Eldsnöggur eldri hlaupari á heimsmælikvarða

Haf­steinn Ósk­ars­son meidd­ist sem ungur hlaup­ari og þurfti að hætta en er nú í fremstu röð í heim­inum í milli­vega­lengdum í sínum ald­urs­flokki. „Eins og að vera á góðum sport­bíl,“ segir hann um að hlaupa hratt.

Eldsnöggur eldri hlaupari á heimsmælikvarða
Annað sætið Haf­steinn Ósk­ars­son varð annar í 800 metra hlaupi 65 til 69 ára í Flórída í mars.

Ég ætla að verða í fremstu röð á meðal jafn­aldr­anna,“ segir mennta­skóla­kenn­ar­inn Haf­steinn Ósk­ars­son sem er í fremstu röð í heim­inum í sínum ald­urs­flokki í milli­vega­lengdum. Hann náði nú í lok mars öðru sæti á heims­meist­ara­móti inn­an­húss fyrir eldri flokka í Flórída í 800 metra hlaupi.

Þetta gerir hann eftir að hafa þurft að hætta hlaupum sem ungur maður.

„Það var mjög skemmti­legt að taka þátt í heims­meist­ara­mót­inu í Flórída,“ segir Haf­steinn. „Þetta var risa­stórt mót með nokkur þús­und kepp­endum og stóð yfir í átta daga. Þetta var inn­an­húss­mót og skipu­lagt þannig að í flestum greinum þurfti að vera und­ankeppni ef þátt­tak­endur voru nægi­lega margir,“ segir Haf­steinn.

„Til dæmis hjá okkur sem vorum í 800 metra hlaupi í mínum flokki þá þurfti að hlaupa á tveimur dögum. Fyrst voru und­an­úr­slit og síðan úrslit. Við vorum  tutt­ugu kepp­endur og það þurfti að hlaupa í fjórum riðlum og síðan voru úrslitin dag­inn eftir. Ég sigr­aði nú reyndar í mínum riðli og var með besta tím­ann. 

Ég hafði í jan­úar hlaupið 800 metra á 2:22,46 mín­útum þannig að ég hafði áhuga á að reyna að bæta þann tíma. Þegar ég hljóp þetta í vetur þá var það í þriðja skipti sem ég náði að bæta Norð­ur­landa­metið og þar með Íslands­metið í flokknum.“

Norðurlandameistari 

Í febr­úar varð Haf­steinn Norð­ur­landa­meist­ari í 800 metra hlaupi á Norð­ur­landa­mót­inu í Noregi án þess að ná að bæta sig.

„Það hafði sýnt sig á síð­ustu æfingum fyrir HM að ég gæti hlaupið enn hraðar og ég lagði af stað með það fyrir augum, vit­andi að það var þarna í hlaup­inu maður sem hefur náð betri tíma en ég og það tals­vert betri tíma. Ég vissi að hann er enda­spretts­maður, mjög sterkur í enda­spretti, þannig að ég treysti ekk­ert á það að vera í rólegu hlaupi og reyna að vinna hann með enda­spretti. Svo ég hljóp bara mitt hlaup, eins og maður segir. Ég leiddi hlaupið í úrslit­unum alveg fyrstu 700 metrana. Þá tók hann fram úr  mjög örugg­lega og ég átti greini­lega ekki séns í hann en kom inn í öðru sæti og var með tím­ann 2:22,70. Mig vant­aði pínu­lítið upp á að bæta mig. Það mun­aði ekki nema 24/100 úr sek­úndu. Miðað við æfing­arnar í vik­unni áður var ég svekktur með tím­ann. Ég hefði viljað bæta mig. Ég er hins vegar sér­stak­lega ánægður með annað sætið. Það var virki­lega gaman.“

Sig­ur­veg­ar­inn enda­sprett­harði bætti móts­metið og kom í mark á 2:21,00 en sá í 3. sæt­inu náði 2:24,79.

Afreks­fólkFríða Rún Þórð­ar­dóttir keppti einnig á mót­inu í Flórída og komst á verð­launa­pall.

Annar Íslendingur á palli

Fríða Rún Þórð­ar­dóttur, var einnig á HM í Flórída og varð heims­meist­ari í víða­vangs­hlaupi í 55–59 ára flokki, vann til silf­ur­verð­launa í 3.000 metrum og brons­verð­launa í 1.500 metrum. „Ég er for­maður í nefnd á vegum Frjáls­í­þrótta­sam­bands­ins sem vinnur að fram­gangi frjáls­í­þrótta í eldri ald­urs­flokkum og situr Fríða Rún með mér í henni ásamt tveimur öðrum.“

Haf­steinn, sem hleypur almennt sex daga vik­unnar, segir að þessi árangur tryggi að hann muni ekk­ert fara að hætta að hlaupa þótt hann hafi reyndar ekk­ert verið að íhuga það. „Maður er í þessu af tveimur ástæðum. Það er ann­ars vegar það að vera í lík­ams­rækt, sem maður myndi nú gera hvort sem er, og svo hins vegar að stunda áhuga­mál. Ég grín­ast stundum með það að ég æfi þrisvar í viku til að halda heils­unni og þrisvar í viku til að stunda áhuga­málið.“ 

Framarlega og stundum fyrstur

Haf­steinn segir að þegar hann var 11 til 12 ára hafi tvö bekkj­ar­systk­ini sín, sem æfðu frjáls­í­þróttir, stundum keppt í að hlaupa í kringum skól­ann í frí­mín­útum. Haf­steinn segir að hann hafi getað hlaupið jafn­hratt og þau. „Það var alveg greini­legt að þetta átti vel við mig. Ég fann ekk­ert fyrir því þótt ég yrði móður og þreyttur; það skipti mig ein­hvern veg­inn engu máli. Og það er dálítið svo­leiðis enn þá. Þó ég sé alveg að springa úr mæði, þá er það bara þannig og hvað með það?“

Eldri bræður Haf­steins æfðu sem ung­lingar hlaup á Mela­vell­inum með ÍR. „Þeir létu svo vel af þessu að ég smit­að­ist bara af þeim í raun og veru og fór 13 ára að fara út á Melavöll á æfingar hjá Guðmundi Þór­ar­ins­syni sem var þar þjálf­ari ÍR til fjölda ára. 

Það kom strax í ljós að ég gat verið fram­ar­lega í mínum ald­urs­flokki og stundum fyrstur. Það var eitt­hvað sem heill­aði mig við það; það er alltaf gaman að vera bestur í ein­hverju.“

Fimm hlaup­andi systk­iniMynd sem var lík­lega tekin árið 1977. „Mamma tók mynd­ina eftir að við fimm systk­inin af átta lukum keppni í víða­vangs­hlaupi ÍR. Krist­berg (lát­inn), ég, Margrét, Sum­ar­liði og Þorgeir.“

Haf­steinn seg­ist hafa æft stíft þar til hann var 18 ára og að þá hafi hann náð sínum besta tíma  í 800 metrum, eða 1:54,40 mín­útum. Þá var hann orð­inn svo slæmur í hásin að hann varð að hætta og hann hljóp ekk­ert í þrjú ár og á þeim tíma fór hann tvisvar í skurð­að­gerð vegna þessa. 

„Ég byrj­aði svo aftur að hlaupa og náði tveimur góðum árum eftir það. Ég var kom­inn í lag en náði ekki að bæta mig í 800 metra hlaupi en bætti mig hins vegar í í 1.500 metrum niður í 3:57,9 og próf­aði 3.000 metra hindr­un­ar­hlaup þar sem ég komst í lands­liðið og náði best 9:22,86.

Svo fóru alls konar meiðsli að há mér á sama tíma og stofnun fjöl­skyldu og vinna fóru að hafa for­gang. Ég tók langt hlé hvað varðar hlaupin. Ég var hættur þessu 27 ára gam­all.“

Mynd úr star­t­inu í 800 metrum í Flórída.

Byrjar aftur fertugur

Fertugur byrj­aði Haf­steinn að skokka svo­lítið og taka aðeins í lóðin en hann hafði haldið sér í ein­hverju formi með hjól­reiðum og úti­vist fram að því.

„Smátt og smátt fór ég að hlaupa lengra og fór í skokk­hóp ÍR þegar ég var 43 ára. Ég byrj­aði að kíkja aðeins á hlaupa­braut­ina þegar inn­an­húss­að­staða var opnuð í Laug­ar­dals­höll í kringum 2006. Og þá fékk ég svo­lítið bakt­er­í­una aftur, að prófa að hlaupa á braut og keppa á braut­inni. Og þegar ég var orð­inn 48 ára var ég kom­inn eig­in­lega á fullt í því.“

„Það er eins og að vera á góðum sport­bíl sem fer hratt

Þegar Haf­steinn byrj­aði að hlaupa aftur um fer­tugt var fyrst og fremst um að ræða götu­hlaup. „Svo fór ég að skoða úrslit á Evr­ópu­meist­ara­mótum og heims­meist­ara­mótum í ald­urs­flokknum og sá að ég átti greini­lega lang­mestan séns­inn á að verða fram­ar­lega í milli­vega­lengda­hlaupum. Svo fannst mér líka bara gaman að geta hlaupið alvöru hratt en þá var maður að hlaupa mikið hraðar heldur en í fimm og tíu kíló­metra götu­hlaupum. Það er eins og að vera á góðum sport­bíl sem fer hratt. Það er mjög skemmti­leg til­finn­ing að finn­ast maður vera á miklum hraða. Ég hef líka gaman af að æfa með fjöl­breyttum hætti; það er að segja að um sé að ræða mikla styrkt­ar­þjálfun og síðan sprett­hlaup og lang­hlaup í bland. Það þarf að tvinna þessu öllu vel saman. Og lið­leika­þjálfun þarf að vera stór partur af því líka til þess að ná að halda sterkum löngum skrefum í svona hröðu hlaupi.“

Haf­steinn lenti í lok mars í öðru sæti í 800 metrum á heims­meist­ara­móti í eldri ald­urs­flokkum inn­an­húss sem fór fram í Flórída í Banda­ríkj­unum.

Alþjóðleg mót

Haf­steinn fór á Norð­ur­landa­meist­ara­mót inn­an­húss árið 2006 og náði þá að sigra í 1500 metra hlaupi. Það var í fyrsta skipti sem hann fór á alþjóð­legt mót í eldri ald­urs­flokkum. Á Evr­ópu­meist­ara­móti utan­húss árið 2008 náði hann 7. sæti í 800 metra hlaupi en 5. sæti í 1.500 metra hlaupi á heims­meist­ara­móti utan­húss í Kali­forníu árið 2011. Síðan þá hefur hann haldið áfram að taka þátt í alþjóð­legum meist­ara­mótum eins og aðstæður hafa leyft.

„Ég bland­aði saman götu­hlaupum og brauta­hlaupum á þessum tíma og hljóp oft fimm og tíu kíló­meta í götu­hlaupum í keppni þegar ég var um fimm­tugt. Það var í upp­á­haldi hjá mér að geta tekið þátt í víða­vangs­hlaupi ÍR; mér tókst nú einu sinni að sigra í því en það var 1983 eftir að ég kom til baka eftir hásina­meiðslin á sínum tíma. Svo kom í ljós fljót­lega eftir að ég var byrj­aður að hlaupa aftur í öld­unga­hlaup­unum á fimm­tugs­aldr­inum að ég var far­inn að verða tals­vert sterk­ari í styttri hlaupum á braut­inni en í 5 og 10 kíló­metra. Brauta­hlaupin skil­uðu mér miklu framar í úrslitum ef ég bar mig saman við alþjóð­legan stand­ard. Það styrkti mig í þessu fyrir utan það að það er skemmti­legra að æfa fyrir styttri hlaup, eða það sem við köllum milli­vega­lengda­hlaup sem eru 800, 1500 og 3000 metra hlaup. Síðan má ekki gleyma því hversu mikið það gefur manni að fylgj­ast með þeim mikla fjölda eldri þátt­tak­enda sem taka þátt í alþjóða­mót­unum og verða vitni að þeirri keppn­is­gleði sem þar skín úr augum allra.“

Haf­steinn náði að setja nokkur Ísland­met í 400 til 3.000 m í ald­urs­flokknum 45–49 ára, ýmist inn­an­húss eða utan­húss. Sum þeirra standa enn.

Sig­ur­reifurEftir verð­launa­af­hend­ingu í Flórída.

Í alvöru keppnisformi

„Árið 2010 var ég kom­inn í nýjan ald­urs­flokk. Þá var ég orð­inn fimm­tugur og í fínu formi og fannst sem ég ætti að geta att kappi við þá bestu í Evrópu. Ég náði 3. sæt­inu í 800 metra hlaupi eftir harða keppni og náði  2:05,78. sem stendur  enn þá sem utan­húss­met.“ Hann lenti síðan aftur í þriðja sæti í 1500 metra hlaupi á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu í 55 ára flokki; hann segir að fyrir utan annað sætið í mars á þessu ári séu þetta helstu sigr­arnir síð­ustu fimmtán árin.

„Þegar ég var á þessum aldri var ég kom­inn í alvöru keppn­is­form fyrir brauta­hlaup. Þetta þró­að­ist þannig smátt og smátt á kannski fimm árum. Það varð alltaf minni áhersla á götu­hlaupin og smátt og smátt meiri áhersla á brauta­hlaupin. 

Ég var orð­inn fljót­ari og sterk­ari og réði við að hlaupa á gadda­skóm alveg á fullu, alveg á útopnu, án þess að meiða mig eða finna neitt sér­stak­lega fyrir því. Þegar maður hvílir sig í tíu ár þá getur það tekið jafn­vel sjö til átta ár að ná því aftur vegna þess að vöðvarnir rýrna. 

Ég var kom­inn í svip­aðan pakka og fólk á milli tví­tugs og þrí­tugs hvað varðar álag, meiðsli og allt mögu­legt vesen. Ég er eig­in­lega búinn að missa töl­una á því hversu oft ég hef síðan dottið úr keppni vegna þess að ég hef verið að meiða mig. En svo kemur maður til baka og maður heldur sig við þetta og gefst ekk­ert upp. Maður kannski svissar yfir í hjól­reiðar eða ein­hverja aðra lík­ams­rækt á meðan maður er meiddur en er samt sem áður með hug­ann við hlaupin og reynir að byggja sig upp aftur. Þannig að það hafa verið tíma­bil þar sem það hefur verið vesen á manni.“

Þakkar konunni

Haf­steinn þakkar konu sinni, Sig­ur­rósu Erlings­dóttur, fyrir þann skiln­ing sem hún hefur sýnt þessu áhuga­máli hans og að hún hafi stutt hann dyggi­lega, meðal ann­ars með því að koma með á mót erlendis. 

Þriðji á Evr­ópu­mótiFrá Evr­ópu­meist­ara­mót­inu 2010 í Nyiregyhaza í Ung­verja­landi þar sem Haf­steinn náði 3. sæti í 800 metra hlaupi í flokknum 50-54 ára á tím­anum 2:05,80 mín.

Haf­steinn segir, eins og þegar hefur komið fram, að hlaup­unum fylgi heilsu­rækt og svo veita þau honum ómælda ánægju í frí­tím­anum en hann starfar sem kenn­ari við Mennta­skól­ann við Sund.

„Ég hleyp stundum einn og læt æfinga­tím­ann algjör­lega ráð­ast af því hvernig vinnan er og hvað er að ger­ast að öðru leyti en síðan eru fastir tímar tvisvar og stundum þrisvar í viku og þá hitti ég æfinga­fé­lag­ana. Svo hef ég aðstöðu í skól­anum þar sem ég kenni og hef ég sparað mik­inn tíma með því að fara þangað strax eftir vinnu og fara í styrkta­ræf­ingar.“

Finnur ekki fyrir aldrinum á hlaupum

Haf­steinn nýtur leið­sagnar hlaupa­þjálf­ar­ans Sigurðar P. Sig­munds­sonar og seg­ist hann æfa með frá­bærum hlaupa­hópi hans. „Þar eru hlauparar á öllum aldri, meðal ann­ars fjórir á mínum aldri en einnig nokkrir á ung­lings­aldri og svo allt þar á milli.“

Talið berst að aldr­inum en Haf­steinn er 65 ára.

„Þegar ég er að hlaupa þá er til­finn­ingin alveg sú sama og hún var
Haf­steinn Ósk­ars­son
65 ára afreks­maður í hlaupi

„Ég finn aðeins minni hreyf­an­leika miðað við áður. Það er að segja að ég finn mest fyrir því að vera stirð­ari í dag­legu lífi þegar ég er að hreyfa mig og beygja. Ef maður þarf eitt­hvað að vera að vinna á gólf­inu eða leika við barna­börnin þá er lið­leik­inn minni en hann var. Svo þegar ég er að hlaupa þá er til­finn­ingin alveg sú sama og hún var. Þetta snýst allt um hvað maður setur mikla ákefð í hlaupin. Þó að hrað­inn sé minni en hann var þegar ég var yngri þá finnur maður ekk­ert fyrir því. Maður veit ekk­ert af því. Það er bara klukkan sem segir það. Þannig að þegar ég hleyp núna á 2:22 mín­útum og er í góðu formi og í góðri keppni þá er það nákvæm­lega eins og þegar ég hljóp 18 ára á 1:54.“

Fólk yfir fertugt eigi að hlaupa hratt

Haf­steinn er tals­maður þess að fólk sem er komið yfir fer­tugt og fimm­tugt hugi meira að því að styrkja sig og hlaupa hratt og blanda miklu meira sprettum inn í hlaupa­þjálfun­ina. „Það er svo­lítið um að fólk hlaupi of mikið, of langt og of rólega sem gefur raun­veru­lega ekki eins mikið og það gæti miðað við tím­ann sem fólk setur í það. Ég myndi segja að það væri betri nýt­ing á klukku­tíma að hlaupa í hálf­tíma og taka svo styrkt­ar­þjálfun í hálf­tíma heldur en að hlaupa bara í klukku­tíma. Eða blanda saman mjög hröðum sprettum. Ég er að taka spretti alveg niður í 50 til 100 metra. Og þá er maður að gera allt annað. Þá opnar maður miklu meira mjaðm­irnar og maður þarf að teygja sig í skrefin. Það er allt önnur hreyf­ing og miklu meiri hreyf­ing sem virkjar marg­falt fleiri vöðva.“

Haf­steinn segir að nú sé mark­miðið að halda sér meiðsla­lausum og geta æft þannig að hann geti tekið á á fullu annað slagið. „Það þarf ekki að vera mjög oft á ári. Og það þarf að halda sér gang­andi þannig að maður geti verið í þessum fína félags­skap sem eru hlaupa­fé­lag­arnir. Og svo hitti ég annað slagið þá sem eru í fremstu röð í heim­inum.“

Í októ­ber verður svo haldið Evr­ópu­meist­ara­mót utan­húss sem Haf­steinn stefnir á að taka þátt í ásamt fleira áhuga­sömu eldra fólki.

Hindr­un­ar­hlaup­ariFriðrik Þór Ósk­ars­son tók þessa mynd af Haf­steini í 3000 metra hindr­un­ar­hlaupi í land­skeppni Íslands og norð­ur­hluta Noregs, Sví­þjóðar og Finn­lands (svokölluð Kalott­keppni) í Alta, Noregi, 1983. „Ég náði þar mínum besta tíma, 9:22,86 mín.“

 

 

 

 

 

 

 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2025

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár