Í heimi Blíð­finns Linda Ólafs­dóttir teikn­ari fékk það verk­efni að teikna mynd­irnar í end­ur­út­gáfu Blíð­finns-bóka Þorvalds Þor­steins­sonar. Hér hefur hún mynd­skreytt ljós­mynd­ina af sjálfri sér í þeim anda. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þakklát Þorvaldi fyrir hvatninguna

Linda Ólafs­dóttir, teikn­ari og barna­bóka­höf­undur, hefur mynd­lýst á þriðja tug bóka. Nú fyrir jólin kom út ný útgáfa af hinum ást­sælu Blíð­finns­bókum eftir Þorvald Þor­steins­son heit­inn sem hún mynd­lýsir en bókin nefn­ist Blíð­finnur – allar sög­urnar. Linda hitti Þorvald þegar hún var sjálf í Lista­há­skól­anum í Reykja­vík og segir hann hafa veitt sér mik­inn inn­blástur.

Linda Ólafs­dóttir hefur hlotið fjölda við­ur­kenn­inga og verð­launa fyrir mynd­lýs­ingar sínar en hún segir ástríðu sína fyrir teikn­ingu hafa byrjað á unga aldri. Hún tekur á móti mér í björtum bíl­skúr í Laug­ar­dalnum, við hlið­ina á heim­ili hennar, sem hún er búin að umbreyta í vinnu­stofu.

Hraður vöxtur á greininni

„Ég er ein af þessum mann­eskjum sem hefur alltaf verið teikn­andi,“ útskýrir hún. „Það kom aldrei neitt annað til greina hjá mér en að vinna við eitt­hvað tengt teikn­ingu. Ég fór í mynd­list­ar­nám hérna heima í Lista­há­skóla Íslands en ég fann kannski ekki alveg hvar ég var í mynd­list­inni. Eftir BA-gráðuna fór ég í masters­nám til San Francisco og lærði þar sér­stak­lega mynd­lýs­ingar (e. illustration) og þar varð það alveg aug­ljóst hvar ég vildi vera, að vinna sem teikn­ari meira en í mynd­list. Teikn­arar eru eig­in­lega svona mitt á milli hönn­unar og mynd­listar. Og mér finnst fínt að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár