Tölur um plast, tölum um plast

Plastið tekur yfir heim­inn og umræð­una.

Tölur um plast, tölum um plast
Paradís á jörðu Ströndin í Kochi í Kerala í Suður-Indlandi er fjarska fal­leg, þegar komið er nær, er plast og aftur plast, eins langt og augað eygir. Mynd: Páll Stefánsson

Það var fyrir 113 árum í New York sem banda­rísk-belgíski efna­fræð­ing­ur­inn Leo Beakland fann upp plastið. Hann gaf þessu nýja og hand­hæga mót­andi efni nafnið plastic, en orð­stofn­inn er gríska orðið plast­ikós, sem þýðir að móta. 

Það eru fáir hlutir sem móta til­veru okkar jafn áþreif­an­lega og plastið. Það er alls staðar. Jafnvel á þeim stöðum sem það ætti alls ekki að vera. Eins og rétt fyrir norðan okkur. 

Plast er alls staðar. Þegar við vöknum byrjum við dag­inn á að setja upp í okkur plast, þ.e.a.s. tann­burst­ann, og kreistum á hann tann­krem, auð­vitað úr plast­túbu. Síðan kveikjum við á far­sím­anum, sem er að meiri hluta úr plasti. Þaðan opnum við ísskáp­inn og tökum út plast­húð­aða mjólk­ur­fern­una og leggjum morg­un­verð­inn á borðið; plast­pakk­aðan ost, plast­aða gúrku, tómata í plast­öskju. Við sturtum okkur og þvoum hárið með plast­pökk­uðu sjampói ... og dag­ur­inn er bara rétt að byrja. Úr plast­út­varp­inu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár