Mynd: Heiða Helgadóttir

Ævintýraleg ævi Ómars

Fáir Íslend­ingar hafa látið til sín taka í umhverfispóli­tík­inni með jafn miklum hætti og Ómar Ragn­ars­son. Hann hefur miklar áhyggjur af sókn stór­iðj­unnar og hvernig fari muni fyrir nátt­úruperlum lands­ins. Þá fagnar Ómar 60 ára skemmt­ana­af­mæli í ár og það hefur aldrei verið jafn mikið að gera hjá honum og nú þegar hann er hættur að vinna.

Það hefur aldrei verið jafn mikið að gera hjá Ómari Ragn­ar­syni en nú þegar hann er hættur að vinna. Um ára­mótin fagnar hann 60 ára skemmt­ana­af­mæli og stendur til að fagna því almenni­lega. Þá er hann með sjö kvik­myndir og fjórar bækur í vinnslu en veit þó að honum er eflaust ekki mark­aður nægur tími í líf­inu til að klára öll verk­efnin á list­anum. Á und­an­förnum þremur árum hefur Ómar tekið þátt í því sem hann kallar orku­bylt­ing­una. Hann fer allar sínar ferðir ann­að­hvort á raf­hjóli, vespu­vél­hjóli eða á minnsta raf­magns­bíl lands­ins. Á lit­ríkum ferli sínum hefur Ómar komið víða við en á síð­ast­liðnum árum má segja að bar­áttan fyrir nátt­úr­unni hafi verið Ómari hug­föngn­ust. Þá hefur hann dvalið löngum stundum á hálend­inu við kvik­mynda­gerð,  við frum­stæðan kost og fórnað öllu fyrir tæki­færið til að sýna og vernda feg­urð og verð­mæti íslenskra nátt­úru­fyr­ir­bæra.

Ómar, klæddur í gult end­ur­skins­vesti, með mót­or­hjóla­hjálm á höfð­inu og í vél­hjóla­klossum  og - hönskum mætir á skrif­stofu Stund­ar­innar við Aust­ur­stræti í Reykja­vík. „Ég kom á raf­magns­reið­hjól­inu úr Graf­ar­vogi en þar búum við Helga konan mín í dag. Um háls­inn hefur hann vafið rauð­leitum trefli sem hann fékk í jóla­gjöf frá Helgu síð­ustu jól og hentar hann sér­stak­lega vel fyrir ferða­lög á hjóli. „Ég nota raf­reið­hjólið eða vél­hjólið allar vikur árs­ins.“

 

Ómar hefur umbylt ferða­venjum sínumAllar vikur árs­ins ferð­ast Ómar um á raf­knúnu reið­hjóli eða vespu­mót­or­hjóli. Hann fór meira að segja á raf­hjól­inu alla leið frá Akureyri til Reykja­víkur. Þá á hann minnsta og langódýrasta raf­bíl lands­ins. Mynd: Heiða Helga­dóttir

Tilviljanir verið örlagavaldar í lífi Ómars

Kynni Íslend­inga af Ómari hófust þegar hann var aðeins 18 ára gam­all drengur í Mennta­skól­anum í Reykja­vík. Á þeim tíma stóð Ómar í ströngu við að byggja fjöl­býl­is­hús við Aust­ur­brún 2 í bygg­inga­sam­vinnu­fé­lagi. Íslenskt sam­fé­lag lit­að­ist þá af mik­illi verð­bólgu og þurfti Ómar því ásamt öðrum í sam­vinnu­fé­lag­inu að taka þátt í bygg­ingu húss­ins. Hann vann öll kvöld og allar helgar til þess að fjár­magna íbúð­ina.

„Mér hafði gengið mjög vel á drengja­meist­ara­móti Íslands og því var skorað á mig í ein­hverjum fífla­gangi í víða­vangs­þrístökk á lóð­inni við Aust­ur­brún­ina. Það fór nú þó ekki betur en svo að þrístökkið varð bara eitt stökk því ég kom svo illa niður í hóffar að ökklinn fór næstum í sundur.“ Þá voru góð ráð dýr, Ómar lá með löpp­ina upp í loftið í margar vikur og sá fyrir sér að hann myndi missa íbúð­ina. Vorið áður hafði Ómar skemmt á árs­há­tíð Mennta­skól­ans í Reykja­vík. Á meðan hann lá slas­aður og undi illa iðju­leys­inu fór hann að spek­úlera hvort hann gæti ekki mögu­lega samið heila skemmti­dag­skrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár