Skólastofan ekki framlenging á unglingaherberginu

Í dönskum mennta­skólum hefur síma­notkun nem­enda farið sívax­andi og er, að margra mati, löngu farin úr bönd­unum. Nú hefur danska Mennta­mála­stofn­unin brugð­ist við og birt ráð­legg­ingar til að draga úr notk­un­inni. Danski mennta­mála­ráð­herr­ann er ánægður með ráð­legg­ing­arnar.

Skólastofan ekki framlenging á unglingaherberginu

„Með nýja sím­ann frá okkur ertu með heim­inn í vas­anum“ mátti lesa í nýlegri aug­lýs­ingu frá verslun sem selur síma. Ekki þarf að taka fram að í þess­ari aug­lýs­ingu var verið að tala um far­síma. Þótt í aug­lýs­ing­unni sé kannski full­djúpt í árinni tekið lýsir hún eigi að síður vel þeirri bylt­ingu sem orðið hefur á örfáum árum með tækni sem enn sér ekki fyrir end­ann á.

Æ oftar heyr­ist sagt „maður þarf ekk­ert annað en sím­ann þar er bara allt“ og það er vissu­lega mikið til í því. Síminn er mynda­vél, tölva, leið­sögu­tæki og í honum er hægt að hafa greiðslu­kort, öku­skír­teini, bóka­safnskort og margt margt fleira. Og svo er líka hægt að hringja í hann og úr. Símarnir eru af ýmsum gerðum og á mis­jöfnu verði. Fyrstu far­sím­arnir, eða gems­arnir eins og þeir eru oft kall­aðir, voru ekki búnir þeim mögu­leikum og tækni sem þekk­ist í dag, tak­mörk­uð­ust við sím­töl. Voru spjall­símar en ekki snjall­símar. En þeir voru eigi að síður bylt­ing og nú er svo komið að æ færri eru með fast­línusíma, heima­síma. Það segir ákveðna sögu að í stórri íslenskri raf­tækja­verslun eru til sölu 6 gerðir heima­síma en 166 gerðir far­síma.

Þægilegir og alltaf til staðar

Vin­sældir far­sím­ans eru auð­skildar. Með til­komu hans, fyrir og um síð­ustu alda­mót, gjör­breytt­ust sam­skipta­mögu­leikar fólks. Eigandi sím­ans gat nú hringt, nán­ast hvaðan sem var, og sömu­leiðis var hægt að ná síma­sam­bandi við eig­and­ann þótt hann væri víðs fjarri heim­il­is­sím­anum.

Nytsemin var þó í fyrstu háð því að eig­andi far­sím­ans væri með hann á sér og væri innan „þjón­ustu­svæðis“ eins og það var og er kallað, en í takt við vin­sæld­irnar teygði „þjón­ustu­svæðið“ sig æ víðar þótt ekki nái það enn til allra lands­hluta í öllum löndum heims. Lang­flestir tóku þess­ari tækni­bylt­ingu, eins og far­sím­inn hefur rétti­lega verið kall­aður, vel þótt sumir nefndu hann frið­ar­spilli. 

Varð fljótt í hvers manns vasa

Eins og áður var nefnt var það um og fljót­lega eftir síð­ustu alda­mót sem far­sím­inn varð almenn­ings­eign. Nú þurftu skyndi­lega allir að eign­ast þetta hand­hæga sam­skipta­tæki, á heim­ilum þar sem fram til þessa hafði verið einn heima­sími var nú hver heim­il­is­maður með sinn síma. Fyrstu árin eftir að far­sím­arnir, sem sumir köll­uðu vasa­síma, urðu almenn­ings­eign þótti mörgum síma­kostn­að­ur­inn hækka mikið. Ástæður þess voru aukin notkun og gjöld í far­síma­kerf­inu sem voru hærri en hefð­bundnu fast­línu­gjöldin.

Flestir for­eldrar tóku far­símunum fagn­andi og ekki leið á löngu uns meiri­hluti ung­linga var kom­inn með far­síma upp á vas­ann. Þótt for­eldr­arnir hafi kannski litið á sím­ann sem ákveðið örygg­is­tæki litu ung­ling­arnir ekki síður á sím­ann sem sam­skipta­tæki sín á milli. Og það voru reyndar ekki bara ung­lingar sem kunnu vel að meta far­sím­ana, aldur not­end­anna færð­ist neðar. Í danskri könnun árið 2017 voru 7 af hverjum 10 undir 10 ára aldri  með far­síma og hlut­fallið hefur hækkað síðan.

Unglingarnir segjast nota símann of mikið

Árið 2013 töldu 30 pró­sent danskra fram­halds­skóla­stúlkna sig nota far­sím­ann of mikið. Hjá piltum var hlut­fallið 16 pró­sent. Fjórum árum síðar var hlut­fallið hjá stúlkum sem töldu sig nota sím­ann of mikið orðið 67 pró­sent og hjá piltum 40 pró­sent. Síðan hafa þessar tölur hækkað til muna og sífellt fleiri ung­menni á fram­halds­skóla­aldri segj­ast bein­línis háð sím­anum. Þau segja sím­ann valda streitu og þótt þau reyni að minnka notk­un­ina gangi það illa.

Í við­tali við danska útvarpið, DR, fyrir nokkrum árum sagð­ist hópur fram­halds­skóla­nema að það væri bæði æski­legt og nauð­syn­legt að skól­arnir settu reglur um far­síma- og tölvu­notkun. Þótt iðu­lega væri rætt um nauð­syn ein­hvers­konar reglna, eða leið­bein­inga gerð­ist þó fátt í þá veru. Einstaka skólar settu sér reglur en frá ráðu­neyti mennta­mála eða Mennta­mála­stofn­un­inni komu engar leið­bein­ingar. Umræðan um sím­ana í skóla­stof­unni varð sífellt fyr­ir­ferð­ar­meiri en það var ekki fyrr en í lið­inni viku (11.12. 2023) að Mennta­mála­stofn­unin birti ráð­legg­ingar sem skólar geta stuðst við varð­andi síma- og tölvu­notkun nem­enda. Stofn­unin hefur ekki heim­ild til fyr­ir­skip­ana í þessum efnum, getur ein­ungis gefið ráð. Hver skóli ræður sinni útfærslu.

Helstu atriði

Ráð­legg­ingar Mennta­mála­stofn­un­ar­innar eru í nokkrum liðum. Fyrst er nefnt að hver skóli leggur lín­urnar sem fylgja skal. Þessar eru helstar:

Skóla­stjórnin setur reglur um skjá­notkun.

Stjórnin setur regl­urnar í sam­ráði við kenn­ara og nem­endur.

Ákveðnar reglur gildi um far­síma, t.d hvort nem­endur megi nota þá í frí­mín­útum og mat­ar­tímum.

Lokað verði fyrir tölvu­að­gang að ónauð­syn­legum heima­síðum (eld­veggur).

Í upp­hafi hvers tíma skuli vera slökkt á tölvum og tölvu­notkun í hópa­vinnu tak­mörkuð.

Skjá­notkun skuli tak­mörkuð og í kennsl­unni séu fyr­ir­fram ákveðin tölvu­laus tíma­bil. Blað, blý­antur og lestur komi í stað­inn.

Gert sé ráð fyrir að í heima­vinnu nem­enda sé skjá­notkun tak­mörkuð.

Í frí­mín­útum og lengri hléum verði skjá­laus afþrey­ing í boði. Það gildi líka um félags­líf nem­enda sem skól­inn skipu­leggur utan hefð­bund­ins skóla­tíma.

Nemendur, kennarar og ráðherra ánægðir með að settar verði reglur

Ráð­legg­ingar Mennta­mála­stofn­unar voru, eins og áður sagði, kynntar fyrir nokkrum dögum. Stofn­unin hefur ekki heim­ild til að fyr­ir­skipa eitt né neitt í þessum efnum, ein­ungis ráð­leggja.

Í könnun tveggja danskra fjöl­miðla meðal nem­enda og kenn­ara í nokkrum fram­halds­skólum kom fram ánægja með ráð­legg­ing­arnar. Mattias Tesfaye barna- og mennta­mála­ráð­herra lýsti mik­illi ánægju með að skól­arnir fengju þarna eitt­hvað til að styðj­ast við en sagði jafn­framt að það væri í valdi skól­anna að ákveða vinnu­lagið, eins og hann komst að orði. Og bætti við „Skóli á að vera lif­andi vinnu­staður þar sem sam­tal og sam­vinna er í önd­vegi, skóla­stofan á ekki að vera fram­leng­ing á ung­linga­her­berg­inu heima“. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár