Vill gera mömmu sína stolta

Stiven Tobar Valencia skor­aði sín fyrstu mörk fyrir hand­boltalands­liðið um helg­ina þegar Ísland vann Tékka­land og kom sér í væn­lega stöðu fyrir EM á næsta ári. Stiven er 22 ára, útskrif­ast í vor í líf­einda­fræði frá Háskóla Íslands, vinnur í hluta­starfi hjá Alvotech og vinnur af og til sem plötu­snúður og módel. Hann segir að mik­il­vægt sé að for­gangs­raða, velja og hafna. Líkja megi þessu við Rubik-kubb.

Vill gera mömmu sína stolta

„Þetta er mik­ill heiður,“ segir Stiven Tobar Valencia, horna­maður úr Val, sem nýlega var val­inn í karla­lands­liðið í hand­bolta. „Þetta er stórt fyrir mig og alla í kringum mig og ég er mjög ánægður með hvernig þetta hefur allt komið út.“ Hann er 22 ára, útskrif­ast í vor í líf­einda­fræði frá Háskóla Íslands, vinnur í hluta­starfi hjá Alvotech og hefur und­an­farin ár auk þess unnið sem plötu­snúður og módel. „Ég skipu­legg mig mjög vel og stundum þarf maður að velja og hafna. Þetta er eins og Rubik-kubbur. Þetta er kannski skrýtin blanda af súpu; hand­bolti, líf­einda­fræði og DJ.“ Og svo eru það mód­el­störfin.

Stefnir á atvinnumennsku

„Ég var alltaf bæði í hand­bolta og fót­bolta. Félagar mínir voru í báðum íþróttum og ég fylgdi þeim. Við vorum sig­ur­sælli í hand­bolt­anum heldur en í fót­bolt­anum þannig að maður færð­ist hægt og rólega yfir í hand­bolt­ann; maður var val­inn í yngra …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár