Fjöl­miðlar Fjöl­miðla­frelsi á Íslandi mælist mun minna en í nágranna­löndum okkar. Mynd: Davíð Þór

Ísland hrapar niður í 18. sæti á lista yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum

Ísland fellur um þrjú sæti milli ára í mæl­ingu Blaða­manna án landamæra á fjöl­miðla­frelsi. Ófræg­ing­ar­her­ferðir gagn­vart blaða­mönnum sem fjallað hafa um Samherja er sér­stak­lega til­tekin og sagt að blaða­menn upp­lifi póli­tískan þrýst­ing vegna harka­legrar gagn­rýni stjórn­mála­manna.

Ísland fellur um þrjú sæti milli ára í vísi­tölu sam­tak­anna Blaða­menn án landa­mæri sem mælir fjöl­miðla­frelsi í 180 ríki heims­ins og var birt í dag. Ísland situr nú í 18. sæti list­ans. Það er lægsta sæti sem Ísland hefur setið í síðan 2016, en Ísland mæld­ist oft­ast nær í efstu sætum list­ans framan af þess­ari öld. Þannig var Ísland í fyrsta sæti á lista sam­tak­anna yfir þau lönd þar sem fjöl­miðla­frelsi var mest árið 2008 og í öðru sæti tveimur árum síðar.

Frá þeim tíma hefur Ísland hrapað hratt á list­anum. Fyrsta fallið kom á árunum 2015 og 2016, þegar Íslandi féll niður í 19. og 21. sæti list­ans. Það var komið í 10. sæti árið 2017 og hefur verið í 15. til 16. sæti á síð­ustu árum. Nú er Ísland, líkt og áður sagði, komið í 18. sætið. 

Áfram sem áður raða nágranna­lönd okkar sér í efstu sætin. Noregur trónir á toppnum á meðan að Danmörk, Svíþjóð og Finnland sitja í sætum þrjú til fimm. Í öllum þessum ríkjum er umfangs­mik­ill rík­is­stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla. Inn á milli smeygir Írland, annað nágranna­land Íslands, sér í annað sætið úr því sjötta á milli ára. 

Sjávarútvegur ógni sjálfstæðinu

Í rök­stuðn­ingi fyrir stöðu Íslands er til­tekið að fjöl­miðlar hér­lendis njóti skil­virkrar laga­verndar og mik­ils trausts almenn­ings, en að sjálf­stæði þeirra, sem þegar sé veikt vegna smæðar mark­að­ar­ins, standi frammi fyrir ógnum frá sjáv­ar­út­vegi, helstu atvinnu­greinum lands­ins.

Mikil sam­þjöppun eign­ar­halds marki lít­inn fjöl­miðla­markað. 

Ljóst er að vísi­talan er unnin áður en greint var frá því að Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla, var tekið til gjald­þrota­skipta fyrir um mán­uði og því gengið út frá að á Íslandi séu tvö dag­blöð og fjögur stór fjöl­miðla­fyr­ir­tæki: RÚV, Sýn, Árvakur og Torg. Eftir þá atburði hefur dag­blöð­unum hins vegar fækkað í eitt, Morg­un­blaðið, og stóru fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­unum í þrjú, sem dregið hefur enn frekar úr fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði. Árvakur, sem gefur út Morg­un­blaðið, er að uppi­stöðu í eigu aðila sem tengj­ast sjáv­ar­út­vegi og Sýn er í skráð á hluta­bréfa­markað. Torg var í eigu Helga Magn­ús­sonar áður en útgáfu­fé­lagið fór í þrot, en hann var meðal ann­ars einn þeirra sem stóð að stofnun stjórn­mála­flokks­ins Við­reisnar á sínum tíma.

Blaða­menn án landamæra segja að stórir inn­lendir fjöl­miðlar njóti almennt sjálf­stæðis, séu vernd­aðir af lögum sem og eigin stöðlum sem fag­fé­lög og stofn­anir setja þeim, til að mynda siða­reglur Blaða­manna­fé­lags Íslands. Blaða­menn séu þó við­kvæm­ari fyrir áhrifum frá sveit­ar­fé­lögum og fyr­ir­tækjum. Und­an­farin ár hafi Alþingi þjónað sem vett­vangur fyrir harka­lega gagn­rýni á blaða­menn. Margir frétta­menn líti á mörg þeirra ummæla sem þar falla sem póli­tískan þrýst­ing.

Blómaskeið þegar spillingarmál voru opinberuð

Í umfjöll­un­inni segir að rann­sókn­ar­blaða­mennska hafi upp­lifað ákveðið blóma­skeið á Íslandi á síð­ustu árum og sam­hliða því hafi verið upp­lýst um stór spill­inga­mál. Aug­lýs­inga­tekjur, sem þegar voru tak­mark­aðar vegna smæðar mark­að­ar­ins, hafi almennt dreg­ist saman í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum.

Til að bæta upp hefur rík­is­stjórnin veitt fjöl­miðlum fjár­hags­legan stuðn­ing, þó sumir ótt­ist að átakið hygli stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­unum á kostnað hinna minni, sem dragi úr fjöl­hyggju á mark­aðnum. Þar er um að ræða end­ur­greiðslur á hluta af kostn­aði við rekstur rit­stjórna sem greiddir eru út einu sinni á ári. Áætlað er að 377 millj­ónir króna verði veittar til einka­rek­inna fjöl­miðla í ár í gegnum það kerfi, en í fyrra skipt­ust styrkirnir niður yfir tutt­ugu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki. Eftir að reynt var að miðla 100 millj­ónum króna til fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins N4 úr rík­is­sjóði fram­hjá styrkt­ar­kerf­inu, en sú til­raun stöðvuð á loka­metr­unum, var ákveðið var að fjár­­fram­lagið myndi renna inn í styrkja­­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla. Það hækkar þá upp­­hæð sem þar verður til úthlut­unar í eitt skipti úr 377 millj­­ónum króna á næsta ári, í 477 millj­­ónir króna. Auk þess stendur til að stuðn­ing­ur rík­is­sjóðs við einka­rekna fjöl­miðla verði­auk­inn um 400 millj­ón­ir króna á ári, sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­mála­áætl­un.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar verður stendur til að miðla við­bót­ar­fjár­hæð­inni til fjöl­miðla í gegnum skattaí­vilnun og er aðgerð­inni ætlað að hvetja fjöl­miðla til að taka upp áskrift­ar­fyr­ir­komu­lag. Útfærsla á leið­inni var þó ekki til­greind í áætl­un­inni.

Ófrægingarherferð gegn blaðamönnum

Blaða­menn án landamæra segja að íslenskir fjöl­miðlar njóti tals­verðs trausts almenn­ing og að borg­arar lands­ins hafi treyst þeim vel til að flytja nákvæmar og réttar fréttir af kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Sjálf­stæði blaða­manna sé hins vegar ógnað af við­skipta­hags­munum, sér­stak­lega sjáv­ar­út­vegs, sem gegnir mik­il­vægu hlut­verki í efna­hags­lífi lands­ins. Stór fyr­ir­tæki séu eig­endur fjöl­miðla, sem varpi fram spurn­ingum um hags­muna­á­rekstra.

Þar end­ur­óma sam­tökin meðal ann­ars fram­setta skoðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins sem sagði í umsögn um fjöl­miðla­frum­varp fyrir nokkrum árum að brýnt væri að stuðn­ingur við fjöl­miðla af almannafé hefði það að meg­in­­­mark­miði að styðja við fjöl­ræði og fjöl­breytni. „Í þessu sam­­­bandi hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið í huga að eign­­­ar­hald stærri einka­rek­inna fjöl­miðla hefur í vax­andi mæli þró­­­ast á þann veg að eign­­­ar­haldið hefur færst á hendur fjár­­­­­sterkra aðila sem standa fyrir til­­­­­tekna skil­­­greinda hags­muni í íslensku atvinn­u­­­lífi. Í sumum til­­­vikum blasir við að ráð­­­stöfun þess­­­ara aðila á fjár­­­munum í fjöl­miðla­­­rekstur hefur það meg­in­­­mark­mið að ljá hags­munum við­kom­andi aðila enn sterk­­­ari rödd og vinna þeim þannig frek­­­ari fram­­­gang.“ 

Þá benda sam­tökin á að frá árinu 2020 hafi blaða­menn sem komið hafi að því að rann­saka og flytja fréttir af Samherja og meintum lög­brotum og spill­ingu þess fyr­ir­tækis í Namibíu, Íslandi og víðar, hafi orðið fyrir ófræg­ing­ar­her­ferð. Opin­berun Kjarnans og Stund­ar­innar, sem sam­ein­uð­ust undir merkjum Heim­ild­ar­innar í upp­hafi þessa árs, á starfs­háttum „skæru­liða­deildar Samherja“ í maí 2021 leiddi til þess að stjórn­mála­menn og félaga­sam­tök for­dæmdu fram­ferði fyr­ir­tæk­is­ins. Það baðst afsök­unar á fram­göngu sinni gagn­vart blaða­mönnum og ýmsum öðrum og síðar afsök­unar á ámæl­is­verðum við­skipta­háttum í Namibíu. Þeir blaða­menn sem skrif­uðu þær opin­ber­anir hafa verið til rann­sóknar hjá lög­regl­unni á Norð­ur­landi eystra fyrir meint brot gegn frið­helgi einka­lífs vegna þeirra skrifa í tvö ár. 

Umhverfið „slæmt“ í sjö af hverjum tíu löndum

Í sam­an­tekt Blaða­manna án landamæra er 180 löndum og svæðum raðað upp í röð eftir fjöl­miðla­frelsi. Hún byggir á því að sér­­fræð­ingar svara spurn­inga­list­­anum sem gerður er af sam­tök­un­­um. Þau svör eru síðan greind og lönd­unum gefin ein­kunn. Því hærri sem hún er, því meira er fjöl­miðla­frels­ið. Nor­egur fær til að mynda ein­kunn­ina 95,18.

Ísland fær hins vegar 83,19 og stiga­­fjöldi lands­ins eykst um 0,5 á milli ára. 

Norð­­­ur­-Kór­ea vermir neðsta sæti list­ans en skammt fyrir ofan það ein­ræð­is­ríki situr stór­veldið Kína, í sæti 179. Samkvæmt nið­ur­stöðu sam­tak­anna er ástand fjöl­miðla­frelsis „mjög alvar­legt“ í 31 landi, „erfitt“ í 42, „vanda­samt“ í 55 og „gott“ ” eða „full­nægj­andi“ í 52 löndum. Það þýðir að umhverfi blaða­mennsku sé „slæmt“ í sjö af hverjum tíu löndum og við­un­andi í aðeins þremur af hverjum tíu.

Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni er fjallað um atburði sem tengj­ast Heim­ild­inni og starfs­mönnum fjöl­mið­ils­ins beint.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Því miður bendir allt til þess að við séum í besta falli í miðju – í 90 sæti.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár