Icelandair ætlar að kaupa 25 vélar frá Airbus – Áratugalöngu sambandi við Boeing lokið

Í dag eru allar flug­vélar sem Icelandair notar í milli­landa­flugi frá banda­ríska fram­leið­and­anum Boeing. Það mun breyt­ast á næstu árum, eftir að félagið ákvað að kaupa allt að 25 vélar frá helsta sam­keppn­is­að­ila þess, Airbus. Fyrstu vél­arnar verða afhentar 2025.

Icelandair ætlar að kaupa 25 vélar frá Airbus – Áratugalöngu sambandi við Boeing lokið
Inn­á­skipt­ing Airbus vél­arnar sem Icelandair er að kaupa rúma um 190 far­þega en til sam­an­burðar rúma Boeing 757 flug­vélar félags­ins 183 far­þega, Boeing 737 MAX-8 160 far­þega og Boeing 737 MAX-9 178 far­þega. Mynd: Samsett

Icelandair hefur und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um kaup á 13 flug­vélum frá flug­véla­fram­leið­and­anum Airbus. Auk þess felur yfir­lýs­ingin í sér kaup­rétt á tólf flug­vélum til við­bótar. Alls er því um að ræða 25 vélar af Airbus A320neo-fjöl­skyldu flug­véla sem búa bæði yfir mik­illi drægni og eru mun spar­neytn­ari en eldri vélar. Fyrstu vél­arnar verða afhentar árið 2025.

Í til­kynn­ingu er kaup­verðið sagt trún­að­ar­mál og að fjár­mögnun verði „ákveðin þegar nær dregur að afhend­ingu þar sem fjöl­breyttir fjár­mögn­un­ar­kostir verða skoð­aðir.“

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair, segir í til­kynn­ingu að nýju vél­arnar muni gera félag­inu kleift „að þróa við­skipta­líkan félags­ins enn frekar í flugi yfir Atl­ants­hafið og jafn­framt skapa tæki­færi til að sækja á nýja og spenn­andi mark­aði.“

Hætta að versla við Boeing

Vilja­yf­ir­lýs­ingin boðar kúvend­ingu í flug­véla­kaupum Icelandair. Sem stendur er allur floti félags­ins frá hinum stóra flug­véla­fram­leið­and­anum, hinu banda­ríska Boeing. Uppi­staðan í flot­anum síð­ustu ára­tugi hafa verið 757-vélar frá þeim fram­leið­anda en þær eru komnar vel til ára sinna, hafa ekki verið fram­leiddar í 18 ár, eyða um fjórð­ungi meira af elds­neyti en nýrri vélar og útheimta umtals­verðan við­halds­kostnað. 

Til að takast á við þessa stöðu, með það fyrir augum að hætta rekstri 757-vél­anna, pant­aði Icelandair 16 737-MAX vélar af Boeing árið 2013 og hafði fengið sex þeirra afhentar áður en að vél­arnar voru kyrr­settar í mars í 2019. Kyrr­setn­ingin á vél­unum kom til eftir flug­slys í Eþíóp­íu, 13. mars 2019, þegar 157 lét­ust skömmu eftir flug­tak Max vélar Ethi­opian Airlines. Það var þá annað slysið á skömmum tíma þar sem Max vél hrap­aði með þeim afleið­ingum að allir um borð lét­ust. Fyrra slysið var 29. októ­ber 2018, þegar vél Lion Air í Indónesíu hrap­aði skömmu eftir flug­tak. Þá lét­ust 189, allir um borð.

Í ágúst 2020, þegar Icelandair var í miklum rekstr­ar­vanda og stóð frammi fyrir því að ráð­ast í hluta­fjár­út­boð til að bjarga sér, var gengið frá sam­komu­lagi við Boeing sem í fólst að vélum sem Icelandair er skuld­bundið til að kaupa til við­bót­ar, á grund­velli samn­ings­ins frá 2013, var fækkað úr tíu í sex. Auk þess var afhend­ingu þeirra frestað. 

MAX-vél­arnar voru ekki teknar aftur í notkun hjá Icelandair fyrr en í mars 2021, og höfðu þá verið kyrr­settar í tvö ár á meðan að unnið var að úrbótum á þeim, með til­heyr­andi skaða á rekstur Icelandair.  

Síðan þá hefur Icelandair bætt við sig MAX-vélum á leigu og alls eru nú 15 slíkar í flota félags­ins. Auk þess heldur Icelandair enn úti 13 gömlum 757-vélum, en þeim verður skipt út fyrir Airbus-vél­arnar í nán­ustu fram­tíð, og þremur 767-vélum.

80 milljarða króna tap á örfáum árum

Kyrr­setn­ing MAX-vél­anna hafði mikil nei­kvæð áhrif á rekstur Icelandair. Þegar það virt­ist ætla að rofa til í þeim efnum skall kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn á með lam­andi áhrifum á flug­sam­göngur, sem leiddi af sér enn meiri tap­rekstur. 

Erf­ið­leikar í rekstri voru raunar byrj­aðir áður en ofan­greind áföll skullu á. Árið 2018 tap­aði félagið 6,8 millj­örðum króna, 7,8 millj­örðum króna ári síðar og 2020 var tapið heilir 51 millj­arður króna. Tapið 2021 var 13,7 millj­arðar króna en í fyrra dróst það veru­lega saman. Icelandair tap­aði samt 826 millj­ónum króna. Alls hefur félagið því tapað um 80 millj­örðum króna frá árinu 2018.

Sú rekstr­ar­nið­ur­staða verður líka að skoð­ast í sam­hengi við það að Icelandair fór tví­vegis í hluta­fjár­aukn­ingu eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Félagið safn­aði alls 23 millj­­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­­em­ber 2020, meðal ann­ars frá íslenskum almenn­ingi. Í því þurftu þeir sem þegar áttu í Icelandair að sætta sig við að eign þeirra þynnt­ist veru­lega út, en á meðal þeirra voru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Þegar hluta­fjár­út­boðið fór fram var lið­inn ára­tugur frá því að rekstur Icelandair var end­ur­skipu­lagður síð­ast. Stórir líf­eyr­is­sjóðir, sem stóðu frammi fyrir þynn­ingu á eign, höfðu ekki farið vel út úr fjár­fest­ingu sinni í félag­inu á því tíma­bili, líkt og greint var frá í Kjarn­anum 2020.

Icelandair fór svo í aðra hluta­fjár­aukn­ingu sum­arið 2021, þegar félagið gerði  bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóð­inn Bain Capital um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­­­fé­lag­inu. Ekkert eitt fyr­ir­tæki á Íslandi fékk meiri stuðn­ing úr rík­is­sjóði á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð en Icelandair.

Þegar Icelandair kynnti upp­gjör sitt vegna síð­asta árs gætti þó umtals­verðrar bjart­sýni hjá for­stjóra félags­ins. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar var haft eftir Boga Nils að sterk tekju­myndun með met far­þega­tekjum á seinni hluta árs­ins og stór­bætt EBIT hlut­fall á síð­asta ári hafi sýnt að við­skipta­líkan félags­ins hafi enn og aftur sannað gildi sitt. „Við höfum náð vopnum okkar og höldum ótrauð áfram, sterk­ari en nokkru sinni fyrr, með stærstu flug­á­ætlun í sögu félags­ins á þessu ári þegar kemur að tíðni og fjölda áfanga­staða.“ 

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Ein af allra skynsamlegustu ákvörðunum stjórnar Flugleiða að kaupa Airbus flugvélar í stað umdeildra Boeing Max
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Eru laun forstjóra miđuđ viđ bæđi tap og hagnađ fyrrirtækisins, almenningur borgar jú.
    0
  • Sveinn Reynir Sveinsson skrifaði
    Eftir að hafa flogið með Airbus vélum þá hef ég verið í hópi þeirra sem halda upp á Airbus. Hefði viljað sjá pöntun á 320 línu frá Airbus þegar valið var að kaupa 737 MAX frá Boeing.
    0
  • Þetta eru góðar fréttir. Vonandi einn daginn, hefur maður efni á því að fljúga með þeim.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár