<span>Afleiðingar Samherjamálsins: </span>19 sakborningar og allt hitt

Afleiðingar Samherjamálsins: 19 sakborningar og allt hitt

Sam­herj­a­málið í Namibíu hefur haft víð­tækar afleið­ingar í Namibíu, á Íslandi , í Noregi og víðar síð­ast­liðin ár. Um er að ræða stærsta spill­ing­ar­mál sem hefur komið upp í Namibíu og Íslandi og eru sam­tals 19 ein­stak­lingar með rétt­ar­stöðu sak­born­ings. Svo eru allar hinar afleið­ing­arnar af mál­inu.

Sam­herj­a­málið í Namibíu er stærsta spill­ing­ar­mál sem komið hefur upp bæði þar og á Íslandi. Málið hefur verið til rann­sóknar und­an­farin ár í báðum löndum og eru nú nítján ein­stak­lingar með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í því: Tíu í Namibíu og níu á Íslandi. Þeir grun­uðu hafa setið í varð­haldi nær allar götur síðan Sam­herj­a­skjölin voru afhjúpuð.

Rannsókn máls­ins er lokið í Namibíu og eiga rétt­ar­höldin í því að hefj­ast bráð­lega. Hér á Íslandi hefur rann­sókn­inni miðað vel áfram þrátt fyrir að Covid-far­ald­ur­inn hafi sett í strik í reikn­ing­inn og hægt nokkuð á henni. Hvað kemur út úr þessum dóms­málum er auð­vitað óljóst á þess­ari stundu. 

Sak­born­ing­arnir í mál­inu, bæði á Íslandi og í Namibíu, eru allt frá því að vera hátt­settir ráða­menn sem grun­aðir eru um að hafa skipu­lagt mútu­greiðsl­urnar, niður í að vera til­tölu­lega lágt settir aðilar sem komu …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Þetta er bara toppurinn á ísjakanum hin rótgróna djúpstæða Íslenska spilling er mikið alvarlegri en þetta. Landið getur ekki talist til fullvalda réttar og lýðræðisríkis með þrískiptu ríkisvaldi og það er grafalvarlegt mál. Í stuttu máli það getur ekki versnað mikið meira en orðið er
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórnvalda áberandi“
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

„Þögn íslenskra stjórn­valda áber­andi“

Í lok októ­ber fór fram umræða á Alþingi um rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins í Namib­íu­mál­inu og orð­spori Íslands þar sem stór orð féllu. Frum­mæl­and­inn, Þór­hildur Sunnar Ævars­dóttir, taldi að fá þyrfti svör við því hvort dráttur á rann­sókn máls­ins á Íslandi væri eðli­legur, hvort yfir­völd á Íslandi tækju málið alvar­lega og hvort rann­sókn­ar­stofn­anir á Íslandi væru nægi­lega vel fjár­magn­aðar.
Kaupa fólk utan fjölskyldunnar út í milljarða viðskiptum
ÚttektSamherjaskjölin í 1001 nótt

Kaupa fólk utan fjöl­skyld­unnar út í millj­arða við­skiptum

Sam­herj­a­fjöl­skyldan hefur á und­an­förnum mán­uðum keypt eign­ar­hluti minni hlut­hafa í útgerð­inni og á að heita má tíunda hvern fisk í land­helg­inni. Börn Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar fara nú nær ein með eign­ar­hluti í félag­inu fyrir utan litla hluti þeirra tveggja. Millj­arða við­skipti hafa svo átt sér stað á milli fjöl­skyldu­fyr­ir­tækj­anna í flóknu neti útgerð­ar­innar.
Samherji sagður hafa boðið milljarða króna til að ljúka málum í Namibíu
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Samherji sagður hafa boðið millj­arða króna til að ljúka málum í Namibíu

Samherji hefur boðið að gefa eftir yfir 2 millj­arða króna sem hald­lagðar voru í Namibíu, sem skaða­bætur til namibíska rík­is­ins í skiptum fyrir mála­lyktir. Namibísk yfir­völd tóku heldur fálega í til­boðið sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. Lögmaður Wikborg Rein, sem starfar fyrir Samherja, stað­festir við­ræður en segir til­boðið ein­göngu hluta af einka­rétt­ar­legri deilu Samherja við yfir­völd, því sé ekki um að ræða við­ur­kenn­ingu á sekt í saka­máli.
Rannsókn Samherjamálsins lokið í Namibíu og réttarhöld hefjast brátt
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Rannsókn Sam­herj­a­máls­ins lokið í Namibíu og rétt­ar­höld hefj­ast brátt

Werner Menges, blaða­maður The Namibian í Namibíu, segir að yfir­völd í Namibíu hafi lokið rann­sókn Sam­herj­a­máls­ins. Tekist er á um meint van­hæfi dóm­ar­ans í mál­inu, Kobus Muller, vegna ummæla sem hann hefur látið falla um málið. Hann segir afar ólík­legt að réttað verði yfir starfs­mönnum Samherja eða fyr­ir­tækjum útgerð­ar­innar í Namibíu þar sem Ísland fram­selji ekki Íslend­inga til Namibíu.
Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Bandaríkjunum
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Segir að Samherji ætti að hafa áhyggjur af sekt í Banda­ríkj­unum

Sænski blaða­mað­ur­inn Sven Bergman, sem fjallað hefur um fjölda mútu­mála sænskra fyr­ir­tækja erlendis, segir að illa hafi gengið að sækja stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna til saka í Svíþjóð fyrir brotin. Alvar­leg­ustu afleið­ing­arnar hafi verið þegar banda­rísk yfir­völd tóku málin til rann­sóknar og sekt­uðu félögin um svim­andi upp­hæðir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár