Morð í Kongó og málaliðar á Íslandi

Tveir Norðmenn sátu í fang­elsi í átta ár fyrir morð í Kongó, en enn eru ekki öll kurl komin til grafar. Maðurinn sem réð þá til að berj­ast við sjó­ræn­ingja býr nú á Íslandi.

Síðasta haust kom kvik­myndin Mordene i Kongo út, sem segir sögu tveggja Norð­manna sem árið 2009 fengu sam­an­lagt níu líf­láts­dóma fyrir að hafa drepið mann í Kongó. Stór­leik­ar­inn Aksel Hennie leikur annan þeirra og lét fjar­lægja úr sér tennur, fékk sér botox og missti 15 kíló til að leika fang­ann. Myndin kost­aði um 700 millj­ónir íslenskra króna í fram­leiðslu en ekki eru allir á eitt sáttir við afrakst­ur­inn. Myndin hefur fengið mis­jafna dóma, hand­rits­höf­und­ur­inn hætti í miðjum klíðum og hót­anir voru uppi um lög­sókn. En hvað var það eig­in­lega sem gerð­ist í Kongó fyrir rétt tæpum tíu árum?

Sjálfir sögð­ust menn­irnir tveir ein­ungis hafa verið í skemmti­ferð í land­inu og að ókunn­ugir menn hafi skotið bíl­stjór­ann þeirra, Abedi Kasongo, á meðan þeir migu í veg­ar­kant­inum. Tveir aðrir far­þegar í bílnum segja hins vegar að þeir hafi sjálfir myrt bíl­stjór­ann. Kasongo lét eftir sig ekkju og sex börn og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár