Mynd: OCCRP

Missa lækningaleyfið en mega starfa á Íslandi

Læknar sem misst hafa starfs­leyfi í Evrópu geta óhikað komið til Íslands og fengið útgefin lækn­inga­leyfi. Vanda­málið er alþjóð­legt og upp­lýs­inga­gjöf til almenn­ings þekk­ist vart. Þetta kemur fram í rann­sókn fimm­tíu evr­ópskra fjöl­miðla, sem Heim­ildin tekur þátt í.

Læknar sem missa lækn­inga­leyfi í Evrópu hafa getað komið til Íslands og fengið nýtt starfs­leyfi hér án nokk­urra vand­kvæða. Þá hefur svipt­ing erlendis ekki áhrif á starfs­leyfi sem eru í gildi hér á landi. Minnst sex stað­fest dæmi eru um lækna sem hafa útgefin og gild starfs­leyfi á Íslandi þrátt fyrir að vera bannað að starfa í öðrum Evr­ópu­ríkjum eða Banda­ríkj­unum.

Vís­bend­ingar eru um að minnsta kosti jafn­marga til við­bótar. Það eru ein­stak­lingar sem birt­ast í gögnum um starfs­leyf­is­svipt­ingar ann­arra landa og finn­ast í starfs­leyfa­skrá Land­læknis en Heim­ildin hefur ekki frek­ari gögn um.

Þetta sýnir rann­sókn sem leidd var af OCCRP, Times í Bret­landi og VG í Noregi, og Heim­ildin tekur þátt í.

Þessi staða á bæði við um íslenska lækna sem hafa ein­hverra hluta vegna misst starfs­leyfi erlendis og komið svo heim til að sinna störfum hér, og erlenda lækna sem misst hafa leyfið í heima­landi …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Allstaðar er að finna fólk sem lítið eða ekkert er hægt að treysta í öllumstarfstettum hvar sem er borðaður og engin undantekning þar á því enginn er betri enn annar
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Enn er eg ekki gild á netáskriftina hjá heimildinni í símanum mínum þrátt fyrir að hafa marg sinnissótt um áskrift þaraðlútandi hef líka áhuga á netáskriftinni einsog prentútgáfunnikristjana magnusdottir furugerði 1 íbúð 205 108 reykjavík sími 8310165
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár