0,1 prósentið á Íslandi: 330 manns fengu 60 milljarða á einu ári

Tekju­blöðin sem gefin hafa verið út und­an­farin ár und­an­skilja fjár­magnstekjur og gefa þannig bjag­aða mynd af tekju­dreif­ing­unni á Íslandi, einkum kjörum og skatt­byrði hinna tekju­hæstu. 60 millj­arðar runnu til 330 manna hóps árið 2016 en þar af voru 86 pró­sent fjár­magnstekjur og báru 20 pró­senta skatt. Alls var skatt­byrði 0,1 pró­sents­ins um 23 pró­sent.

Tekju­hæstu 330 Íslend­ing­arnir fengu sam­tals 60 millj­arða í heild­ar­tekjur árið 2016 og greiddu af þeim 23,3 pró­senta skatt. Alls 86 pró­sent tekn­anna voru fjár­magnstekjur og báru 20 pró­senta skatt en sam­tals runnu um 14,2 millj­arðar af tekjum fólks­ins í rík­is­sjóð. Hópurinn sam­anstendur að miklu leyti af eig­endum og stjórn­endum fyr­ir­tækja, útgerð­ar­mönnum, banka­mönnum, fjár­festum og fólki sem seldi hluti í fyr­ir­tækjum fyrir umtals­verða fjár­muni árið 2016. Þá eru læknar og lög­menn áber­andi á list­anum og fólk sem erft hefur miklar eignir.

Hér á næstu blað­síðum eru birtar upp­lýs­ingar um launa­tekjur og fjár­magnstekjur tekju­hæsta 0,1 pró­sents­ins á Íslandi og fjallað stutt­lega um bak­grunn margra þeirra sem til­heyra hópnum. Byggt er á nýj­ustu ítar­legu upp­lýs­ing­unum um tekjur Íslend­inga sem til­tækar eru, end­an­legri skatt­skrá rík­is­skatt­stjóra fyrir árið 2017 sem gerð var opin­ber síð­asta vor og sýnir allar skatt­greiðslur ein­stak­linga vegna árs­ins 2016.

Upplýsingavef lokað að kröfu Persónuverndar

Stundin sótti upp­lýs­ing­arnar af vefnum Tekjur.is sem fór í loftið þann 12. októ­ber 2018 og hafði að geyma upp­flettan­leg gögn um launa- og fjár­magnstekjur allra full­orð­inna Íslend­inga.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­sonvar lög­maður þeirra sem stóðu að vefnum Tekjur.is og kom fram fyrir hönd þeirra í fjöl­miðlum.

Vefnum var lokað að kröfu Per­sónu­verndar þann 28. nóv­em­ber, en emb­ættið taldi ábyrgð­ar­að­ila gagna­grunns­ins bresta heim­ild til vinnslu per­sónu­upp­lýs­ing­anna, meðal ann­ars vegna þess að lög­gjaf­inn hefði aldrei gert ráð fyrir að skatt­skrár yrðu gerðar almenn­ingi aðgengi­legar í „raf­rænum gagna­grunni“. Fyr­ir­tæk­inu var gert að eyða gagna­grunn­inum. Þegar það var gert hafði Stundin þegar safnað upp­lýs­ingum af vefnum um tekju­hæstu Íslend­ing­ana.

„Það er skemmst frá því að segja að ákvörðun stjórnar Per­sónu­verndar kom á óvart enda eru á upp­lýs­inga­síð­unni ein­göngu birtar upp­lýs­ingar sem þegar eru opin­berar sam­kvæmt lögum og hver sem er getur nálg­ast hjá rík­is­skatt­stjóra,“ sagði Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, lög­maður Tekna.is, í yfir­lýs­ingu vegna máls­ins. „Sú túlkun stjórnar Per­sónu­verndar að gagna­grunnar falli ekki undir fjöl­miðlun er áhyggju­efni og var­huga­verð fyrir stöðu tján­ing­ar­frels­is­ins og frjálsrar fjöl­miðl­unar í land­inu.“

Tekjublöðin gefa bjagaða mynd

Sem kunn­ugt er hafa DV og Frjáls verslun gefið út svokölluð tekju­blöð um ára­bil þar sem birtar eru upp­lýs­ingar um tekjur hand­val­inna skatt­greið­enda. Þar er byggt á álagn­ing­ar­skrám rík­is­skatt­stjóra, en þær geyma ekki end­an­legar upp­lýs­ingar um álagða skatta heldur aðeins upp­lýs­ingar skatta­yf­ir­valda á grund­velli fram­tals eða áætl­aðra tekna í þeim til­vikum sem fram­tali hefur ekki verið skilað. 

Skatt­skrár á borð við þær sem Tekjur.is byggði á geyma hins vegar end­an­legar upp­lýs­ingar um álagða skatta eftir að kæru­frestur er lið­inn og rík­is­skatt­stjóri hefur úrskurðað um kærur. Þær eru því áreið­an­leg­ari en álagn­ing­ar­skrár og birta miklu heild­rænni mynd af tekju­skipt­ingu og ólíkri skatt­byrði launa- og fjár­magnstekna. 

Gagn­rýnir fram­setn­ingu í tekju­blöð­unumStefán Ólafsson telur tekju­blöðin hafa, jafn­vel með víta­verðum hætti, gefið bjag­aða mynd af tekju­dreif­ingu á Íslandi með því að und­an­skilja fjár­magnstekjur.

Þegar Per­sónu­vernd fjall­aði um lög­mæti raf­rænnar birt­ingar tekju­upp­lýs­inga lögðu for­svars­menn Tekna.is áherslu á að þessi heild­ræna birt­ing upp­lýs­inga úr skatt­skrá gæti hrint af stað umræðu sem yrði „mun almenn­ari og ígrund­aðri en sú per­sónu­bundna og brota­kennda umræða sem skap­ist þegar tekju­blöðin og fleiri fjöl­miðlar velji þús­undir ein­stak­linga af handa­hófi og birti þar óstað­festar tekjur þeirra“. 

Í tekju­blöð­unum svoköll­uðu hafa ein­vörð­ungu verið birtar atvinnu­tekjur og líf­eyr­is­tekjur en ekki fjár­magnstekjur. „Það þýðir að stór hluti af tekjum hátekju­hópanna, jafn­vel meiri­hluti tekna hæsta eina pró­sents­ins, er þar und­an­skil­inn,“ segja Stefán Ólafsson og Arnaldur Sölvi Krist­jáns­son í bók sinni, Ójöfn­uður á Íslandi. „Þær tölur sem þannig eru birtar gefa mjög vill­andi mynd af hæstu tekj­unum í sam­fé­lag­inu – jafn­vel svo að víta­vert má telja.“ 

Með 720-faldar tekjur láglaunamanns

Ein­stak­lingur sem til­heyrði 0,1 pró­sent­inu fékk að með­al­tali 184,2 millj­ónir árið 2016 eða sem sam­svarar 15,3 millj­ónum á mán­uði. Þeir tekju­lægstu í þessum 330 manna hópi voru með rúm­lega 62 millj­óna árs­tekjur eða 5,2 millj­ónir á mán­uði. 

Verka­maður við neðstu tíunda­mörk launa þén­aði að með­al­tali 347 þús­und króna heild­ar­laun á mán­uði árið 2016, eða einn fimmt­ánda af tekjum þeirra sem voru við gólf tekju­hæsta 0,1 pró­sents­ins. Að með­al­tali var ein­stak­lingur sem til­heyrði 0,1 pró­sent­inu með 44-sinnum hærri tekjur en lág­tekju­mað­ur­inn.

Allra tekju­hæstu Íslend­ing­arnir, þau Sigurður Þor­steins­son og María Bjarna­dóttir, sem fengu hvort um sig heild­ar­tekjur yfir 3 millj­örðum, voru hins vegar með 720 sinnum hærri tekjur en lág­tekju­mað­ur­inn. Með öðrum orðum: það tæki verka­mann­inn 720 ár að vinna sér inn þær tekjur sem tekju­hæsti karl­inn og tekju­hæsta konan fengu árið 2016.

Upp­lýs­ing­arnar sem birt­ast í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar, og einnig hér að neðan, eru þær ítar­leg­ustu sem birst hafa á prenti um tekju­hæsta 0,1 pró­sentið á Íslandi, það er að segja tekjur þeirra ein­stak­linga sem fengu allra hæstu heild­ar­tekj­urnar á til­teknu ári. Í ljósi þess sam­bands sem er iðu­lega milli dreif­ingar eigna og fjár­magnstekna má ætla að margir þeirra sem prýða list­ann séu einnig í hópi eigna­mestu lands­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár