Bókfærð mánaðarlaun forstjóra SKEL næstum 19 milljónir ofan á kauprétt upp á milljarð

For­stjóri SKEL fékk á annað hund­rað millj­ónir króna í fyrra vegna „keyptra starfs­rétt­inda“ofan á hefð­bundin laun. Hann fékk auk þess kaup­rétt­ar­samn­ing sem met­inn er á yfir einn millj­arð króna. Olíu­bíl­stjórar hjá dótt­ur­fé­lagi SKEL eru í verk­falli og krefj­ast kjara­bóta. Það tekur þá næstum fjögur ár að vinna sér inn mán­að­ar­laun for­stjór­ans á grunn­launum sínum.

Bókfærð mánaðarlaun forstjóra SKEL næstum 19 milljónir ofan á kauprétt upp á milljarð
Sér á báti Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason var ráð­inn sem for­stjóri SKEL í fyrra. Sá launa- og kaup­rétt­ar­pakki sem hann fékk við ráðn­ing­una er mun umfangs­meiri en tíðkast hefur í íslensku við­skipta­lífi eftir banka­hrun.

Ásgeir Helgi Reyk­fjörð Gylfason, for­stjóri SKEL, var ráð­inn í starfið í apríl í fyrra. Hann hóf störf 9. júlí. Í árs­reikn­ingi Skeljar vegna árs­ins 2022 kemur fram að hann hafi fengið 45 millj­ónir króna vegna svo­kall­aðra „keyptra starfs­rétt­inda“ í fyrra auk þess sem SKEL greiddi 55 millj­ónir króna í launa­tengd gjöld. Á næsta ári mun SKEL gjald­færa 60 millj­ónir króna vegna þessa og á árinu 2025 mun félagið gjald­færa 15 millj­ónir króna. SKEL mun einnig standa skil á launa­tengdum gjöldum síð­ustu tvö árin. 

Heild­ar­fjár­hæðin var hins vegar greidd til Ásgeirs í fyrra og í efna­hags­reikn­ingi SKEL voru færðar alls 165 millj­ónir króna á meðal veltu­fjár­muna vegna þessa. Hann greiddi tekju­skatt af allri upp­hæð­inni á síð­asta ári. 

Ásgeir, sem var áður aðstoð­ar­banka­stjóri Arion banka og er bróðir Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, skuld­batt sig sam­hliða til að starfa hjá SKEL fram í apríl 2025 hið minnsta. …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár