Kerling í aðalhlutverki

Í bók­inni Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu eftir nóbels­verð­launa­skáldið Olgu Tokarczuk er spurn­ingum eins og: hvaða lík­amar eru rétt­dræpir? og: hverjir hafa völd til að ákveða það? velt upp. Bókin olli miklum usla þegar hún kom út í heima­landi höf­undar Póllandi, í landi þar sem stjórn­völd hafa tekið til dæmis ákvarð­ana­rétt yfir lík­ömum kvenna í sínar hendur.

Kerling í aðalhlutverki
Bók

Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu

Höfundur Olga Tokarczuk
Bjartur
279 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu er bók­mennta­leg glæpa­saga og ævin­týri …“ segir á bak­síðu íslenskrar þýð­ingar á bók eftir pólska nóbels­verð­launa­skáldið Olgu Tokarczuk.

Bókin kom fyrst út í Póllandi fyrir þrettán árum síðan og olli usla. Það tók verkið tæpan ára­tug að ferð­ast til Bret­lands en hún kom fyrst út á ensku árið 2018. Ári seinna hlaut Olga Nóbels­verð­launin í bók­menntum. Olga er einn þekkt­asti rit­höf­undur Póllands, óhrædd við að gagn­rýna stjórn­völd þar – sem fikra sig sífellt lengra á hægri væng stjórn­mál­anna. Á þessu ári kom verkið út á íslensku.

Olga TokarczukNóbels­verð­launa­skáldið Olga Tokarczuk er einn þekkt­asti rit­höf­undur og hug­s­uður Póllands

Íslenska kápan er stíl­hrein, svört og hvít fyrir utan blóð­slettur, ásýndin eins og blanda af heim­speki­riti og glæpa­sögu. Það sem brýtur helst upp stíl­hreina kápuna er mynd af dádýri sem starir í …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár