Ingunn segir fréttir á Tiktok – „Mér finnst eins og ég nái til fólks sem ég náði ekki til áður“
Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir hefur mikla ástríðu fyrir frétta­mennsku og trúir því að það sé mik­il­vægt að við búum í upp­lýstu sam­fé­lagi. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Ingunn segir fréttir á Tiktok – „Mér finnst eins og ég nái til fólks sem ég náði ekki til áður“

Frétta­mað­ur­inn Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir býr til frétta­efni fyrir sam­fé­lags­miðla RÚV. Hún hefur mikla ástríðu fyrir sínu starfi og vill að meiri áhersla verði lögð á að miðla fréttum þar sem fólkið er. Þegar hún velur hvaða fréttir hún deilir á sam­fé­lags­miðlum segir hún að hún vilji „fræða fólk. Ég vil útskýra flókin mál á ein­faldan hátt. Ég vil jafn­vel skemmta fólki. Kannski veita fólki inn­blástur. Reyna að leit­ast við svör við erf­iðum spurn­ingum sem eru í gangi.“

RÚV Tiktok frétta­mað­ur­inn Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir er fyrsti og eini íslenski frétta­mað­ur­inn sem vinnur í fullu starfi við að búa til frétta­efni fyrir sam­fé­lags­miðla. Ung­ling­arnir þekkja hana út frá sam­fé­lags­miðlum. „Ef ég sé ung­lings hóp þá veit ég að það er ein­hver að fara að segja eitt­hvað.“

„Staðan var í raun búin til þegar ég byrj­aði,“ sagði Ingunn við blaða­mann Heim­ild­ar­innar. Í atvinnu­við­tal­inu hjá RÚV hélt Ingunn „rant monolog um hvað mér finnst að fjöl­miðlar á Íslandi eru ekki að sinna unga les­enda hópnum nógu vel. Af hverju eru allir svona hræddir við sam­fé­lags­miðla? Af hverju erum við ekki að stúd­era þessa miðla?“

Ingunn Lára er til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands í flokknum Blaða­manna­verð­laun árs­ins. Hún er til­nefnd fyrir nýstár­lega og eft­ir­tekt­ar­verða fram­setn­ingu frétta á helstu sam­fé­lags­miðlum. 

RÚV Tiktok sím­inn

Á skrif­borði Ingunnar eru tveir símar. …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár