Mynd: Davíð Þór

Bragginn sem borgin fær að borga fyrir

Vigdís Hauks­dóttir segir að Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri beri ábyrgð á fram­úr­keyrslu, röngum upp­lýs­ingum og lög­brotum. Eyþór Arnalds vill að Dagur segi af sér.

End­ur­bætur og upp­bygg­ing á bragga, náð­húsi og skemmu í Naut­hóls­vík, bygg­inga sem eru í eigu Reykja­vík­ur­borgar, hafa þegar farið tæpar 260 millj­ónir fram úr frum­kostn­að­ar­á­ætlun. Fram­kvæmdum við bygg­ing­arnar er ekki enn lokið og því ljóst að enn á eftir að bæt­ast ofan á kostn­að­inn, sem þegar er orð­inn 415 millj­ónir króna. Ýmsar kostn­að­ar­tölur þykja yfir­gengi­legar, og þá þótti stein­inn taka úr þegar upp­lýst var að inn­flutt strá frá Danmörku kost­uðu tæpar 800 þús­und krónur, ekki síst í ljósi þess að umrædd strá munu vaxa í breiðum víða hér á landi.

Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, hefur gagn­rýnt óráðs­í­una harka­lega og bent á að lög hafi verið brotin með því að búið hafi verið að greiða reikn­inga án þess að fyrir því hafi legið heim­ild frá borg­ar­ráði. Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni, kall­aði í gær­morgun eftir því að Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segði af sér vegna máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár