„Við erum bara manneskjur, við eigum þetta ekki skilið“

Rússnesk hjón sem hafa beðið hér í hálft ár eftir að íslensk yfir­völd taki til greina stöðu þeirra sem hæl­is­leit­endur, virð­ast hafa beðið til einskis. Á sama tíma hangir mögu­leg fang­els­is­refs­ing yfir höfði þeirra, fyrir það eitt að tjá sig með gagn­rýnum hætti um stríðs­rekstur Rússa Í Úkraínu.

„Við erum bara manneskjur, við eigum þetta ekki skilið“
Anton og Viktoria Garbar. Í her­bergi sínu á Hótel Sögu, þar sem þau hafa búið und­an­farna sex mán­uði. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hjónin Anton og Viktoria Garbar eru rúss­neskir rík­is­borg­arar sem komu til Íslands í apríl og ósk­uðu eftir vernd sem póli­tískir flótta­menn. Þau segja sér ekki vært í Rúss­landi, þaðan sem þau flúðu vegna skoð­ana sinna og þátt­töku í sam­fé­lags­um­ræðu, sem hér á landi þætti sjálf­sögð, en kostar fólk auð­veld­lega frelsið í Rúss­landi.

Eftir sex mán­uða bar­áttu fyrir efn­is­legri með­ferð hjá Útlend­inga­stofnun liggur nú fyrir að þeim verður vísað úr landi. 

Útlend­inga­stofnun virð­ist enda aldrei hafa skoðað mál þeirra af neinu viti. Það stóð ein­fald­lega aldrei annað til en að vísa þeim til Ítalíu.

Á meðan þau hafa beðið örlaga sinna hér, hefur rúss­neska lög­reglan kært Anton fyrir það eitt að tala gegn og efast um lög­mæti inn­rás­ar­innar í Úkraínu. Refs­ingin við slíku lög­broti gæti hæg­lega kostað hann fang­els­is­vist.

Anton og Viktoria segj­ast stundum upp­lifa sig hvergi vel­komin. „Heima fyrir er ég svik­ari en hér er …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ömurleg frásögn og ótrúleg.
    1
  • Sigga Svanborgar skrifaði
    íslensk valdaelíta er svo á rússasíðu og hefur alltaf verið ........
    0
    • CR
      CPS Ráðgjöf skrifaði
      Ömurlegt að heyra. Þetta hugrakka fólk á skilið miklu betra. Stöndum með þeim!
      3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár