Ísfirðingurinn, móturhjólakappinn, kokkurinn, lífskúnstnerinn en fyrst og fremst samtímaljósmyndarinn Sigurþór Hallbjörnsson, betur þekktur sem Spessi, var að opna á Þjóðminjasafni Íslands ljósmyndasýninguna SPESSI 1990-2020. Hans einstaki stíll markar þessa yfirlitssýningu hans, þar sem ekkert er dregið undan hvort sem það er; einmanna bensíndæla austur í Suðursveit, kátir hommar í góðum fíling, verkfæri búsáhaldarbyltingarinnar, eða fyrrverandi Covid sjúklingar í seríunni C-19, sem er fyrir aftan Spessa á myndinni. Bók sem ber sama heiti og sýningin kom út samhliða sýningunni.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir