Greiddu sér hundruð milljóna arð í skjóli einokunar

Þrír stórir hlut­hafar í ISNIC, einka­fyr­ir­tæki sem heldur utan um skrán­ingu léna með end­ing­una .is, hafa greitt sér sam­tals 320 millj­óna arð út úr fyr­ir­tæk­inu frá árinu 2011.

Greiddu sér hundruð milljóna arð í skjóli einokunar
ISNIC hefur fjár­fest umtals­vert í hug­bún­að­ar­þróun, vél­bún­aði og aðstöðu og þykir almennt hafa staðið vel að umsýslu og upp­bygg­ingu íslenska land­s­léns­ins. Eigendur eru Jens Pétur Jensen, Magnús Soff­an­í­as­son og Bárður Hreinn Tryggva­son.

Internet á Íslandi (ISNIC), einka­fyr­ir­tæki sem er í ein­ok­un­ar­að­stöðu við skrán­ingu léna með end­ing­una .is, hefur greitt hlut­höfum rúm­lega 500 millj­óna króna í arð frá árinu 2011. Alls 320 millj­ónir hafa runnið til þriggja einka­fjár­festa miðað við verð­lag dags­ins í dag, þar af 150 millj­ónir til fram­kvæmda­stjór­ans, Jens Péturs Jensen, sem á 29,51 pró­sents hlut í fyr­ir­tæk­inu. 

Eins og Póst- og fjar­skipta­stofnun hefur marg­sinnis bent á er skrán­ing land­s­léna víð­ast hvar á hendi opin­berra stjórn­valda, háskóla eða sjálfs­eign­ar­stofn­ana. ISNIC er hins vegar einka­fyr­ir­tæki, rekið í hagn­að­ar­skyni í skjóli ein­ok­unar á mark­aði, en starf­semin var einka­vædd í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2001.

Fyr­ir­tækið hefur fjár­fest umtals­vert í hug­bún­að­ar­þróun, vél­bún­aði og aðstöðu og þykir almennt hafa staðið vel að umsýslu og upp­bygg­ingu íslenska land­s­léns­ins. Hins vegar er árgjaldið hærra heldur en tíðkast víða ann­ars staðar. Árgjald léns hjá ISNIC er 5.980 krónur og námu tekjur fyr­ir­tæk­is­ins af léna­skrán­ingu 275 millj­ónum í fyrra og 265 millj­ónum árið 2016.

77 prósent hlutafjár í höndum einkaaðila

Rík­is­fyr­ir­tækið Íslands­póstur á 18,66 pró­senta hlut í ISNIC, Alþingi á 1,15 pró­sent, Raun­vís­inda­stofnun Háskól­ans á 1,13 pró­sent, Reykja­vík­ur­borg á 0,41 pró­sent og rík­is­sjóður 1,91 pró­sent. Að öðru leyti er fyr­ir­tækið í höndum einka­að­ila. 

Stærstu einka­fjár­fest­arnir aðrir en Jens eru Magnús Soff­an­í­as­son, kerf­is­stjóri og einn af stofn­endum tölvu- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­is­ins TSC ehf., með 16,77 pró­senta hlut og Bárður Hreinn Tryggva­son fast­eigna­sali með 16,24 pró­senta hlut. Nafn Magnúsar rataði í fréttir fyrr á þessu ári þegar hann lenti í þriðja sæti á lista rík­is­skatt­stjóra yfir 40 hæstu skatt­greið­endur lands­ins eftir að hafa hagn­ast umtals­vert á sölu hluta­bréfa í fjöl­skyldu­út­gerð­inni Soff­an­í­asi Cecilssyni. Magnús og Bárður hafa hvor um sig fengið meira en 80 millj­óna arð út út ISNIC frá árinu 2011 miðað við verð­lag dags­ins í dag. 

Arð­greiðslur Isnic námu sam­tals 162 millj­ónum árin 2002 til 2006 en fyr­ir­tækið greiddi ekki út arð árin 2007 til 2010.  Myndin hér að ofan sýnir hagnað og arð­greiðslur ISNIC á nafn­virði milli áranna 2011 og 2018. 

„Ef það væri ekki greiddur arður út úr hluta­fé­lag­inu væri þetta mjög lélegt hluta­fé­lag“

„Það verður að vera við­var­andi og góður hagn­aður af svona rekstri ef við eigum að geta haldið í við þær kröfur sem gerðar eru til okkar,“ segir Jens Pétur, fram­kvæmda­stjóri ISNIC, í sam­tali við Stundina. Aðspurður hvort honum finn­ist ekk­ert óeðli­legt að til­tölu­lega fáir ein­stak­lingar fái þennan mikla arð í skjóli ein­ok­un­ar­að­stöðu segir hann: „Það verður seint talið skrítið að hluta­fé­lag greiði ekki út arð. Ef það væri ekki greiddur arður út úr hluta­fé­lag­inu væri þetta mjög lélegt hluta­fé­lag og hefði ekk­ert bak­land af fjár­festum.“ Jens játar því að fjár­festar hafi fengið marg­falt til baka það sem þeir lögðu inn í fyr­ir­tækið í upp­hafi, en bætir því við að arð­greiðsl­urnar séu alger­lega í takti og hlut­falli við afkom­una. Auk þess séu vara­sjóðir fyr­ir­tæk­is­ins digrir.

Ráðuneyti og háskólinn á meðal stofnaðila

Internet á Íslandi var stofnað árið 1995 til að sjá um rekstur og stjórn land­s­léns­ins .is, starf­semi sem áður var á hendi félaga­sam­tak­anna SURIS (Samtaka um upp­lýs­inga­net rann­sókn­ar­að­ila á Íslandi) og ICEUUG (Icelandic Unix Users Group). Á meðal stofn­að­ila ISNIC voru Háskóli Íslands, fleiri mennta- og rann­sókn­ar­stofn­anir, ráðu­neyti, Alþingi og rík­is­bank­arnir. Megnið af hluta­fénu var selt Íslands­síma upp úr alda­mótum. Íslands­sími, sem síðar varð Vodafone og hluti af Teymi hf., átti rúmlega 92 pró­senta hlut í ISNIC til ársins 2007 þegar núver­andi stjórnendur og Íslandspóstur keyptu hlut­inn.

Jens bendir á að rík­is­sjóður og nokkrar opin­berar stofn­anir hafi, illu heilli, selt hluti sína í ISNIC árið 2000, hluti sem þau höfðu feng­ist gef­ins við stofnun félags­ins  árið 1995. „Rík­is­sjóður Íslands eign­að­ist fyrir minn til­verknað á ný mynd­ar­legan hlut í félag­inu, eða 18,657 pró­sent, í gegnum Íslands­póst ohf., þegar Modernus ehf. sem Póst­ur­inn keypti hlut í 2006, rann inn í Internet á Íslandi hf. árið 2007,“ segir Jens.

„Við þetta varð ríkið mynd­ar­legur hlut­hafi í ISNIC á ný og eign­ar­haldið víkk­aði svo um mun­aði, en það var skelfi­lega þröngt áður (Vodafone með 93 pró­sent hluta­fjár). Kaupin voru ekki síður jákvæði fyrir það að nán­ast allt hlutafé var áður á hendi ann­ars stóra síma­fé­lags­ins í land­inu, en ISNIC stóð lengi vel í stappi við síma­fé­lögin því þau bein­línis hindr­uðu fram­gang inter­nets­ins lengi vel, sem er reyndar önnur saga. Síðasta jákvæða breyt­ing í hluta­skrá ISNIC var svo í jan­úar 2018 þegar Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna Ríkisins eign­að­ist 1,9 pró­senta hlut í félag­inu, fyrstur líf­eyr­is­sjóða.“ 

Póst- og fjarskiptastofnun gagnrýndi fyrirkomulagið

Póst - og fjar­skipta­stofnun full­yrti í erindi til Alþingis árið 2012 að ein­ok­un­ar­staða ISNIC og skortur á eft­ir­liti hefði gert félag­inu kleift að verð­leggja skrán­ingu léna með þeim hætti að hagn­aður væri umtals­verður. 

„Sam­an­burður á árlegum leyf­is­gjöldum vegna skrán­inga léna á Norð­ur­löndum leiðir í ljós að verð­lagn­ing hér á landi er mjög há borið saman við hin Norð­ur­löndin, en árleg skrán­ing­ar­gjöld ISNIC eru 100 til 300 pró­sentum hærri en gjöld í við­kom­andi 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár