Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ef þú þarft að kyrra hugann, finndu tré“

„Þannig er það einnig með rætur okkar mann­anna, ef þær eru sterkar er með öllu ástæðu­laust fyrir okkur að ótt­ast vind­inn,“ segir Margrét Bárð­ar­dóttir, sem er ekki aðeins sér­fræð­ingur í núvit­und heldur á einnig tré árs­ins, sem stað­sett er undir Eyja­fjöllum þar sem þau hjónin hafa komið sér upp sælu­reit. Með núvit­und lærir fólk að verða með­vitað um til­finn­ingar sínar, hugs­anir og lík­ama.

Nýverið var tré árs­ins valið af Skóg­rækt­ar­fé­lagi Íslands. Tréð er stað­sett í Rangár­þingi eystra, nánar til­tekið í Skógum undir Eyja­fjöllum, þar sem hjónin Margrét Bárð­ar­dóttir og Magnús V. Guð­laugs­son hafa komið sér upp sælu­reit undir Eyja­fjalla­jökli. Bústað­ur­inn er stað­ar­prýði sem fellur vel inn í umhverfið og setur skemmti­legan svip á svæðið. Við bústað­inn stendur reisu­legt tré, veg­legur Vest­ur­bæj­ar­víðir sem val­inn var tré árs­ins af Skóg­rækt­ar­fé­lagi Íslands. Hann mælist 11,1 metri á hæð­ina, 2,44 í ummál og krónu sem dekkar heila 255 metra. Tréð hefur lengi til­heyrt fjöl­skyldu Mar­grétar en faðir hennar og bróðir hans, þeir Bárður og Kjartan Guð­munds­synir, gróð­ur­settu tréð árið 1948 að Ytri Skógum. Við­ur­kenn­ingin kom þeim hjónum Margréti og Magnúsi ánægju­lega á óvart og finnst þeim tréð verð­ugt við­ur­kenn­ing­ar­innar. „Þannig er það einnig með rætur okkar mann­anna, ef þær eru sterkar er með öllu ástæðu­laust fyrir okkur að ótt­ast vind­inn,“ segir Margrét.  

Er núvitund lykillinn að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár