljósi á að váin muni hafa mest áhrif á þau, á þeirra kyn­slóð, ekki kyn­slóð­ina sem tekur allar ákvarð­an­irnar.“

Fullorðna fólkið bregst misjafnlega við

Eldri kyn­slóðin, for­eldrar þeirra, kenn­arar og ætt­ingjar, hafa brugð­ist við aðgerðum þeirra með mis­mun­andi hætti. „Það eru skiptar skoð­anir á þessu í kringum mig. Ég á tvær mömmur, önnur þeirra er mjög fylgin þessu en hin ekki. Ég held að full­orðna fólkið geri sér ekki almenni­lega grein fyrir því að okkur er alvara með þetta en það eru þau sem taka þetta ekki nógu alvar­lega,“ segir Eyrún.

Jóna tekur undir og skýrir frá því að í sam­tölum sem hún hefur átt við krakka sem mæta á mót­mælin hafi ýmis­legt komið í ljós. „Ég hef heyrt af kenn­urum sem taka því sem per­sónu­legri árás að krakk­arnir skrópi í skól­anum. Ég hef líka heyrt um kenn­ara sem taka fyrir það þegar börn í kennslu­stundum biðja um að fá að ræða lofts­lags­mál og segja þeim að vera bara bjart­sýn. Svona er umræðan í sumum skólum.“

Í skól­anum hjá Eyrúnu er ímynd þeirra sem skrópa slæm og mæt­ingin á mót­mælin því dræm. „Í mínum skóla er léleg mæt­ing og hefur alltaf verið. Það er vegna þess að það er svo slæm ímynd tengd því að skrópa. Það skiptir svo miklu máli hvernig kenn­arar og for­eldrar tala um þetta, það sem þau segja hefur áhrif á okkur. Ég veit um nokkra krakka sem vilja mæta en vilja ekki fara á móti full­orðna fólk­inu. En mér finnst að krakk­arnir ættu að skrópa, þeir þurfa að átta sig á því hvað er í húfi. Það að mæta á þetta verk­fall er miklu mik­il­væg­ara í stóra sam­heng­inu en að fá skróp. Ef við gerum ekk­ert í lofts­lags­málum verður mennt­unin einskis virði.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamfarahlýnun

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár