Neydd í hjónaband 11 ára en fann öryggi á Íslandi

„Það sem kom fyrir mig er að henda millj­ónir stúlkna dag­lega um allan heim,“ segir Najmo Fyiasko Finn­boga­dóttir. Aðeins barn að aldri var kyn­færum hennar mis­þyrmt, með þeim afleið­ingum að hún þjá­ist enn í dag og treystir sér ekki til þess að bera börn. Eftir að faðir hennar var myrtur var hún gefin full­orðnum frænda sínum, þá ell­efu ára gömul. Tveimur árum síðar flúði hún Sómalíu og hefur öðl­ast nýtt líf á Íslandi.

Neydd í hjónaband 11 ára en fann öryggi á Íslandi

„Ég var að máta stúd­ents­húfu í dag, ég útskrif­að­ist í vor en athöfnin sjálf er í næstu viku. Ég og pabbi fórum saman að kaupa stúd­ents­húf­una og þegar við vorum búin þar fórum við í Þjóðskrá og fylltum út eyðu­blað þannig að eftir nokkra daga verð ég form­lega Finn­boga­dóttir. Þá ber ég nöfn beggja feðra minna, Fiyaskos og Finnboga. Ég kom beint þaðan hingað að hitta þig,“ segir hin 21 árs gamla Najmo Fiyasko, bráðum form­lega Finn­boga­dóttir, þegar við erum búnar að heils­ast og fá okkur sæti í einni af mörgum litlum setu­stofum á Mími við Hagatorg síð­degis í lok vinnu­viku, skömmu fyrir vetr­ar­sól­stöður.  Þar vorum við í skjóli frá jólastress­inu. Najmo liggur hátt rómur og var áber­andi ánægð með dags­verkið, enda drjúgt: húfa og nýtt nafn. Nokkrum dögum síðar stóð hún í pontu í sómölskum kjól með íslenska stúd­ents­húfu og flutti útskrift­ar­ræðu nem­enda í Fjöl­brauta­skól­anum í Ármúla. 

Nýstúd­entNajmo með húf­una sem merkt er nöfnum beggja feðra hennar. Myndina tók Finnbogi Björns­son, íslenski pabbi hennar. 

Þegar við vorum búnar að sitja í um klukku­stund á Mími barst talið að atburðum í æsku hennar sem ekk­ert barn á að þurfa að upp­lifa og þá dimmdi yfir henni. Hún tal­aði hægar og lægra.  Najmo ber líðan sína utan á sér. Hún er ekki í felum.

„Ég er hætt að fela mig. Ég er samt ekki frjáls, ég verð það ekki fyrr en allar konur eru frjálsar,“  segir hún og bætir við að hún ætli að nýta hverja lausa stund sem hún eigi til að berj­ast fyrir stúlkur sem eru í sömu sporum og hún var þegar hún var lítil stelpa í Sómalíu. „Ég ætla að fræða þær og nota jafn­vel óhefð­bundnar aðferðir til þess,“ segir Najmo.


Stóra sviðið hennar eru sam­fé­lags­miðl­arnir, Facebook, Youtube, Instagram, Snapchat.  Þar segir hún áhorf­endum sögu sína, bendir á ofbeldið sem konur í Sómalíu verða fyrir á hverjum degi. Þar fræðir hún stúlkur, konur, stráka og karla um hvernig er hægt að stöðva ofbeldi gagn­vart stelpum og konum í land­inu sem hún fædd­ist í og flúði þegar hún var þrettán ára. Áhorf­endum fjölgar dag frá degi og meðal margra Sómala er hún stjarna, Youtube stjarna með 23.000 áskrif­endur og heild­ar­á­horf á mynd­böndin hennar er komið yfir eina milljón. 

Mik­il­vægt að sýna skað­annNajmo segir mik­il­vægt að sýna skað­ann sem mis­þyrm­ingar á kyn­færum kvenna veldur og fjallar opin­skátt um það í fræðslu­mynd­böndum sem þessum.

Þöggun umlykur misþyrmingar á sómölskum stúlkum

Litríki klút­ur­inn sem hún er með um háls­inn er einmitt gjöf frá aðdá­anda í London. „Ég er í námi þar og eftir skóla einn dag­inn fór ég í bæinn og stað­næmd­ist við verslun sem selur sómalskar vörur, afgreiðslu­konan sá mig, kom út og bauð mér inn í búð­ina. Þegar þangað var komið faðm­aði hún mig og þakk­aði mér fyrir allt sem ég væri búin að  gera fyrir stelpur og konur í Sómalíu,“ segir Najmo stolt á svip. Hún segir að afgreiðslu­konan hafi síðan kallað á vin­konur sínar sem voru í búð­inni og að þær hafi líka þekkt hana og fagnað henni ákaft. Kveðju­gjöfin var klút­ur­inn lit­ríki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár