Heilluð af Kópavogi Ragn­heiður Sig­urð­ar­dóttir Bjarna­son opn­aði nýverið lista­rýmið Midpunkt ásamt manni sínum, Snæbirni Brynjars­syni, í Hamra­borg­inni. Hana dreymir um að búa þar líka í fram­tíð­inni. Mynd: Heiða Helgadóttir

Miðjan færist úr miðbænum í Hamraborg

Það á ekki að vera nauð­syn­legt að fara í mið­borg Reykja­víkur til að njóta lista. Það er meðal ann­ars hugs­unin að baki Midpunkt, nýju lista­rými í Hamra­borg­inni í Kópavogi. Þar geta ungir og upp­renn­andi lista­menn látið ljós sitt skína og Kópa­vogs­búar fengið sinn viku­lega lista­skammt á leið­inni í mat­vöru­búð­ina.

„Okkur lang­aði til að taka þátt í því að auka aðgengi bæði lista­manna og almenn­ings að list­inni. Okkur finnst ekki að hún eigi bara að vera ein­hvers staðar þar sem er erfitt að kom­ast að henni. Það er eitt­hvað við það að geta farið í mat­vöru­búð­ina, á Subway, í bóka­búð­ina og svo í lista­rýmið þitt – þar sem þú getur notið listar án þess að borga fyrir hana – allt í kjarn­anum í hverf­inu þínu,“ segir Ragn­heiður Sig­urð­ar­dóttir Bjarn­ar­son sem ásamt mann­inum sínum, Snæbirni Brynjars­syni, opn­aði nýverið lista­rýmið Midpunkt í Hamra­borg 22 í Kópavogi. Með því láta þau gamlan draum ræt­ast, bæði um það að skapa rými fyrir fjöl­breytta, til­rauna­kennda og alþjóð­lega list og einnig að taka þátt í að færa mið­punkt menn­ing­ar­innar frá Reykja­vík til Kópavogs.

„Í raun er það svo­lítil útskúfun hjá okkur en við viljum fyrst og fremst ungt fólk til okkar.“

„Við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár