Mest lesnu fréttir ársins: Samherjaskjöl og áreitni Jóns Baldvins

Mest lesna frétt árs­ins fjall­aði um hvernig Samherji not­aði norskan rík­is­banka til að koma pen­ingum í skatta­skjól. Þrjár af mest lesnu fréttum árs­ins fjöll­uðu um kyn­ferð­is­lega áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­s­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, á hendur konum í áranna rás.

Mest lesnu fréttir ársins: Samherjaskjöl og áreitni Jóns Baldvins

1 Samherjaskjölin: An Icelandic fishing company bribed officials in Namibia and used Norway’s largest bank to transfer 70 million dollars to a tax haven 

Mest lesna frétt árs­ins var ensk útgáfa fréttar Stund­ar­innar um hvernig sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji mút­aði opin­berum aðilum í Namibíu til að kom­ast yfir mak­ríl­kvóta við landið og hvernig fyr­ir­tækið not­aði þjón­ustu stærsta banka Noregs, hins rík­is­rekna DNB, til að færa rúm­lega 8,5 millj­arð króna í skatta­skjól. Fréttin vakti gríð­ar­lega athygli, eins og aðrar fréttir sem Stundin sagði af Sam­herj­a­skjöl­unum í nóv­em­ber og des­em­ber á árinu, ekki síst vakti hún mikla athygli í Noregi en efna­hags­brota­deilt norsku lög­regl­unnar gaf út í lok nóv­em­ber að hafin væri rann­sókn á bank­anum í kjöl­far upp­ljóstrana Stund­ar­innar og Kveiks, í sam­vinnu við Wi og Al Jazeera.

Frétt eftir Inga Frey Vilhjálmsson. 

Birtist 12. nóvember.

65.978 lásu.

8.600 líkaði við.

2Leita sannleikans um harmþrungið leyndarmál 

Önnur mest lesna frétt árs­ins er umfjöllun Stund­ar­innar frá því í jan­úar um leit skosku mæðgn­anna Astraeu Jill Robert­son og Amy Robert­son til lands­ins að svörum við fjöl­skyldu­sögu sinni. Astrea er dóttir Catherine Öldu Laurens Weatherstone, dóttur fóst­ur­móður Júlíusar Vífils Ingv­ars­sonar fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúa. Þar er meðal ann­ars greint frá komu þeirra mæðgna hingað til lands í apríl 2016 og kvöld­verð­ar­boði heima hjá Júlíusi Vífli sem endað skyndi­lega þegar hann bað þær með miklum asa að fara. Síðar komust þær að því að þennan dag komu fyrstu fréttir um sjóði Júlíusar í skatta­skjólum fram. Frekari upp­ljóstr­anir úr Panama-skjöl­unum áttu eftir að vekja enn fleiri spurn­ingar hjá afkom­endum Cathie.

Frétt eftir Jón Bjarka Magnússon

Birtist 27. janúar

3 Barnabarn Jóns Baldvins: „Það verður ekki þagað lengur“

Í frétt­inni er greint frá því þegar Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko, barna­barn Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, steig fram og lýsti því hvernig Jón Baldvin hafi mis­notað völd sín til að láta stimpla dóttur sína, Aldísi Schram, móður Tatjönu, geð­veika. Það gerði hún í tengslum umfjöllun Stund­ar­innar þar sem fjórar konur lýstu kyn­ferð­is­legri áreitni af hendi Jóns Baldvins.

Frétt eftir Steindór Grétar Jónsson.

Birtist 12. janúar.

4 Listi yfir tekjuhæsta 1 prósentið í hátekjublaðinu

Greint var frá því að í fyrsta sinn væri birtur listi yfir rúm­lega tvö þús­und tekju­hæstu Íslend­ing­ana, tekju­hæsta 1 pró­sentið á Íslandi. Þær upp­lýs­ingar voru unnar út frá skatt­greiðslum árs­ins 2018. Þá var rýnt sér­stak­lega í stöðu tekju­hæsta 0,1 pró­sents­ins, hóps sem að veru­legu leyti hefur tekjur í formi fjár­magnstekna. Því greiðir sá hópur mun lægri skatta en ellegar af tekjum sínum.

Birtist 23. ágúst.

5 Konur segja frá áreitni Jóns Baldvins 

Fjórar konur stigu fram í Stund­inni og lýstu meintri kyn­ferð­is­áreitni Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, á hendur þeim. Þau atvik munu hafa átt sér stað á yfir hálfrar aldar tíma­bili. Þá var greint frá því að enn fleiri konur hefðu deilt sögum af áreitni Jóns Baldvins í lok­uðum hóp á Facebook.  

Frétt eftir Steindór Grétar Jónsson.

Birtist 11. janúar.

6 Þögul skilaboð Elizu 

Eliza Reid for­seta­frú tók ásamt manni sínum, Guðna Th. Johann­es­sen for­seta Íslands, á móti Mike Pence, vara­for­seta Banda­ríkj­anna, íklædd hvítri dragt. Leiða má líkum að því að fata­val Elizu hafi ekki verið nein til­viljun heldur hafi hún verið að vísa í alþjóð­lega hreyf­ingu kvenna sem hafa heiðrað jafn­rétt­is­bar­átt­una með því að klæð­ast hvítum buxna­drögtum. Þá bara Eliza einnig regn­bogaarm­band á hendi. Mike Pence hefur sætt gagn­rýni fyrir and­stöðu sína við rétt­indi sam­kyn­hneigðra í gegnum tíð­ina.

Frétt eftir Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttir.

Birtist 4. september.

7 Það sem gerðist að Gýgjarhóli þegar faðir minn lést af völdum bróður síns

Ingi Rafn Ragn­ars­son skrif­aði um atvikin sem leiddu til þess að faðir hans lét lífið að völdum bróður síns á bænum Gýgj­ar­hóli II í Blá­skóga­byggð. „Sann­leik­anum hafa ekki verið gerð næg skil opin­ber­lega og þrátt fyrir allt sem á undan er gengið þá get ég ekki látið síð­ustu orðin um föður minn vera nafn­lausan róg­burð frá Val Lýðssyni og fylgjum hans og því sett­ist ég við skriftir.“

Frétt eftir Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur.

Birtist 9. apríl.

8Hafði endaþarmsmök við sofandi stúlku - Ekki nauðgun, segir lögregla

Lögregla og rík­is­sak­sókn­ari töldu ekki til­efni til að rann­saka hvort nauðgun hefði átt sér stað þegar maður þröngvaði lim sínum í enda­þarm 17 ára stúlku meðan hún svaf, þrátt fyrir að mað­ur­inn hefði við­ur­kennt verkn­að­inn við yfir­heyrslu hjá lög­reglu.

Frétt eftir Jóhann Pál Jóhannsson.

Birtist 8. júlí.

9Systir Bryndísar Schram: „Þetta var mágur minn allsnakinn við hlið mér“

Margrét Schram lýsti því í frétt Stund­ar­innar hvernig Jón Baldvin Hanni­bals­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra og mágur Mar­grétar, hefði skriðið nak­inn upp í rúm til hennar þegar hún var í heim­sókn hjá honum og Bryndísi systur sinni í Edinborg í upp­hafi sjö­unda ára­tug­ar­ins. Hún hafi lamið og sparkað þar til Jón Baldvin hörf­aði. Jón Baldvin sagð­ist ekki myndi breg­aðst við frá­sögn­inni fyrr en síðar.

Frétt eftir Steindór Grétar Jónsson.

Birtist 12. janúar.

10„Ég vil að allir þeir sem minnast þín hugsi um þig en ekki fíkilinn, því það varst ekki þú“

Aðal­heiður Hulda Jóns­dóttir lést í Grinda­vík í febr­úar eftir lang­vinna glímu við fíkni­sjúk­dóm. Dóttir hennar, Súsanna Margrét Gunn­ars­dóttir, skrif­aði hjart­næm minn­ing­ar­orð um móður sína sem var glað­vær, fyndin, hlý og vildi allt fyrir alla gera.

Birtist 11. febrúar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár