Úkraína – hin sviðna jörð Pútíns

Hálft ár er í dag liðið frá inn­rás Rússa, sem hafa ráð­ist á almenna borg­ara og framið stríðs­glæpi, sprengt sjúkra­hús, skóla og menn­ing­ar­verð­mæti, auk þess sem rúss­neskir her­menn ræna og rupla. „Ætlum að koma Zelenský frá,“ segir Sergei Lavrov. Lítil von er um frið.

Úkraína – hin sviðna jörð Pútíns
Pútín og rúss­neski her­inn skilur eftir sig slóð eyði­legg­ingar í Úkraínu Á mynd­inni flýr maður með aleigu sína eftir árásir Rússa á borg­ina Kharkív, í mars fyrr á þessu ári. Þúsundir manna hafa fallið i inn­rás Rússa, bæði almennir borg­arar og her­menn. Lítil von er um vopna­hlé og langt á milli aðila. Mynd: afp

Inn­rás­ar­stríð Vla­dimírs Pútíns inn í Úkraínu hefur nú staðið í hálft ár. Það hófst þann 24. febr­úar síð­ast­lið­inn þegar hann skip­aði her sínum að ráð­ast inn í eitt stærsta ríki Evrópu, sem bæði er sjálf­stætt og full­valda. Á þeim tíma hafa herir Rúss­lands valdið gríð­ar­legri eyði­legg­ingu, sem líkja má við að risa­stór skemmd­ar­vargur gangi laus í land­inu.

Rúss­neskir her­menn hafa farið um ræn­andi, ruplandi og nauð­g­andi, enda til sím­töl og önnur sam­skipti þar sem þeir spjalla við ætt­ingja sína til að fá „óska­lista“ yfir muni sem þeir eiga að stela og koma með heim, en þessu hefur til dæmis The Moscow Times sagt frá.

Mann­úð­ar­sam­tök á borð við Amnesty International draga upp mjög dökka mynd af ástand­inu í Rúss­landi, þar sem í valda­tíð Pútíns er búið að þjarma skipu­lega að almenn­ingi, per­sónu­frelsi hans, frjálsum fjöl­miðlum, félaga­sam­tökum, sem og stjórn­ar­and­stöð­unni, sem nán­ast hefur verið múl­bundin. Stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa flúið land, verið fang­els­aðir …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár