Maðurinn sem herti Ísrael sigrar á ný

Benjamin Net­anyahu inn­leiddi harð­ari stefnu Ísraels gagn­vart Palest­ínu­mönnum og öðrum nágranna­þjóðum. Hann hefur heillað Banda­ríkja­menn með hreim sínum og er náinn banda­maður Donalds Trump.

Maðurinn sem herti Ísrael sigrar á ný

Benjamin Net­anyahu lýsti yfir sigri í kosn­ingum til ísra­elska þings­ins, eða Knesset, nú á dög­unum. Likud, flokkur Net­anyahu, tryggði sér 35 af 120 sætum til þings­ins en það mun telj­ast til besta árang­urs flokks­ins undir stjórn Net­anyahu. Helsti and­stæð­ingur Net­anyahu, Benny Gantz, fyrrum hers­höfð­ingi, sem fór fyrir Bláa og hvíta flokknum, tryggði sér 34 sæti. Net­anyahu er þó tal­inn lík­leg­astur til að mynda rík­is­stjórn þar í landi og þar með tryggja sér sæti for­sæt­is­ráð­herra fimmta kjör­tíma­bilið í röð en þá mun Net­anyahu taka fram úr David Ben-Gurion, lands­föð­urnum, sem sá for­sæt­is­ráð­herra sem hefur hvað lengst setið við völd í Ísrael. 

Kosn­ingar áttu að fara fram næsta haust en Net­anyahu flýtti þeim og af góðri ástæðu. Til stendur að kæra hann fyrir spill­ingu en hann vildi með öllu móti reyna að koma í veg fyrir að upp kæm­ist um ákær­urnar sem gæti haft í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár