Hinar funheitu norðurslóðir

Eru norð­ur­slóðir hið nýja villta vestur þar sem allir mega leika lausum hala? Slíkar full­yrð­ingar voru til umræðu á norð­ur­slóða­ráð­stefn­unni Arctic Fronti­ers í Tromsø í Noregi í byrjun febr­úar. Ina Eiriksen Søreide, utan­rík­is­ráð­herra Noregs, hafnar slíkum full­yrð­ingum, en áhugi Kínverja, sem ekk­ert land eiga á þessum slóðum, hefur vakið margar spurn­ingar.

Hvernig varð kaldasta svæði heims skyndi­lega það heitasta? Hér er ekki verið að tala um eig­in­legan hita  sem mældur er í hita­stigum með mæli­tækjum, heldur um aðdrátt­ar­afl og hern­að­ar­legt mik­il­vægi. Eru norð­ur­slóðir hið nýja villta vestur þar sem allir mega leika lausum hala?  Kannski er ekki svo lang­sótt að kalla norð­ur­slóð­irnar fun­heitt svæði, eins og gert er í fyr­ir­sögn þess­arar greinar, því að þar mælist hlýnun lofts­lags um tvö­falt meiri en ann­ars staðar í heim­inum.

Um þetta og margt annað var rætt á norð­ur­slóða­ráð­stefn­unni Arctic Fronti­ers, sem haldin var í Tromsø í Noregi í síð­ustu viku. Yfir­skrift ráð­stefn­unnar, sem hefur verið haldin frá árinu 2006, var The Power of Knowledge, eða Máttur þekk­ing­ar­innar. 

Fjöldi stjórn­mála­manna, sér­fræð­inga og hags­muna­að­ila víða að úr heim­inum tóku þar til máls og mál­flutn­ing­ur­inn ein­kennd­ist að miklu leyti af því að nauð­syn­legt væri að kom­ast að nýju sam­komu­lagi um norð­ur­slóðir; að styðj­ast við núver­andi reglu­verk væri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár