Sætabrauðsdrengirnir gefa loksins út plötu

Ýmsir ættu að kann­ast við Sæta­brauðs­dreng­ina en þeir hafa haldið jólatón­leika um ára­bil. Nú er loks­ins komið að því að gefa út plötu eftir langa bið.

Sæta­brauðs­drengirnir hafa haldið jólatón­leika um ára­bil við góðar und­ir­tektir. Tón­leik­arnir hafa verið ýmist í Salnum eða Hörpu, en einnig á nokkrum stöðum úti á landi. Margir tón­leika­gestir hafa óskað eftir því að geta keypt geisla­disk með þessu efni og í ár var því ákveðið að láta til skarar skríða með upp­tökum og útgáfu.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

Við höfum fengið mikla hvatn­ingu til að gefa út efni af jólatón­leik­unum og hug­myndin hefur því blundað með okkur í nokkur ár, en nú var ekki lengur til set­unnar boðið að hrinda útgáfu í fram­kvæmd. Við von­umst til að Karolina­fund geri okkur það kleift, þar sem fólk getur fyr­ir­fram keypt sér geisla­disk og/eða miða á jólatón­leik­ana í des­em­ber, en einnig er hægt að panta litla tón­leika fyrir smærri hópa eða fyr­ir­tæki.

[adspot]

Segið okkur frá laga­val­inu

Flest eru þetta alþekkt jóla­lög, en í nýjum og bráð­skemmti­legum útsetn­ingum píanó­leik­ar­ans, Halldórs Smára­sonar. En þó að útsetn­ing­arnar séu nýjar, eru þær innan hefð­bund­ins ramma og fyrst og fremst glað­legar og sér­lega áheyri­legar. Þarna eru t.d. gömul íslensk jóla­lög, eins og Gils­bakka­þula, Hátíð fer að höndum ein og Það á að gefa börnum brauð. Ó helga nótt er á sínum stað og fleiri erlend lög, eins og Bráðum koma jólin, Yfir fann­hvíta jörð og Nú minnir svo ótal margt á jólin.

Að auki eru þarna hátíð­legri lög eins og Það aldin út er sprungið og Guðs kristni í heimi. Halldór á einnig nýtt lag á plöt­unni.Þar sem við erum æringjar, urðum við að hafa svo­lítið grín með og Halldór setti saman litla syrpu af lögum, sem nefn­ist Yfir­drátt­arsyrpan með vísun í visa-reikn­ing­inn í febr­úar. Þar eru glað­leg jóla­lög færð í moll og hljóma því all­trega­full!Það má því segja að farið sé yfir víðan völl í laga­vali. Und­an­farið höfum við verið í hljóð­veri hjá Hafþóri Karls­syni „tempó“ og erum mjög spenntir yfir útkom­unni!

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár