Það sem hefur gerst á 1001 nótt

Sam­herj­a­skjölin voru opin­beruð 12. nóv­em­ber árið 2019. Allar götur síðan hefur rann­sókn staðið yfir á því sem þar kom fram en upp­ljóstr­ar­inn Jóhannes Stef­áns­son gaf sig sama dag fram við emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og sagði rann­sak­endum þar alla sög­una. En hvað hefur gerst síðan Sam­herj­a­skjölin voru birt?

Það sem hefur gerst á 1001 nótt

11. nóvember 2019

Yfir­lýs­ing Samherja vegna yfir­vof­andi umfjöll­unar. Á þeim tíma­punkti hafði efni umfjöll­un­ar­innar um Sam­herj­a­skjölin verið kynnt fyr­ir­tæk­inu með skrif­legum hætti.

„Við höfum sér­stak­lega óskað eftir að fá að setj­ast niður með Rík­is­út­varp­inu og fara yfir upp­lýs­ingar sem við teljum skipta máli í tengslum við fyr­ir­hug­aða umfjöllun. Þeirri beiðni hefur jafn­harðan verið hafnað og hefur Rík­is­út­varpið aðeins talið sér fært að ræða við okkur fyrir framan mynda­vélar. Teljum við þær upp­lýs­ingar sem við búum yfir vera með þeim hætti að slíkt væri til­lits­laust vegna hags­muna þeirra ein­stak­linga sem málið varðar,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Vísað er til boðs fyr­ir­tæk­is­ins til frétta­stjóra RÚV að funda með full­trúum fyr­ir­tæk­is­ins í London. Aldrei hefur feng­ist upp­gefið hvaða upp­lýs­ingar átti að kynna en síðar reyndu full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins að hafa áhrif á útgáfu bókar um Sam­herj­a­skjölin með myndum úr Drop­box­hólfi Jóhann­esar Stef­áns­sonar sem áttu að sýna …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Petur Hauksson skrifaði
    Hvað veldur að ekki er tekið á þessu máli, en með silkihönskum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórnvalda áberandi“
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórn­valda áber­andi“

Í lok októ­ber fór fram umræða á Alþingi um rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namib­íu­mál­inu og orð­spori Íslands þar sem stór orð féllu. Frum­mæl­and­inn, Þór­hildur Sunnar Ævars­dóttir, taldi að fá þyrfti svör við því hvort dráttur á rann­sókn máls­ins á Íslandi væri eðli­legur, hvort yfir­völd á Íslandi tækju málið alvar­lega og hvort rann­sókn­ar­stofn­anir á Íslandi væru nægi­lega vel fjár­magn­aðar.
Kaupa fólk utan fjölskyldunnar út í milljarða viðskiptum
ÚttektSamherjaskjölin í 1001 nótt

Kaupa fólk utan fjöl­skyld­unnar út í millj­arða við­skiptum

Sam­herj­a­fjöl­skyldan hefur á und­an­förnum mán­uðum keypt eign­ar­hluti minni hlut­hafa í útgerð­inni og á að heita má tíunda hvern fisk í land­helg­inni. Börn Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar fara nú nær ein með eign­ar­hluti í félag­inu fyrir utan litla hluti þeirra tveggja. Millj­arða við­skipti hafa svo átt sér stað á milli fjöl­skyldu­fyr­ir­tækj­anna í flóknu neti útgerð­ar­innar.
Samherji sagður hafa boðið milljarða króna til að ljúka málum í Namibíu
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Samherji sagður hafa boðið millj­arða króna til að ljúka málum í Namibíu

Samherji hefur boðið að gefa eftir yfir 2 millj­arða króna sem hald­lagðar voru í Namibíu, sem skaða­bætur til namibíska rík­is­ins í skiptum fyrir mála­lyktir. Namibísk yfir­völd tóku heldur fálega í til­boðið sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Lögmaður Wikborg Rein, sem starfar fyrir Samherja, stað­festir við­ræður en segir til­boðið ein­göngu hluta af einka­rétt­ar­legri deilu Samherja við yfir­völd, því sé ekki um að ræða við­ur­kenn­ingu á sekt í saka­máli.
Rannsókn Samherjamálsins lokið í Namibíu og réttarhöld hefjast brátt
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins lokið í Namibíu og rétt­ar­höld hefj­ast brátt

Werner Menges, blaða­maður The Namibian í Namibíu, segir að yfir­völd í Namibíu hafi lokið rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins. Tekist er á um meint van­hæfi dóm­ar­ans í mál­inu, Kobus Muller, vegna ummæla sem hann hefur látið falla um málið. Hann segir afar ólík­legt að réttað verði yfir starfs­mönnum Samherja eða fyr­ir­tækjum útgerð­ar­innar í Namibíu þar sem Ísland fram­selji ekki Íslend­inga til Namibíu.
Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Bandaríkjunum
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Banda­ríkj­unum

Sænski blaða­mað­ur­inn Sven Bergman, sem fjallað hefur um fjölda mútu­mála sænskra fyr­ir­tækja erlendis, segir að illa hafi gengið að sækja stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna til saka í Svíþjóð fyrir brotin. Alvar­leg­ustu afleið­ing­arnar hafi verið þegar banda­rísk yfir­völd tóku málin til rann­sóknar og sekt­uðu félögin um svim­andi upp­hæðir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár