Stóra uppgjörið: Loksins mætast Herra Garðabær og Herra Grafarvogur

Guð­laugur Þór Þórð­ars­son hefur loks­ins tekið skrefið og boðið sig fram til for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann og Bjarni Bene­dikts­son, sitj­andi for­maður, takast á um for­manns­stól­inn á lands­fundi um helg­ina. En hvað er líkt með þessum mönnum og hvað greinir á milli? Álits­gjafar Stund­ar­innar segja það ekki vera mál­efnin heldur ímyndin. Báðir eru þeir sterk­efn­aðir þó upp­runi þeirra og ásýnd sé ger­ó­lík.

Stóra uppgjörið: Loksins mætast Herra Garðabær og Herra Grafarvogur

Stuttu eftir að Bjarni Bene­dikts­son var kjör­inn for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í lok mars árið 2009 gekk Guð­laugur Þór Þórð­ar­son í gegnum eitt af sínum erf­ið­ari tíma­bilum sem þing­maður flokks­ins. Nýkjör­inn for­maður hafði þarna ekki þurft að takast á við mál sem tengd­ust efna­hags­hrun­inu hálfu ári áður.

En á meðan var Guð­laugur Þór í nauð­vörn vegna styrkja­máls­ins svo­kall­aða sem sner­ist um tug­millj­óna fjár­styrki fyr­ir­tækja til Sjálf­stæð­is­flokks­ins og hann hafði haft milli­göngu um. 

Bjarni hafði hætt sem stjórn­ar­for­maður stærsta olíu­fé­lags lands­ins N1 og eins stærsta fjár­fest­ing­ar­fé­lags, BNT ehf, í kjöl­far hruns­ins þar sem honum fannst ekki við hæfi að koma að stjórn þeirra lengur þar sem banka­kerfið var komið undir íslenska ríkið. „Ég neita því heldur ekki að mér finnst á vissan hátt óheppi­legt að vera mjög virkur þátt­tak­andi í við­skipta­líf­inu eftir að bank­arnir komust í hendur rík­is­ins,“ sagði Bjarni þegar hann …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SSS
    Sigurjón Smári Sverrisson skrifaði
    Er stigs munur á kúk eða skít ?
    0
  • EH
    Erlingur Hansson skrifaði
    Fyrir kosningarnar í apríl 2009 var fylgi Sjálfstæðisflokksins samkvæmt skoðanakönnunum á uppleið. En nokkrum vikum fyrir kosningar bárust upplýsingar um stóra styrki. Jón Ásgeir Jóhannesson lét leka í fjölmiðla upplýsingum um styrki sem Sjálfstæðisflokkurinn hafði fengið. Þeir voru gríðarlega margar milljónir. Nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins sagði að allt þetta fé myndi flokkurinn endurgreiða. Ekki var staðið við það. Fylgi flokksins fór niður eftir að fjölmiðlar sögðu frá.
    0
  • Sigrún Njálsdóttir skrifaði
    Collar - kragi = flibbi, ekki flippi. En hvort þessar kosningar verða flopp er svo spurning🙄
    1
    • Ásgeir Överby skrifaði
      Flibbi er kragi á skyrtuermi sem lokað er með flibbahnappi.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár