Hvalirnir upplifa „gríðarlega þjáningu og angist“

Síðasta sumar veiddi Hvalur hf. eina mjólk­andi lang­reyð­arkú, sem þýðir að hún hefur verið með kálf á spena. Sá hefur lík­lega ekki lifað lengi án móður sinnar. Ellefu kýr með fóstri voru veiddar. Sum þeirra höfðu náð um það bil 2/3 fæð­ing­ar­stærðar sinnar. Eftirför í myrkri, allt að sex sprengiskutlum skotið að einu og sama dýr­inu og tveggja klukku­stunda dauða­stríð þar sem lang­reyð­urin synti særð um, kaf­aði og blés, er meðal þess sem átti sér stað á síð­ustu ver­tíð Hvals hf. Lög um vel­ferð dýra voru ekki brotin að mati Mat­væla­stofn­unar.

Hvalirnir upplifa „gríðarlega þjáningu og angist“
Marg­skotin Kristján Loftsson, for­stjóri Hvals hf., virðir fyrir sér lang­reyði sem nokkra sprengiskutla þurfti til að drepa á síð­ustu ver­tíð. Fjórða hvert dýr sem veitt var þurfti að skjóta oftar en einu sinni. Mynd: Arne Feuerhahn

Hann er enn lif­andi,“ segir skip­verji á hval­veiði­skipi Hvals hf. eftir að sprengju­skutli er hleypt af og hefur hæft lík­ama um 18 metra langrar lang­reyðar í annað sinn. Fyrra skotið hafði hæft hana við munn­vik og auga. Hún virð­ist slegin út í nokkrar mín­útur en rankar svo við sér og syndir af stað. Vefur taug­inni úr sprengiskutl­inum um lík­ama sinn og slítur hana. Syndir lengi, kafar og blæs í um sautján mín­útur. Þar til hún er skotin öðru sinni. 2–3 mín­útum seinna dregur hratt af henni.

Dauða­stríð hennar varði í nítján mín­útur. Það er um það bil jafn­lengi og það tekur að aka frá Litlu kaffi­stof­unni til Hvera­gerðis á lög­legum hraða.

Skot í myrkri

Þetta er þó ekki lengsta dauða­stríðið sem greint er frá í eft­ir­lits­skýrslu Mat­væla­stofn­unar með hval­veiðum síð­asta sum­ars sem gefin var út á mánu­dag. Það dýr var skotið fjórum sinnum, rétt eins og urðu örlög þriggja ann­arra, í eft­ir­för hval­veiði­manna sem stóð fram í myrkur og í tvær klukku­stundir. Sex sprengiskutlum var í heild skotið á dýrið, en tveir þeirra geig­uðu. „Því var um mjög langt dauða­stríð að ræða og ætla má með miklum þján­ingum áður en [dýrið] drapst,“ segir í skýrsl­unni sem Þóra Jón­as­dóttir, sér­greina­dýra­læknir villtra dýra hjá MAST, ritar. Til að setja þá tíma­lengd í sam­hengi má nefna að Disney-kvik­myndin Frozen er 107 mín­útur. Og dauða­stríð þessa til­tekna ein­stak­lings stóð þrettán mín­útum betur. Í 120 mín­útur.

Þetta frá­vik, eins og það er kallað, því lögum og reglum sam­kvæmt á að aflífa dýrið sam­stundis eða á sem skemmstum tíma, er að mati MAST „afar alvar­legt“. Stofn­unin bendir þó á að hún telji „alltaf alvar­legt ef að dýr sem eru veidd drep­ast ekki sam­stundis eða mjög fljótt“.

Við veiðar 11. sept­em­ber var kýr skotin fjórum sinnum. Fyrsta skot­inu hleypti skyttan af klukkan 12.26. Sá skut­ull hæfði bægsli. Öðru skoti var hleypt af kl. 12.48. Sá skut­ull hæfði kúna rétt ofan bægslis en sprakk ekki. Hún var skotin í þriðja sinn kl. 12.55, rúmum hálf­tíma eftir fyrsta skotið. Það hæfði hana ofar­lega í bak. Og sá skut­ull sprakk ekki heldur. Klukkan 13.11 var því fjórða skot­inu hleypt af.

Tíu mín­útum síðar er hún úrskurðuð dáin. Dauða­stríðið stóð í tæpa klukku­stund.

Sprakk við snertingu

Við veið­arnar á öðru dýri þennan sama dag sprakk sprengiskut­ull­inn þegar við snert­ingu og því áður en hann gekk inn í lík­ama þess. Dýrið var skotið öðru sinni. Dauða­stríðið varði í ell­efu mín­útur.

Af þeim 148 lang­reyðum sem veiddar voru á 100 daga ver­tíð Hvals hf. síð­asta sumar þurfti að skjóta 36 þeirra tvisvar eða oftar, eða í um fjórð­ungi til­fella. 

„Alvarleg atvik“ sem þessi, þar sem dauða­stríðið varir lengi, eru skráð átján sinnum á síð­ari hluta síð­ustu ver­tíðar Hvals hf., eina fyr­ir­tæk­is­ins sem stundar hval­veiðar við Ísland.

Skot í myrkriFjórum sprengiskutlum var skotið í eitt dýr­anna á um tveggja klukku­stunda tíma­bili áður en það dó. Heimild: MAST

Óútskýrð töf á endurskoti

Vinnu­reglur eru þær að hlaða byss­urnar þegar í stað eftir að í ljós kemur að fyrsta skot hefur geigað, þ.e. að ekki hafi tek­ist að drepa dýrið sam­stundis. Það tekur um átta mín­útur. En í nokkrum til­vikum, sem MAST fjallar um í skýrslu sinni, sem m.a. byggir á mynd­böndum sem tekin voru upp um borð sam­kvæmt nýrri reglu­gerð, eru dýrin ekki end­ur­skotin nærri strax. Einn hval­ur­inn er fyrst skot­inn aftur eftir 19 mín­útur, annar eftir 15 mín­útur og í þriðja til­vik­inu líða heilar 22 mín­útur. „Ástæður fyrir töfum við end­ur­skot liggja ekki fyrir,“ segir í skýrsl­unni.

Ekki tókst að ná þremur hvölum sem skotnir voru. Einn þeirra sleit taug­ina og synti af stað með sprengiskut­ul­inn í bak­inu. Honum var veitt eft­ir­för í fimm klukku­stundir án þess að hann næð­ist.

Edda Elísabet Magn­ús­dóttir sjávar- og atferl­is­vist­fræð­ingur segir það enga spurn­ingu að lang­reyðar finni sárs­auka við skotin og verði hræddar. „Þetta eru spen­dýr eins og við sem eru með sam­bæri­legt tauga­kerfi og við sjálf,“ segir hún við Heim­ild­ina. „Því er ekki spurn­ing að dýrin upp­lifi gríð­ar­lega þján­ingu og ang­ist.“

Mjólkandi og kelfdar kýr

Síðasta sumar veiddi Hvalur hf. eina mjólk­andi lang­reyð­arkú. Ellefu kýr með fóstri voru veiddar, eða 12 pró­sent af öllum kven­dýr­unum. Sum fóstrin voru búin að ná um það bil 2/3 fæð­ing­ar­stærðar sinnar.

„Kýr sem mjólkar er að öllum lík­indum með kálf,“ segir Edda Elísabet. Kálfarnir fæð­ist yfir­leitt á tíma­bil­inu nóv­em­ber til mars og mæð­urnar mjólki í 6–7 mán­uði eftir fæð­ingu. „Og ef hún er veidd að sumri og er mjólk­andi er kálf­ur­inn lík­lega enn að venj­ast fastri fæðu,“ bendir hún á. „Því eru miklar líkur á því að kálf­ur­inn hennar hafi það ekki af, ekki nema hann kom­ist í slag­tog við aðrar lang­reyðar og læri að elta uppi bráð­ina.“

Kelfdar kýrFóstur sem skorið var úr kviði lang­reyðar í Hval­stöð­inni í Hval­firði síð­asta sumar dregið eftir plan­inu.

Samkvæmt 3. grein laga um hval­veiðar, sem í grunn­inn eru frá árinu 1949, er óheim­ilt að veiða kálfa og hvali sem kálfar fylgja. Er mjólk­andi kýrin var veidd var mynd­bandseft­ir­lit um borð í hval­veiði­bát­unum ekki hafið. Engar slíkar óyggj­andi heim­ildir eru þess vegna til um það hvort kálfur sást fylgja kúnni eða ekki.

Fyrri skýrslan

Þetta er í annað sinn sem gerð er skýrsla af yfir­völdum hér á landi um skil­virkni og vel­ferð við veiðar stór­hvela. Sú fyrri var unnin árið 2014 af norskum dýra­lækni. Í þeirri skýrslu er til­tekið að 84 pró­sent af dýr­unum hafi dáið sam­stundis og engin eru sögð hafa sýnt lífs­mörk eftir fyrsta skot lengur en í 15 mín­útur.

Nið­ur­stöður norska sér­fræð­ings­ins eru allt aðrar en þær sem sér­fræð­ingar MAST birta í skýrslu sinni. Aðeins 59 pró­sent lang­reyða sem veiddar voru í fyrra dóu sam­stundis og eftir fyrsta skot sýndu 14 pró­sent þeirra lífs­mörk lengur en í 15 mín­útur, þar af eitt dýr í tæp­lega klukku­stund og annað í tvær klukku­stundir. „Verður slíkt að telj­ast afar langt og þján­ing­ar­fullt dauða­stríð, þar sem bæði þessi dýr höfðu fengið í sig fjóra sprengiskutla,“ segir í skýrslu MAST. „Skil­virkni við aflífun hval­anna var því verri á árinu 2022 heldur en árið 2014 og dýra­vel­ferð getur þar með talist lak­ari.“

Sérfræðingur í hvalveiðum

Norski dýra­lækn­ir­inn sem atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið, undir stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, fékk til skýrslu­gerð­ar­innar, heitir Egil Ole Øen. Hann er einn helsti sér­fræð­ingur Noregs í hval­veiðum og kom að end­ur­hönnun sprengiskutla sem not­aðir eru við veið­arnar. Hann hefur nú í mörg ár séð um þjálfun skot­manna og ann­arra í áhöfn hval­veiði­skipa Hvals hf. auk þess að hafa unnið ráð­gjaf­ar­störf fyrir fyr­ir­tækið. Andmæli Hvals hf. við skýrslu­drögin, sem voru ítar­leg og und­ir­rituð af Krist­jáni Lofts­syni, for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, eru m.a. byggð á grein­ingu Øen.

Með bráð­inaHvalskip Hvals hf. á leið með tvær lang­reyðar til hafnar í Hval­firði.

Og túlkun hans á gögn­unum eru í mörgum atriðum, ef ekki flestum, mjög frá­brugðin nið­ur­stöðum sér­fræð­inga eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar. Túlkun hans á því hvenær hval­irnir eru dánir er m.a. önnur. Í einu til­viki metur hann dán­ar­tíma 0 mín­útur þar sem MAST metur hann 19 mín­útur, svo dæmi sé tekið.

Uppfærsla á veiðibúnaði breytti engu

Þóra, dýra­læknir hjá MAST, setti sig í sam­band við Øen í fyrra og sagð­ist hann þá vera á leið til lands­ins að beiðni for­stjóra Hvals hf. til að fara yfir tækja­búnað og fleira, „þar sem skoða þyrfti þá háu tíðni þess að skjóta þurfi dýr tvisvar og allt að fjórum sinnum“. Eftir þá heim­sókn ræddi hún aftur við hann og sagði hann verk­efnið hafa gengið vel, sprengi­efni hefði verið bætt í skut­ul­byssu til að tryggja að hraði og afl væri nægj­an­legt og vonir stæðu til að til­fellum þar sem þyrfti að skjóta dýr aftur myndi fækka.

En þetta dugði ekki til. „Enginn mark­tækur munur er á milli fyrri hluta og seinni hluta veiði­tíma­bils 2022 hvað varðar fjölda hvala sem skotnir voru oftar en einu sinni, þrátt fyrir að vonir stæðu til þess að breyt­ing yrði eftir leið­rétt­ingar sem voru fram­kvæmdar af norskum sér­fræð­ingi,“ segir í skýrslu MAST.

Íslendingar veitt stórhveli í tæpa öld

Hval­veiðar hafa verið stund­aðar við Ísland lengi en veiðar á stór­hvelum á borð við lang­reyðar hófust þó ekki fyrr en með til­komu sprengiskut­uls­ins í lok 19. aldar. Norðmenn stund­uðu þessar veiðar hér af miklu kappi en Íslend­ingar hófu hins vegar ekki að veiða stór­hveli fyrr en um 1935. Hvalur hf. hefur stundað hval­veiðar frá fimmta ára­tug síð­ustu aldar með hléum.

Í slippHvalur hf. er að gera hval­veiði­skip sín tvö klár á ver­tíð sum­ars­ins og hafa þau verið í slipp í Reykja­vík.

Fyr­ir­tækið fékk upp­haf­lega leyfi til hval­veiða árið 1947 og var það end­ur­nýjað árið 1959. Á grund­velli þess leyfis stund­aði Hvalur veiðar allt til árs­ins 1985 er sam­þykkt Alþjóða­hval­veiði­ráðs­ins, sem fól í sér bann við öllum veiðum í atvinnu­skyni, tók gildi. Íslend­ingar gengu úr ráð­inu 1992 en aftur í það ára­tug síðar. Hvalur hf. hóf veið­arnar á ný 2006 og hefur stundað þær síðan með hléum. Sumarið 2019 veitti Kristján Þór Júl­í­us­son, þá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, fyr­ir­tæk­inu leyfi til veiða á lang­reyði til árs­ins 2023. 

Segir lög um velferð dýra eiga ekki við

Í athuga­semdum Hvals er bent á að eft­ir­lits­skýrslan sé grund­völluð á reglu­gerð um eft­ir­lit með vel­ferð dýra við veiðar á hvölum, sem Svandís Svav­ars­dóttir gaf út í fyrra­sumar, sem aftur sæki stoð sína í lög um vel­ferð dýra frá árinu 2013. For­svars­menn Hvals hf. telja hval­veiðar hins vegar falla utan við gild­is­svið þess­ara laga. „Af því leiðir jafn­framt að reglu­gerðin á sér ekki við­hlít­andi laga­grund­völl.“

Kristján Loftsson skrifar að sam­kvæmt dýra­vel­ferð­ar­lög­unum taki þau ekki til „hefð­bund­inna veiða og föng­unar á villtum fiski“ og vill hann meina að hval­veiðar falli þar undir. „Hval­veiðar eru hefð­bundnar veiðar sem hvíla á gömlum merg og því und­an­skildar efni lag­anna.“

Horfa verði til „eðlis veið­anna“ og „hvaða kröfur séu raun­hæfar í þeim efnum“. Hval­veiðar verði til dæmis „fjarri lagðar að jöfnu við aflífun búfjár eða ann­ars dýra­halds“. Við veiðar á villtum dýrum sé „engin krafa um að dýrið skuli gert með­vit­und­ar­laust eða að það deyi taf­ar­laust“ en að „ákjós­an­legt skot­mark“ sé í  brjóst­holið“.

Þessum lög­skýr­ingum for­stjóra Hvals hf. mót­mælir MAST og segir ljóst að veiðar á hvölum falli undir gild­is­svið dýra­vel­ferð­ar­lag­anna og þá einnig reglu­gerð ráð­herra frá því í ágúst. „Gild­is­töku­á­kvæði laga um vel­ferð dýra er skýrt og ein­ungis hefð­bundnar veiðar á villtum fiski og föngun á villtum fiski falla utan gild­is­sviðs lag­anna. Veiðar á spen­dýrum, þ.m.t. hvölum, geta með engum hætti fallið undir slíkt und­an­þágu­á­kvæði.“

Ósprungnir skutlarÍ nokkrum til­vikum síð­asta sumar sprungu sprengiskutlar hval­veiði­manna ekki er þeir hæfðu lang­reyð­arnar. Þessi var með að minnsta kosti þrjá skutla í sér er hún var dregin á land, þar af einn í bægsli.

Óyggjandi staðreyndir

Hvalur hf. telur sam­an­tekið að á eft­ir­lits­skýrsl­unni séu „fjöl­þættir ann­markar“, sem dragi úr áreið­an­leika og þýð­ingu hennar og er þekk­ing eft­ir­lits­manna yfir­valda, sem voru um borð í hval­veiði­skip­unum síð­ari hluta ver­tíðar, m.a. dregin í efa. Ef rétt yrði staðið að málum myndi nið­ur­staðan lík­lega verða svipuð og sú sem Egil Ole Øen fékk út árið 2014.

MAST svarar þessu og segir að „meint reynslu­leysi“ eft­ir­lits­fólks í að skrá við­brögð hvala eftir skot með sprengiskutli, „breyti ekki þeirri stað­reynd sem er óyggj­andi, að end­ur­skjóta þurfi 24 pró­sent allra dýra og mynd­bands­upp­tökur sýna skýrt að öll þau dýr sem voru end­ur­skotin, syntu, köf­uðu og blésu eftir fyrsta skot“.

Ekki lögbrot

Þrátt fyrir að sér­fræð­ingar Mat­væla­stofn­unar segi í nið­ur­stöðum skýrslu sinnar að veiðar á stór­hvelum séu ekki í sam­ræmi við mark­mið laga um vel­ferð dýra, dragi upp mörg dæmi um langt og þján­ing­ar­fullt dauða­stríð dýr­anna, fjalli um að til­raunir til betrum­bóta á veiði­bún­aði hafi engu skilað, að veiðar hafi verið stund­aðar í myrkri, mjólk­andi kýr veidd og þrjú dýr hafi verið skotin en ekki náðst, telja þeir Hval hf. ekki hafa brotið lög. MAST segir þó, í svörum til Heim­ild­ar­innar, að þessi útkoma veið­anna út frá vel­ferð dýra sé „alger­lega óásætt­an­leg“ og óskar stofn­unin ein­dregið eftir því að það verði rýnt hvort veiðar á stór­hvelum geti yfir höfuð upp­fyllt mark­mið laga um vel­ferð dýra.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár