Kafa dýpra Þeir kafa dýpra en áður í text­ana og konseptið í kringum þá, sem þeir segja dýpka heild­ar­upp­lifun­ina og skera sig lengra inní sál­ina. Mynd: Heiða Helgadóttir

Grófari, seigari, dekkri og dýpri

Fjöl­lista­hóp­ur­inn Gusgus verður 25 ára á næsta ári og fagnar því með því að hóa saman fyrrum með­limum á borð við Emilíönu Torrini, Högna Egilsson, Stephan Steph­en­sen og marga fleiri á stór­tón­leikum í Eldborg. Þeir Birgir og Daníel Ágúst, sem sitja nú einir eftir í hópnum, ræða hér fer­il­inn, átök alpha-hunda, mögu­lega eft­ir­sjá og galdra raf­tón­listar, sem geti hreyfi við dýpstu til­finn­ingum. Í dag gáfu þeir út nýja remix-plötu, Remixes Are More Flexible, pt. I. Hana má hlusta á í við­tal­inu.

Þrátt fyrir að hafa verið lengi að hafa hljóm­sveit­ar­með­limir Gusgus lík­lega sjaldan haft í eins miklu að snú­ast eins og nú. Í dag, föstu­dag­inn 22. nóv­em­ber, gáfu þeir út smá­skífu af plöt­unni Lies Are More Flexible og er önnur smá­skífa af sömu plötu vænt­an­leg frá þeim snemma á næsta ári og ný plata í kjöl­farið.

Nokkur fjöldi þekktra lista­manna hefur átt sína hlut­deild í fjöl­lista­hópnum Gusgus, sem hefur stækkað og minnkað á víxl á þeim tutt­ugu og fimm árum sem hann hefur verið starf­andi. Und­an­farin ár hefur hóp­ur­inn verið i sögu­legri smæð hvað fjölda með­lima varðar, en hann sam­anstendur nú ein­ungis af þeim Birgi Þór­ar­ins­syni, eða Bigga veiru, og Daníel Ágústi Har­alds­syni. Þrátt fyrir að þeir séu aðeins tveir hafa þeir sjaldan verið upp­tekn­ari og fjöl­margt er á prjón­unum næstu mán­uði. Báðir til­heyrðu þeir Biggi og Daníel Ágúst upp­haf­lega hópnum sem mynd­aði Gusgus, fyrir rétt tæpum 25 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár