Góðar mæður, slæmar mæður og saklaus börn

Öll umræða um þung­un­ar­rof er nátengd hug­myndum fólks um móð­ur­eðlið – hvernig konur eigi að vera og hvaða til­finn­ingar þær eigi að bera í brjósti. Þrjú þemu eru áber­andi í orð­ræð­unni: Góðar mæður sem vilja ganga með og eiga börn sín, slæmar mæður sem hafna börnum sínum og eyða þeim og sak­laus fóstur sem eru per­sónu­gerð og kölluð börn, því sem næst frá getn­aði.

Góðar mæður, slæmar mæður og saklaus börn
Hissa á umræð­unni Sunna vann grein­ingu á orð­ræðu um þung­un­ar­rof í Bret­landi fyrir rúm­lega ára­tug. Á þeim tíma hafði hún orð á því að slík orð­ræða gæti aldrei komið upp á Íslandi. Opinber umræða síð­ustu vikna um þung­un­ar­rof hér á landi kom henni því veru­lega á óvart. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fyrir ell­efu árum lá fyrir breska þing­inu frum­varp sem ætlað var að þrengja lög um þung­un­ar­rof í Bret­landi, stytta tímara­mmann sem konur hefðu til að fram­kvæma það úr 24 vikum í 20 eða 22 vikur. Laga­breyt­ingin, sem náði raunar á end­anum ekki fram að ganga, olli hins vegar heitum umræðum í sam­fé­lag­inu og mörg hund­ruð greinar um þung­un­ar­rof birt­ust í blöðum og tíma­ritum. Ein þeirra sem fylgd­ist grannt með umræð­unni var Sunna Sím­on­ar­dóttir, aðjúnkt í félags­fræði við HÍ, sem á þeim tíma var í meist­ara­námi í kynja­fræði við Háskól­ann í Leeds. „Þessi umræða heltók mig, því það voru svo margir snertifletir á móð­ur­hlut­verk­inu ann­ars vegar og hins vegar á umræð­unni um þung­un­ar­rof,“ segir Sunna, sem sjálf var þá nýorðin móðir, upp­tekin af því hlut­verki og hug­myndum tengdum móð­ur­hlut­verk­inu. Einmitt á þessum tíma var hún í því ferli að velja sér við­fangs­efni fyrir loka­verk­efni sitt og tók þá ákvörðun um að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár