Ungt fólk í vesturbæ og miðbæ mengar mest

Orðið flug­skömm heyr­ist æ oftar og bendir til þess að fleiri geri sér nú grein fyrir því hve mik­illi mengun það veldur að ferð­ast með flugi. Flug­skömmin virð­ist enn ekki hrjá ungt fólk í vest­ur­bænum og í miðbæ Reykja­víkur, sem flýgur mun oftar til útlanda en jafn­aldrar þeirra í öðrum hverfum.

Ungt fólk í vesturbæ og miðbæ mengar mest
Áróra og Michal Um þessar mundir vinnur vís­inda­fólk við umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði­deild Háskóla Íslands að viða­mik­illi rann­sókn á neyslu­tengdri losun höf­uð­borg­ar­búa á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum, svoköll­uðu kolefn­is­spori. Áróra Árna­dóttir og Michal Czepkiewicz eru á meðal rann­sak­enda.

„Mér þykir leitt að geta ekki verið með ykkur í dag, en ég ferð­ast ekki með flug­vélum og gat því ekki komið.“ Svona hófst ávarp Gretu Thunberg sem sýnt var á stórum skjá á nor­rænni ung­menna­ráð­stefnu um sjálf­bæran lífs­stíl í Hörpu í Reykja­vík fyrir nokkrum dögum. Greta, sem er sextán ára og býr í Svíþjóð, er orðin vel þekkt víða um heim fyrir að mót­mæla aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í lofts­lags­málum. Síðustu mán­uði hefur einnig vakið athygli að hún vill ekki ferð­ast með flug­vélum vegna mik­illar meng­unar sem slíkur ferða­máti veldur. Óvíst er hvort þessi ákvörðun Gretu muni hafa áhrif á annað ungt fólk sem fylgir henni að máli en stað­reyndin er þó sú að síð­ast­liðið ár fækk­aði flug­far­þegum lít­il­lega í Svíþjóð, heima­landi Gretu, í fyrsta sinn í ára­tugi. Á svip­uðum tíma varð orðið „flug­skömm“ til og fór að birt­ast í fréttum og á sam­fé­lags­miðlum.

„Mér þykir leitt að geta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár