Fimmtíu sjósundsferðir á fimmtugsafmælisárinu

Þrjár konur sem stunda sjó­sund hafa í ár farið fimm­tíu sinnum í sjó­sund í til­efni fimm­tugs­af­mælis síns og vekja athygli á söfnun því tengdu til styrktar Grensás. Ein þeirra dvaldi þar á sínum tíma eftir alvar­legt slys á Tenerife. Henni líður sér­stak­lega vel í sjónum vegna verkja sem hún er alltaf með.

Fimmtíu sjósundsferðir á fimmtugsafmælisárinu
Sjáv­ar­systur Íris, Monika og Sif. Íris segir að í fyrsta lagi sé sjó­sund nátt­úru­teng­ing. Skyndi­biti fyrir sál­ina. Mynd: Golli

Aðal­björg Sif Krist­ins­dóttir, Íris Hrund Hall­dórs­dóttir og Monika Waleszczynska kynnt­ust í tengslum við sjó­sundið sem þær hafa stundað um ára­bil. Þar sem þær urðu allar fimm­tugar á árinu hefur hver þeirra farið fimm­tíu sinnum í sjó­sund á mis­mun­andi stöðum, en þó ekki endi­lega saman. Monika bendir á að það sé áskorun að finna fimm­tíu staði til að fara í sjó, þar sem það þarf meðal ann­ars að huga að öryggi. Þær höfðu mis­mik­inn áhuga á sundi áður en þær fóru að stunda sjó­sund. Fjórða konan í hópnum, Erna Héð­ins­dóttir, var ekki í bænum þegar við­talið var tekið.

Aðal­björg Sif, sem kölluð er Sif, seg­ist vera íþrótta­kona að upp­lagi, en hún æfði fim­leika í tíu ár. Hún æfði einnig sund í hálft ár á sínum tíma þegar búið var að vígja nýju sund­laug­ina í Garðabæ árið 1989. „Bekkj­ar­systir mín plat­aði mig til þess að vera með, en það var verið …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár